Kyrrsetningu eigna Glitnis í Noregi aflétt 28. apríl 2009 09:32
Í síðustu viku var aflétt kyrrsetningu á eignum Glitnis í Noregi sem staðið hefur frá falli bankans í byrjun október í fyrra. Með þessari niðurstöðu fær skilanefnd bankans óskorað forræði yfir eignum hans í Noregi, sem eru að andvirði um eitt hundrað milljarðar íslenskra króna. Árni Tómasson formaður skilanefndar Glitnis segir í tilkynningu að þessi niðurstaða sé mikilvæg því með henni sé ljóst að hægt verður að standa við allar skuldbindingar bankans í Noregi og hámarka þannig virði eigna. Jafnframt tryggi hún að jafnræðis sé gætt á milli kröfuhafa en þeir sem kröfðust kyrrsetningarinnar í Noregi þurfa nú eins og aðrir að beina kröfum sínum í þrotabúið á Íslandi og hugsanlegur ágreiningur verður leystur fyrir íslenskum dómstólum. Upphaflega voru það þrír aðilar sem kröfðust kyrrsetningar á eignum Glitnis í Noregi og urðu norskir dómstólar við þeirri kröfu. Skilanefnd Glitnis óskaði eftir því að krafan yrði tekin til efnislegrar meðferðar og fóru málaferli fram fyrir undirrétti í Þrándheimi í janúar síðast liðnum. Rétturinn hafnaði kyrrsetningarkröfunni og var þeirri niðurstöðu áfrýjað af þýska bankanum KFW. Aðrir kröfuhafar féllu frá kröfum sínum um kyrrsetningu og í þann mund sem málaferli áttu að hefjast fyrir áfrýjunarrétti í síðustu viku, féll KFW bankinn einnig frá kyrrsetningarkröfu sinni. Í framhaldinu hefur allri kyrrsetningu á eignum Glitnis í Noregi nú verið aflétt.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Sjá meira