Fleiri fréttir

Félag í eigu Bjarna krefst 130 milljóna úr búi Glitnis

Sjávarsýn ehf., félag í eigu Bjarna Ármannssonar, gerir 129,5 milljóna króna kröfu í þrotabú Glitnis. Þetta kemur fram í kröfuskrá bankans sem birt var kröfuhöfum í nótt. Krafan fellur undir almennar kröfur. Bjarni var bankastjóri Glitnis til ársins 2007.

Landsbankinn með hæstu kröfurnar í Glitni

Landsbankinn gerir hæstu kröfurnar í Glitni af innlendum aðilum eða samtals tæplega 140 milljarða kr. Hinsvegar á Glitnir í Lúixemborg stærstu einstöku kröfuna en hún hljóðar upp á 126,4 milljarða kr.

Birna gerir 12,5 milljóna kröfu í þrotabú Glitnis

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, er ein af fjölmörgum fyrrverandi starfsmönnum Glitnis sem gerir kröfu í þrotabú bankans. Samkvæmt kröfuhafalista Glitnis sem fréttastofa hefur undir höndum nema kröfur Birnu rétt tæpum 12,5 milljónum króna.

Tæplega 8.700 kröfum lýst í þrotabú Glitnis

Allir sem sátu í framkvæmdastjórn Glitnis, fram að gjaldþroti bankans fyrir rúmu ári, gera kröfur í þrotabú hans en tæplega 8.700 kröfum var lýst í búið, samkvæmt tilkynningu frá Slitastjórn Glitnis í gærkvöldi.

Fjárfestar kjósa ríkisskjólið

Fjárfestar hafa fengið góða ávöxtun á íslensk skuldabréf á þessu ári, eða allt frá átján til 21 prósents að meðaltali. Þetta á við um alla skuldabréfaflokka, að sögn Magnúsar Harðarsonar, forstöðumanns viðskiptasviðs Kauphallarinnar.

Vilja snúa kreppudraug niður

Ríkisstjórn Japans samþykkti í gær að veita 7.200 milljörðum jena inn í hagkerfið til að hvetja til neyslu og koma í veg fyrir að landið lendi aftur í krumlum kreppunnar. Þetta jafngildir tíu þúsund milljörðum króna. Hagvöxtur í Japan var neikvæður í fyrra og fram á annan ársfjórðung á þessu ári þegar hann var jákvæður um 0,9 prósent.

Samstaða um fjárhagsáætlun

114 milljóna króna afgangur verður á rekstri A hluta Dalvíkurbyggðar á næsta ári. Að teknu tilliti til halla á B hlutanum verður afgangur bæjarfélagsins 95 milljónir, samkvæmt fjárhagsáætlun 2010.

Vandræðaástand skapast um áramótin vegna nýja skattkerfisins

Garðar Valdimarsson, fyrrverandi ríkisskattstjóri, óttast að vandræðaástand muni skapast um áramótin þegar farið verði að greiða laun eftir nýju skattkerfi. „Þetta eru gríðarlega miklar breytingar vegna þessa að við höfum verið með eitt skattþrep undanfarin ár," segir Garðar en rætt var við hann í seinnifréttum Ríkissjónvarpsins.

Kaupþingsdómurinn sendir sterk skilaboð

Dómstólar virðast með dómnum vilja marka þáttaskil og senda sterk skilaboð út í þjóðfélagið. Þetta segir Jónatan Þórmundsson, sérfræðingur í refsirétti og fyrrverandi ríkissaksóknari, um 8 mánaða fangelsisdóm yfir tveimur fyrrverandi starfsmönnum Kaupþings.

Össur hækkaði 2,21%

Össur hækkaði um 2,21% í dag í viðskiptum sem námu samtals tæpum 23 milljónum króna. Marel hækkaði um 1,45% og Century Aluminum Company lækkaði um 1,87%.

LÍÚ: Reglur sjávarútvegsráðherra brot á samningi við ESB

Framkvæmdastjóri LÍÚ, Friðrik J. Arngrímsson, segir nýjar reglur sjávarútvegsráðherra um 5% álag til aflamarks á útflutning ísfisks frá og með 1. janúar næstkomandi fela í sér mismunun. Þær séu jafnframt brot á samningi Íslands og ESB um bættan markaðsaðgang fyrir sjávarafurðir.

Dómsniðurstaðan vonbrigði fyrir verjanda

„Dómsniðurstaðan er vonbrigði og við erum að skoða hvort við áfrýjum," segir Hákon Þorsteinsson, lögmaður Stefnis Agnarssonar, fyrrverandi verðbréfamiðlara hjá Kaupþingi.

Rembrandt málverk slegið fyrir 4 milljarða í London

Rúmlega 4 milljarðar kr. var verðið sem óþekktur kaupandi greiddi fyrir málverk eftir Rembrandt á uppboði hjá Christie´s í London í vikunni. Þetta er hæsta verð sem borgað hefur verið fyrir Rembrandt verk í sögunni.

Aukin sókn í leiguhúsnæði, samningum fjölgar um 47%

Alls var þinglýst 764 leigusamningum nú í nóvembermánuði sem eru 12% aukning frá sama mánuði í fyrra. Á milli ára í heild er um 47% aukningu að ræða. Þessi aukning er í takt við þá þróun sem hefur verið á árinu sem lýsir sér í aukinni sókn í leiguhúsnæði.

Heimildir til starfsloka- og kaupaukasamninga takmarkaðar

Heimildir fjármálafyrirtækja til að gera starfslokasamninga og svokallaða kaupaukasamninga við starfsmenn og stjórnendur sína verða takmarkaðar, nái frumvarp um breytingar á lögum um starfsemi fjármálafyrirtækja fram að ganga.

Jólaverslunin virðist fara rólega af stað í ár

Jólaverslunin virðist fara rólega af stað. Sala á fötum og skóm jókst í nóvember frá mánuðinum á undan en samdráttur varð í öðrum vöruflokkum á föstu verðlagi. Þó ber að hafa í huga að í október voru fimm helgar en í nóvember voru þær fjórar.

Minni landflótti erlendra ríkisborgara en vænta mátti

„Það hefur vakið undrun margra hversu lítið innflytjendum hér á landi hefur fækkað núna í kreppunni. Um síðustu áramót voru 28.644 innflytjendur hér á landi eða 9% mannfjöldans. Á fyrstu níu mánuðum ársins fluttu 3.538 erlendir ríkisborgarar frá landinu en 2.793 til landsins þannig að innflytjendum hefur fækkað um 745 á tímabilin, eða um 2,6%."

Verstu jólagjafir opinberra stofnanna í Svíþjóð

Sænska vefsíðan chef.se hefur birt lista yfir verstu jólagafir opinberra stofnanna og fyrirtækja í Svíþjóð til starfsmanna sinna. Meðal þess sem þar er að finna er jólagjöf sænska tollsins til starfsmanna sinna í fyrra. Það var Ipod tæki en svo óheppilega vildi til að um ólöglegar smyglaðar eftirlíkingar var að ræða. Tollyfirvöld afsökuðu sig með að önnur stofnun hefði séð um kaupin fyrir þá.

FIH bankinn orðinn einn af stærstu eigendum Sjælsö Gruppen

FIH bankinn er nú orðinn einn af stærstu eigendum Sjælsö Gruppen sem er stærsta fasteignafélag Danmerkur. Eftir nýafstaðna hlutafjáraukningu hjá Sjælsö á FIH bankinn 17% í félaginu en stærsti hluthafinn er SG Nord Holding með 25% hlut.

Erlendar eignir Seðlabankans lækkuðu um rúma 100 milljarða

Erlendar eignir Seðlabanka Íslands námu 403 milljörðum kr. í lok nóvember samanborið við 506 milljarða kr. í lok október í ár. Erlendar skuldir Seðlabanka Íslands voru 185 milljarðar kr. í lok nóvember en voru 260 miljarðar kr. í lok október.

Auglýsingatekjur fjölmiðla námu tæpum 10 milljörðum í fyrra

Samanlagðar tekjur fjölmiðla af birtingu og flutningi auglýsinga, ásamt tekjum af kostun, námu ríflega 9,8 milljörðum króna á síðasta ári. Auglýsingatekjur miðlanna drógust saman um fimm af hundraði frá fyrra ári. Reiknað á meðalverðlagi ársins 2008 rýrnuðu auglýsingatekjurnar um 15 af hundraði.

Kaupþing ekki á bakvið sölu í Blacks Lesure

Töluvert stór hlutur í útiveruverslunarkeðjunni Blacks Lesure, eða 9,3%, var settur í sölu á markaðinum í London í gær. Kaupþing er stærsti eigandi keðjunnar með 29% hlut en var ekki að selja af honum þar sem dómsmál er í gangi um þennan eignarhlut milli Kaupþings og íþróttakeðjunnar Sports Direct.

Launahækkanir opinberra meiri en annara síðustu 15 mánuði

Síðustu fimm ársfjórðunga hafa launahækkanir opinberra starfsmanna verið meiri en starfsmanna á almennum vinnumarkaði. Þetta kemur fram í Hagsjá hagfræðideildar Landsbankans þar sem fjallað er um þróun launavísitölunnar en þær upplýsingar birti Hagstofan í gær.

Gjaldeyrissvik veikja gengi krónu verulega

Heildarfjárhæð viðskipta sem Seðlabankinn hefur til athugunar vegna brota á gjaldeyrisreglum er litlu lægri en verðmæti alls þorskútflutnings frá landinu fyrstu níu mánuði þessa árs.

Kaupþing tók 1998 yfir á leynifundi

Kaupþing tók yfir 1998, móðurfélag Haga, á leynilegum fundi í höfuðstöðvum bankans þann 20. október. Enginn af þáverandi stjórnarmönnum sat fundinn en þeim var öllum skipt út fyrir starfsmenn bankans síðar þann dag. Jóhannes í Bónus kom aftur inn í stjórnina sex dögum síðar eftir að hafa fengið frest til að koma með áætlun um endurfjármögnun félagsins.

Hætta á óeðlilegum ákvörðunum

Fjárfestingar Eignarhaldsfélags Samvinnutrygginga og síðar Fjárfestingafélaginu Giftar, voru áhættusamari en nauðsynlegt var og hætta á óeðlilegum ákvörðunum vegna innbyrðis tengsla manna sem þar véluðu um.

Sextán lífeyrissjóðir stofna fjárfestingarfélag

Fulltrúar sextán lífeyrissjóða innan vébanda Landssamtaka lífeyrissjóða stofnuðu formlega í dag Framtakssjóð Íslands, nýtt fjárfestingarfélag sem ætlað er að taka þátt í og móta fjárhagslega og rekstrarlega endurreisn íslensks atvinnulífs í kjölfar falls fjármálakerfisins.

Lítil viðskipti á markaði

Century Aluminum Company hækkaði um 0,98% á markaði í dag, en viðskiptin námu um 2,7 milljónum króna. Marel hækkaði um 0,49. Bréf í Bakkavör lækkuðu um 8,82% í viðskiptum sem námu 388 þúsund krónum. Gengisvísitalan hækkaði um 0,17%.

Glitnir þarf að láta Vilhjálm Bjarnason hafa gögn

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur úrskurðað að Glitni banka sé skylt að afhenda Vilhjálmi Bjarnasyni, formanns Félags fjárfesta, gögn sem fylgdu kröfulýsingu skilanefndar Glitnis í þrotabú Fons hf.

Sjávarútvegsráðherra setur 5% kvótaálag á gámafisk

Til að jafna stöðu þeirra sem ljúka vigtun sjávarafla hér á landi og þeirra sem vigta afla sinn erlendis hefur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Jón Bjarnason nú ákveðið að frá og með næstu áramótum skuli botnfiskafli sem fluttur er óunninn á markað erlendis án þess að hafa verið endanlega vigtaður og skráður í aflaskráningarkerfi Fiskistofu reiknaður með 5% álagi til aflamarks.

Sjá næstu 50 fréttir