Hætta á óeðlilegum ákvörðunum 8. desember 2009 18:43
Fjárfestingar Eignarhaldsfélags Samvinnutrygginga og síðar Fjárfestingafélaginu Giftar, voru áhættusamari en nauðsynlegt var og hætta á óeðlilegum ákvörðunum vegna innbyrðis tengsla manna sem þar véluðu um. Tugir þúsunda Íslendinga og raunar fjöldi fyrirtækja og kaupfélaga áttu réttindi í fjárfestingafélaginu Gift sem stofnað var í hittiðfyrra upp úr Eignarhaldsfélaginu Samvinnutryggingum. Félagið átti ýmsar eignir, til að mynda stóra hluti í Exista og Kaupþingi, Landsbanka einnig í Icelandair og fleiri félögum. Megnið af eignum þess gufaði upp í hruninu. Tapið í fyrra nam næstum sextíu milljörðum og eigið fé neikvætt um næstum fjörutíu. Eftir hrunið var Lagastofnun háskólans falið að fara yfir málefni félagsins, meðal annars að tilstuðlan Sambands Íslenskra samvinnufélaga. Stefán Már Stefánsson lagaprófessor lauk við skýrsluna í lok október. Hún verður kynnt í fulltrúaráði Eignarhaldsfélagsins síðar í mánuðinum. Stefán nefnir að áhætta í eignum félagsins hafi ekki verið dreifð, fremur hafi verið fjárfest fyrir háar fjárhæðir í tiltölulega fáum félögum. Einnig að stjórnendur og fyrirtæki sem í hlut áttu hafi í sumum tilvikum verið innbyrðis tengd. Hvort tveggja sé talið leiða til þess að áhætta af fjárfestingum hafi orðið meiri en ella auk þess sem viss hætta hafi skapast á óeðlilegum ákvörðunum. Hins vegar verði ekki annað séð en að félögunum hafi verið stjórnað í samræmi við tilgang þeirra. Einnig segir í skýrslunni að slíta hefði átt Samvinnutryggingum árið 1994, líkt og við greindum frá í gærkvöldi. Þar kemur meðal annars fram að slíta hefði átt Samvinnutryggingum þegar árið 1994. Fjallað er um hugsanlega bótaskyldu stjórnenda í skýrslunni, gagnvart eigendum félagsins, en hún talin vera fyrnd.
Tengdar fréttir Áttu að slíta starfsemi Samvinnutrygginga fyrir löngu Slíta hefði átt starfsemi Samvinnutrygginga sumarið 1994, að því er fram kemur í nýrri skýrslu Lagastofnunar Háskóla Íslands, sem unnin var fyrir Eignarhaldsfélag Samvinnutrygginga. Fjármunir félagsins hafa síðan meðal annars verið notaðir til fjárfestinga með Finni Ingólfssyni og til að kaupa Búnaðarbankann af íslenska ríkinu. 7. desember 2009 18:31 Skaðabótaskylda stjórnenda Samvinnutrygginga ehf. er fyrnd Skaðabótaskylda stjórnenda Eignarhaldsfélagsins Samvinnutrygginga er fyrnd, hafi hún verið fyrir hendi, að mati Lagastofnunar Háskólans. Þetta kemur fram í skýrslu um starfsemi Samvinnutrygginga, eignarhaldsfélags samvinnutrygginga og dótturfélaga, sem fréttastofa hefur undir höndum. 8. desember 2009 12:35 Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira
Áttu að slíta starfsemi Samvinnutrygginga fyrir löngu Slíta hefði átt starfsemi Samvinnutrygginga sumarið 1994, að því er fram kemur í nýrri skýrslu Lagastofnunar Háskóla Íslands, sem unnin var fyrir Eignarhaldsfélag Samvinnutrygginga. Fjármunir félagsins hafa síðan meðal annars verið notaðir til fjárfestinga með Finni Ingólfssyni og til að kaupa Búnaðarbankann af íslenska ríkinu. 7. desember 2009 18:31
Skaðabótaskylda stjórnenda Samvinnutrygginga ehf. er fyrnd Skaðabótaskylda stjórnenda Eignarhaldsfélagsins Samvinnutrygginga er fyrnd, hafi hún verið fyrir hendi, að mati Lagastofnunar Háskólans. Þetta kemur fram í skýrslu um starfsemi Samvinnutrygginga, eignarhaldsfélags samvinnutrygginga og dótturfélaga, sem fréttastofa hefur undir höndum. 8. desember 2009 12:35