Langtímalán LS jukust um 11,5 milljarða í fyrra 28. apríl 2009 09:51
Útborguð langtímalán 2008 hjá Lánasjóði sveitarfélaga (LS) námu 15.5 milljörðum kr. miðað við 4 milljarða kr. árið áður. Jukust lánin því um 11,5 milljarða kr. á árinu. Þetta kemur fram í viðauka við viðbótarupplýsingar sem LS sendi kauphöllinni í dag vegna skuldabréfaútgáfu í október s.l. Þar segir að lántökur á árinu voru samtals 16.5 milljarðar kr. og voru 5.4 milljarðar kr. þar af í erlendum gjaldmiðlum eða 33%. Aðstæður á lánamörkuðum voru einstakar, innlent bankakerfi hrundi og verðbréfa- og gjaldeyrismarkaðir lokuðu um skemmri og lengri tíma. Við þetta bættust mikil lóðaskil sem leiddu til mikils útflæðis fjár hjá nokkrum sveitarfélögum. Skammtímalánveitingar sjóðsins námu rúmlega 6.1 milljarði kr. á árinu samanborið við 5. Milljarða kr. árið áður. Engin vanskil voru hjá sjóðnum í árslok. Sjóðurinn hefur aldrei tapað útláni frá því að hann hóf starfsemi árið 1967 og hefur því engan afskriftareikning útlána í bókum sínum. Sjóðurinn hefur veð í tekjum sveitarfélaga sem tryggingu fyrir lánum sem þau taka og ábyrgðum sem þau veita. Ekki þurfti að grípa til veðs í tekjum á árinu. Lánasjóðurinn hefur í gegnum tíðina ekki verið með teljandi gjaldeyris- eða vaxtaáhættu í rekstri sínum. Við hrun bankanna lokuðust gjaldeyrisvarnir sem sjóðurinn var með og er því óvarin gjaldeyrisstaða í árslok 4.2 milljarðar kr.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira