Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fjórfalt fleiri fyrirtæki í vanda en fyrir bankahrunið Fjórfalt fleiri fyrirtæki eru nú í vanda en fyrir bankahrunið ef miðað er við upplýsingar frá Creditinfo um greiðsluhegðun fyrirtækja. Sífellt fleiri fyrirtæki eiga á brattann að sækja, samkvæmt mælingum Creditinfo á greiðsluhegðun fyrirtækja. 23.4.2009 12:09
Tryggingamiðstöðin tapaði 17,6 milljörðum í fyrra. Tryggingamiðstöðin tapaði 17,6 milljörðum króna í fyrra. Hamfarir á fjármálamörkuðum setja mark sitt á afkomu félagsins. Tap vegna norska dótturfélagsins NEMI sem nú hefur verið selt, nam 12,1 milljarði króna og tap vegna innlendrar starfsemi TM nam 5,5 milljörðum króna. Þrátt fyrir afar erfiðar rekstraraðstæður á árinu 2008 er fjárhagsstaða TM sterk og eignir á móti vátryggingaskuld traustar. 23.4.2009 10:10
Einn í peningastefnunefnd vildi 2-3% stýrivaxtalækkun Einn nefndarmaður í peningastefnunefnd taldi að rétt væri að taka heldur stærra skref við síðustu stýrivaxtalækkun og lagði til að vaxtalækkunin yrði á bilinu 2,0 til 3,0 prósentustig. 22.4.2009 16:17
Sótt um lóð undir olíubirgðastöð á Reyðarfirði Verkfræðistofan Mannvit hefur sótt um lóð fyrir 244.000 rúmmetra olíubirgðastöð á Reyðarfirði, fyrir hönd Atlantic Tank Storage og var fjallað um umsóknina í umhverfisnefnd Fjarðarbyggðar í dag. 22.4.2009 16:29
Sparnaður ehf. höfðar mál gegn ríkisbönkunum Sparnaður ehf hefur höfðað mál á hendur ríkisbönkunum þremur, NBI, Íslandsbanka og Nýja Kaupþingi banka, til viðurkenningar á skaðabótaskyldu bankanna vegna ólögmætra hindrana á Uppgreiðsluþjónustu lána. 22.4.2009 15:34
Gengi hlutabréfa Bakkavarar hækkaði mest í dag Gengi hlutabréfa í Bakkavör hækkaði um 1,79 prósent í dag og Össurar um 0,88 prósent. Þetta voru einu hækkanir dagsins. 22.4.2009 16:50
Vaki fiskeldskerfi hlýtur Útflutningsverðlaunin Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, veitti í dag fyrirtækinu Vaka fiskeldiskerfi hf. Útflutningsverðlaun forseta Íslands við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Það var Hermann Kristjánsson framkvæmdastjóri sem veitti verðlaununum viðtöku fyrir hönd fyrirtækisins. 22.4.2009 16:01
Danska krónan að skríða yfir 23 íslenskar Danska krónan kostar nú rétt tæpar 23 krónur íslenskar en gengi krónunnar hefur haldið áfram að veikjast í dag. Nemur veikingin rúmu prósenti og stendur gengisvísitalan í 225 stigum. 22.4.2009 15:27
Stofna eignastýringarfyrirtæki í Lúxemborg Nokkrir af fyrrverandi starfsmönnum íslensku bankanna í Lúxemborg hafa nú stofnað nýtt eignastýringarfyrirtæki þar í landi. Að félaginu standa nokkrir fyrrverandi starfsmenn útibúa Landsbankans og Kaupþings í Lúxemborg en fyrirtækið hefur fengið starfsleyfi frá fjármálaráðuneytinu þar í landi. Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu í dag. 22.4.2009 12:53
Líf og fjör á skuldabréfamarkaðinum Líflegt var á skuldabréfamarkaði í gær og sömu sögu má segja um það sem af er morgni. Alls nam veltan í ríkisbréfum og íbúðabréfum tæplega 7,1 milljarði kr. í gær og þegar þetta er ritað (kl.11:30 f.h.) er velta dagsins tæpir 3 milljarðar kr. í fyrrnefndu bréfunum en 1,5 milljarða kr. í þeim síðarnefndu. 22.4.2009 12:16
Gallerí 101 Projects lokar vegna kreppunnar Eigendur 101 Projects hafa sent frá sér tilkynningu um að starfsemi 101 Projects, áður 101 Gallery, verður lögð niður um óákveðinn tíma vegna krappra aðstæðna í þjóðfélaginu en opnar vonandi að nýju með betri tíð. 22.4.2009 12:04
Skuldatryggingaálag Íslands hátt en fer lækkandi Skuldatryggingaálag til fimm ára fyrir íslenska ríkið, sem við hrun bankanna í fyrra fór úr 4% í nærri 15% stóð í nærri 11% í mars síðastliðnum. Nú er það komið í 8,5%. 22.4.2009 11:32
Hörðustu andstæðingar ESB ættu að styðja aðildarviðræður „Hugmyndin um ESB-aðild mun verða uppi á borðinu allt þar til búið verður að fara í gegnum aðildarviðræður og bera þær undir þjóðina. Fyrir andstæðinga aðildar ætti það að vera kappsmál að farið verði í aðildarviðræður sem fyrst, svo hægt sé að hefjast handa og ræða um tillögur þeirra, ESB-andstæðinganna, til lausnar efnahagsvandans." 22.4.2009 11:11
Gengi bréfa Century Aluminum lækka í byrjun dags Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, lækkaði um 1,41 prósent í tvennum viðskiptum upp á 441 þúsund krónur í Kauphöllinni við upphaf dags. Þetta er jafnframt eina hreyfing dagsins. 22.4.2009 10:29
Ferðaþjónusta á landsbyggðinni fær 100 milljónir í styrki Iðnaðarráðuneytið hefur úthlutað 100 milljónum kr. til ýmissa verkefna í ferðaþjónustu á landsbyggðinni. Alls sóttu 210 aðilar um styrkina en úthlutunin nær til 46 aðila. 22.4.2009 10:17
Skipti tapaði 6,4 milljörðum á síðasta ári Tap var af rekstri Skipta á síðasta ári og nam það 6,4 milljörðum kr. Óhagstæð gengisþróun íslensku krónunnar skýrir að miklu leyti tap félagsins, þrátt fyrir gengisvarnir, auk virðisrýrnunar óefnislegra eigna. 22.4.2009 09:31
Lítill halli á vöruskiptunum í fyrra Út er komið heftið Utanríkisverslun með vörur 2008. Í ritinu kemur m.a. fram að fluttar voru út vörur fyrir 466,9 milljarða króna en inn fyrir 473,5 milljarða króna. Halli var því á vöruskiptunum við útlönd sem nam 6,7 milljörðum króna. 22.4.2009 09:16
ESB íhugar að taka upp íslenskættað kvótakerfi Samkvæmt drögum að nýrri skýrslu Evrópubandalagsins (ESB) um fiskveiðistefnu sambandsins er meðal annars velt upp þeim möguleika að ESB taki upp kvótakerfi að íslenskri fyrirmynd. 22.4.2009 08:37
Íslandsbanki fjármagnar byggingu skóla á Fljótsdalshéraði Íslandsbanki og Fljótsdalshérað hafa gert með sér samning um fjármögnun á ný- og endurbyggingu við Grunnskólann á Egilsstöðum. Verkefnið er eitt það stærsta sem sveitarfélagið hefur ráðist í en gert er ráð fyrir að nýja byggingin verði rúmir fjögur þúsund fermetrar að flatarmáli. 22.4.2009 08:07
Hamfarir síðasta árs voru Seðlabankanum erfiðar Hamfarir alþjóðlegu fjármálakreppunnar, gjaldeyriskreppa Íslands og fall fjármálakerfisins endurspeglast í reikningum Seðlabankans fyrir síðasta ár sem lagðir voru fram á ársfundi bankans fyrir helgi. Lára V. Júlíusdóttir, formaður bankaráðs Seðlabankans, hóf enda erindi sitt á ársfundinum á því að benda á að síðasta ár hefði verið Seðlabanka Íslands þungt í skauti eins og öðrum stofnunum, fyrirtækjum og einstaklingum. 22.4.2009 06:00
Ríkisstjórnir verði djarfari í aðgerðum AGS segir ríkisstjórnir ekki mega hika við að taka yfir fjármálafyrirtæki. Ísland sagt dæmi um varasaman vítahring. 22.4.2009 00:01
Sex málum hefur verið vísað til FME Frá því lög um gjaldeyrishöft tóku gildi í lok nóvember síðastliðins hefur sex málum verið vísað til rannsóknar hjá Fjármálaeftirlitinu (FME) vegna gruns um brot á þeim. 22.4.2009 00:01
Gera út frá Danmörku „Flugfélagið er að vinna að því að tryggja sér flugrekstrarleyfi í Danmörku vegna þess að Ísland stendur utan Evrópusambandsins," segir Jón Karl Ólafsson, forstjóri flugfélagsins Primera Air. 22.4.2009 00:01
Frumtak fjárfestir í AGR Frumtak hefur keypt hlut í birgðastýringarfyrirtækinu AGR - Aðgerðagreiningu fyrir hundrað milljónir króna. Þetta er önnur fjárfesting sjóðsins í sprotafyrirtæki á árinu. Ekki liggur fyrir hversu stór hluturinn er en hann er árangurstengdur. Hin fjárfesting Frumtaks fyrir jafn háa upphæð var í hugbúnaðarfyrirtækinu Trackwell í febrúar. 22.4.2009 00:01
Smáralind vantar 5,3 milljarða „Reksturinn er traustur og við höfum gert mikið til að styðja við bakið á verslunum hér,“ segir Helgi M. Magnússon, framkvæmdastjóri eignarhaldsfélags Smáralindar. 22.4.2009 00:01
Símtöl dýrari eftir breytingar Miðað við almennar verðskrár símafyrirtækja má gera ráð fyrir að dulin verðhækkun felist í breyttri gjaldtöku eftir lengd símtala. Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) vekur athygli á þessu á vef sínum. 22.4.2009 00:01
Lífeyrissjóðurinn gildi tapaði 60 milljörðum Lífeyrissjóðurinn Gildi tapaði tæpum sextíu milljörðum á síðasta ári og réttindi skerðast um 10 prósent. Sjóðsfélagar segja að verði ekki fengnir óháðir aðilar til að fara yfir sjóðinn hóta þeir lögsókn á hendur stjórn og framkvæmdastjórn sjóðsins. 21.4.2009 20:06
Gengi Century Aluminum féll um 10 prósent Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, féll um tíu prósent í Kauphöllinni í dag. Þetta er jafnframt mesta lækkun dagsins. Á eftir fylgdi gengi bréfa í Marel Food Systems, sem fór niður um 1,54 prósent. 21.4.2009 18:03
Fjárfest í þremur fyrirtækjum frá Viðskiptasmiðjunni Fjárfestingarsjóðir sem sérhæfa sig í sprotafyrirtækjum hafa fjárfest þrisvar á árinu. Nýsköpunarsjóður Atvinnulífsins fjárfesti í Gogoyoko og Frumtak fjárfesti í Trackwell og AGR. Þessi fyrirtæki eiga það sameiginlegt að taka öll þátt í Viðskiptasmiðjunni - Hraðbraut nýrra fyrirtækja sem rekin er af Klak – Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins. 21.4.2009 14:59
Endurgreiða launaskerðingu starfsmanna Opinna kerfa ehf. Rekstur Opinna kerfa ehf. gekk það vel á fyrsta ársfjórðungi að stjórn félagsins hefur ákveðið að endurgreiða starfsmönnum Opinna kerfa ehf. þá launaskerðingu sem þeir tóku á sig þegar ófarirnar dundu yfir íslenskt efnahagslíf, fyrir þessa fyrstu þrjá mánuði ársins. 21.4.2009 14:41
Frumtak festir kaup á Aðgerðargreiningu ehf. Frumtak hefur lokið annarri fjárfestingu sinni og fest kaup á hlut í AGR - Aðgerðargreiningu ehf. AGR var stofnað árið 1998 í framhaldi af rannsóknarverkefnum við verkfræðideild Háskóla Íslands. Í nánu samstarfi við Rannís og Háskólann í Reykjavík hefur fyrirtækið undanfarin ár þróað aðferðir og hugbúnað fyrir alþjóðlegan markað. 21.4.2009 14:21
Viðskiptavinir Nova orðnir 40.000 talsins Viðskiptavinir Nova eru nú 40.000 talsins. Nova hefur því náð í kringum 12% hlutdeild á farsímamarkaði á því rúmlega einu og hálfa ári sem félagið hefur starfað, en það hóf 3G farsímaþjónustu 1. desember 2007. 21.4.2009 13:02
Lítið hreyfist af sérbýlum á íbúðamarkaðinum Þegar veltutölur af fasteignamarkaði eru skoðaðar kemur glögglega í ljós hversu lítil hreyfing hefur verið með sérbýli á íbúðarmarkaði undanfarna mánuði. 21.4.2009 12:16
Fallist á beiðni Teymi um nauðasamninga Héraðsdómur Reykjavíkur féllst í dag á beiðni Teymis hf. um heimild til þess að leita nauðasamnings við lánardrottna sína. Umsjónarmaður með nauðasamningsumleitunum var skipaður Brynjar Níelsson, hrl. Þetta segir í tilkynningu um málið. 21.4.2009 12:07
Engar viðskiptaforsendur fyrir raforkuafslætti til garðyrkju Undanfarna daga hefur víða heyrst krafa um að garðyrkjubændur fái keypta raforku á sama verði og stóriðjan. Engar viðskiptalegar forsendur eru fyrir þessum algenga samanburði við stóriðjuna, sem heyrist svo víða annars staðar, að mati Samorku. 21.4.2009 11:47
Hlutabréf Marel Food Systems lækka í byrjun dags Gengi hlutabréfa í Marel Food Systems hefur lækkað um 0,19 prósent í Kauphöllinni í dag. Tólf viðskipti upp á 62,3 milljónir króna skýrir lækkunina. Þetta er jafnframt eina hreyfingin á hlutabréfamarkaði það sem af er dags. 21.4.2009 10:52
Vísitala byggingarkostnaðar lækkar um 3,4% Vísitala byggingarkostnaðar, reiknuð um miðjan apríl 2009, er 474,2 stig sem er lækkun um 3,4% frá fyrri mánuði. Vísitalan gildir í maí 2009. 21.4.2009 09:14
FÍB spyr flokkana um aðgerðir vegna bílalána í erlendri mynt Í bréfi sem Félag íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, hefur sent öllum stjórnmálaflokkunum og -hreyfingum er m.a. spurt um hvort mótaðar hafi verið hugmyndir um viðbrögð við greiðsluerfiðleikum fólks vegna bílalána í erlendri mynt, til hvaða aðgerða sé fyrirhugað að grípa til og hvenær, til að leysa vanda þeirra sem eiga í erfiðleikum með það að standa í skilum með afborganir af þessum lánum. 21.4.2009 08:49
Spáir 1,5 prósentustiga stýrivaxtalækkun Hagfræðideild Landsbankans spáir því að stýrivextir muni verða lækkaðir um 1,5 prósentustig við næstu vaxtaákvörðun peningamálanefndar Seðlabankans þann 7. maí n.k. Yrðu vextirnir þá í 14% eftir lækkunina. 21.4.2009 08:39
Landsbankinn lækkar óverðtryggða vexti Til að létta undir með skuldsettum heimilum og fyrirtækjum hefur Landsbankinn ákveðið að taka enn eitt skref í lækkun óverðtryggðra vaxta. Landsbankinn hefur ákveðið að lækka alla óverðtryggða útlánsvexti bankans um 2 prósentustig og innlánsvexti um 1 til 2 prósentustig. 20.4.2009 16:23
Smáralind ehf. í miklum fjárhagserfiðleikum Samkvæmt ársreikningi Eignarhaldsfélagsins Smáralind ehf. uppfyllti félagið um áramótin ekki kröfur í lánasamningum um rekstrarhlutföll sem veitir lánveitendum heimild til gjaldfellingar lána. 20.4.2009 15:58
Bréf Century Aluminum féllu um 5,62 prósent í dag Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, féll um 5,62 prósent í viðskiptum upp á rúmar 140 þúsund krónur í Kauphöllinni í dag. Þetta er mesta fall dagsins. Á eftir fylgdi gengi Marel Food Systems, sem féll um 4,59 prósent. Þá lækkaði gengi bréfa í Össuri um 1,95 prósent og Færeyjabanka um 1,64 prósent. 20.4.2009 15:46
Segir hættu á að Íslandi verði sparkað út úr EES Eiríkur Bergmann Einarsson stjórnmálafræðingur segir á bloggsíðu sinni að línur eru nokkuð að skýrast í Evrópuumræðunni en það er þó einn flötur á málinu sem ekki hefur verið ræddur annars staðar en í pukurherbergjum stjórnarráðsins. Það er sú staðreynd, að eftir að neyðarlögin voru sett í sl. haust, uppfyllir Ísland ekki lengur skuldbindingar sínar á evrópska efnahagssvæðinu (EES). 20.4.2009 14:26
Spáir 11,1% verðbólgu í apríl Hagfræðideild Landsbankans spáir því að ársverðbólgan verði 11,1% í apríl og lækki því um 4,1% frá marsmánuði er hún mældist 15,2%. Þetta kemur fram í daglegu fréttabréfi deildarinnar. 20.4.2009 13:31
Samningar A4 og Pennans kunna að stangast á við lög Samtök iðnaðarins telja að nýir samningar sem fyrirtækin A4 og Penninn vilja einhliða gera við birgja, kunni að stangast á við lög. Málið var rætt á fundi í höfuðstöðvum samtakanna í morgun. 20.4.2009 12:30