Viðskipti innlent

Hagnaður botnfiskveiða og -vinnslu lækkaði í 13% árið 2007

Hagnaður botnfiskveiða og -vinnslu reiknaður samkvæmt árgreiðsluaðferð lækkaði úr 18½% árið 2006 í 13% árið 2007.

Þetta kemur fram í hefti Hagstofunnar í efnisflokknum Sjávarútvegur þar sem birtar eru niðurstöður athugana Hagstofunnar um hag fiskveiða og fiskvinnslu árið 2007.

Hreinn hagnaður botnfiskveiða lækkaði úr 16½% af tekjum í 12½% en hagnaður botnfiskvinnslu lækkaði úr 9½% af tekjum í 3½%. Hagnaður var áfram á rekstri mjölvinnslu og á rekstri loðnuskipa á árinu 2007.

Heildareignir sjávarútvegs í árslok 2007 voru 435 milljarðar króna, heildarskuldir 325 milljarður og eigið fé 110 milljarðar.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×