Gengi krónunnar styrkist á erlendum mörkuðum 28. apríl 2009 12:18
Gengi krónu hefur styrkst töluvert gagnvart evru á erlendum markaði undanfarna daga og hljóða tilboð í Reuters-tilboðakerfinu nú upp á u.þ.b. 220 kr. fyrir evruna. Er gengið erlendis nú svipað og var fyrir sex vikum síðan. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að á sama tíma hefur gengi evru hins vegar hækkað um ríflega 14% gagnvart krónu á innlendum millibankamarkaði. Munur á innlendu og erlendu gengi krónu gagnvart evru hefur því minnkað verulega undanfarið. Evran er nú 28% dýrari á erlendum markaði en hinum innlenda, en ef marka má Reuters-tilboðakerfið varð þessi munur um og yfir 90% fyrir mánuði síðan. Hefur munur á innlenda og erlenda genginu ekki verið minni frá síðustu vikum janúarmánaðar. Greiningin segir að ekki sé gott að segja hvað veldur þessari ólíku þróun krónu á erlendum og innlendum markaði. Ljóst er þó að öðru jöfnu verður hvati til þess að fara í kring um gjaldeyrishöft meiri eftir því sem færi gefst á meiri hagnaði. Ein hugsanleg skýring er að útflæði vegna vaxtagreiðslna frá miðjum marsmánuði hafi aukið eftirspurn eftir krónum erlendis, enda geta erlendir aðilar sem hafa hug á að halda stöðu sinni í krónum nýtt þær evrur sem þeir fá á innlendum markaði fyrir vaxtagreiðslur sínar til þess að kaupa krónueignir af öðrum útlendingum sem meira liggur á að losna við slíkar eignir. Einnig kann minnkandi áhættufælni erlendis, sem endurspeglast til að mynda í lækkandi skuldatryggingarálagi, að hafa minnkað áhuga erlendra fjárfesta á að selja krónueignir sínar á afar lágu verði. Í þriðja lagi er ekki hægt að útiloka að gjaldeyrir leiti í auknum mæli fram hjá höftunum, en minni einangrun milli markaða ætti alla jafna að draga úr verðmun milli þeirra. Haldi þessi þróun áfram ætti það að auðvelda afléttingu gjaldeyrishafta, þar sem gengi krónu erlendis gefur vísbendingu um hvaða gengi óþolinmóðir erlendir fjárfestar eru tilbúnir að sætta sig við til að losa sig úr krónustöðum sínum. Nýleg ummæli Seðlabankastjóra skipta einnig máli í þessu tilliti, en hann sagði í viðtali við Reuters-fréttastofuna á sunnudag að unnið væri að áætlun um að losa hluta erlendra fjárfesta út úr krónueignum sínum fyrir mitt ár. Það, ásamt því að endahnútur verði bundinn á endurskipulagningu bankakerfisins og áhættufælni á alþjóðamörkuðum réni frekar, eru meðal helstu áfanga á þeirri leið að endurfleyta krónunni að fullu og aflétta gjaldeyrishöftum.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Sjá meira