Seðlabankinn veitti heimild til skortstöðu gegn krónunni 27. apríl 2009 16:36
Seðlabankinn veitti bönkunum heimild til skortstöðu gegn krónunni á síðasta ári. Megnið af gengishruni krónunnar á þessum tíma má skrifa á reikning Seðlabankans, og þá einkum Davíðs Oddssonar þáverandi bankastjóra bankans. Ólafur Arnarson kemur inn á þetta í bók sinni Sofandi að feigðarósi. Og hópur nemenda Guðmundar Ólafssonar hagfræðings við Bifröst hefur safnað gögnum um gengisþróunina frá áramótum 2008 og fram til ársloka sem sýnir glögglega hvernig gengið féll skömmu fyrir hver ársfjórðungsskipti eða skömmu áður en bankarnir birtu uppgjör sín. Ólafur segir í samtali við Fréttastofu að Straumur hafi fengið leyfi hjá ársreikningaskrá til að færa bókhald sitt í evrum árið 2007. Við þær fregnir hafi Davíð Oddsson gengið af göflunum og fengið fjármálaráðherra til að breyta reglum þannig að þær bankastofnanir sem ætluðu að breyta bókhaldi sínu yfir í erlenda mynt þyrftu leyfi Seðlabankans til slíks. Kaupþing sótti um að fá að færa bókhald sitt í evrum fyrir áramótin 2007 enda var erlend starfsemi bankans þá orðin 80% af heildarumsvifum bankans. Þessu hafnaði Davíð Oddsson alfarið. Kaupþing dró síðan umsókn sína til baka í ársbyrjun í fyrra. "Kaupþing átti þá ekki annan kost en að taka stöðu gegn krónunni til að verja 80% umsvifa sinna gegn gengissveiflum," segir Ólafur. "Kaupþing og raunar hinir bankarnir tveir fengu svo heimild frá Seðlabankanum til þess að taka skortstöðu gegn krónunni. Afleiðingarnar voru hrun íslensku krónunnar. Það má sjá að hrunið hefst fyrst að ráði eftir að Seðlabankinn hafnaði umsókn Kaupþings um evruvæðingu bókhaldsins." Ólafur segir að ef Kaupþing hefði fengið leyfi til að gera upp í evrum hefði dæmið algerlega snúist við. Þá hefði bankinn væntanlega tekið stöðu með krónunni til að verja 20% umsvifa sinna í íslenskum krónum og það hefði að öllu líkindum leitt til styrkingar á krónunni á síðasta ári. Enda var efnahagsreikningur Kaupþings á þessum tíma orðinn á við fjórfalda landsframleiðslu Íslands. Guðmundur Ólafsson segir að þær upplýsingar sem nemendur hans hafi safnað saman vegna annaverkefnis síns sýni að gengishrunið megi skrifa á reikning bankanna. Hann nefnir einnig að þýska tímaritið Der Spiegel hafi birt grein s.l. sumar þar sem sagt er frá þessu máli. "Það er augljóst að bankarnir voru að taka stöðu gegn þjóðinni með þessum gjörðum sínum," segir Guðmundur og bendir á að hann og Sigurður G. Tómasson hafi margrætt þetta mál í þáttum sínum á Útvarpi Sögu frá síðasta sumri en að enginn annar fjölmiðill hafi tekið málið upp á þessum tíma.
Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira