Fleiri fréttir

Lítil starfsreynsla í bönkum og sparisjóðum

Nær helmingur starfsmanna í bönkum og sparisjóðum hafði fimm ára starfsreynslu eða minna. Um 20% hafði unnið þar í tvö ár eða minna. Þá voru karlar að jafnaði með um 40% hærri laun innan bankastofnanna en konur. Þetta kemur fram í kjarakönnun sem Capacent vann fyrir samtök starfsmanna fjármálastofnanna og greint er frá í Morgunblaðinu í dag.

Samþykktu 90 þúsund milljarða fjárveitingu

Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í dag björgunarpakka fyrir efnahagslífið að upphæð 787 milljarða Bandaríkjadala, eða 90 þúsund milljarðar króna, sem Barack Obama lagði fram. Obama segir að þetta sé einungis upphafið af tilraunum hans til að ná tökum á efnahagslífinu.

Lykilstjórnendur bera ekki ábyrgð á milljarðalánum

Lykilstjórnendur hjá Gamla Kaupþingi eru ekki ábyrgir fyrir háum lánum sem þeir fengu til hlutabréfakaupa í bankanum, samkvæmt ákvörðun stjórnar gamla bankans, sem enn stendur óbreytt þrátt fyrir að hafa verið í skoðun í fjóra mánuði.

Vilhjálmur Bjarnason er viðskiptafræðingur ársins

Vilhjálmur Bjarnason var kjörinn viðskiptafræðingur ársins á Íslenska þekkingardeginum 2009 sem fór fram í Salnum í Kópavogi í dag. Ráðstefnan var haldin á vegum Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga.

Straumur hækkaði um tæp 10,5 prósent í dag

Fjárfestingabankinn Straumur toppaði daginn í Kauphöllinni með gengishækkun upp á 10,46 prósent. Gengi bréfa í bankanum hafa verið á fleygiferð upp á síðkastið og rokið upp um 131 prósent á rétt rúmum mánuði.

easyjet hagnast á gjaldþroti Sterling

Eins dauði er annars brauð gildir í flugbransanum eins og annarsstaðar. Nú hefur easyjet ákveðið að hefja áætlunarferðir milli Gatwick og Kaupmannahafnar en Sterling flaug þessa leið áður en félagið varð gjaldþrota.

Öll listaverk í eigu bankanna verði eign ríkisins

Búið er að leggja fram frumvarp á alþingi um að öll listaverk í eigu bankanna þriggja Landsbankans, Kaupþings og Glitnis verði hér eftir í eigu ríkisins. Sama gildi um listaverk í nýju bönkunum.

Velta í dagvöruverslun dregst saman um 6,8%

Velta í dagvöruverslun dróst saman um 6,8% á föstu verðlagi í janúar miðað við sama mánuð árið áður. Velta í dagvöruverslun hefur ekki verið minni frá því í byrjun árs 2007 að raunvirði þó neytendur verji mun fleiri krónum til innkaupanna en áður.

Íhuga lögreglurannsókn á íslensku bönkunum í Bretlandi

Efnahagsbrotadeild lögreglunnar í Bretlandi (Serious Fraud Office) er nú að íhuga rannsókn á starfsemi Kaupþings og Landsbankans þar í landi. Fram kemur á Timesonline að deildin byrjaði rannsókn á dótturfélagi AIG Í Bretlandi í gær og að Kaupþing og Landsbankinn gætu verið næst á listanum.

Áform um að létta gjaldeyrishömlum í fyrstu endurskoðun AGS

Heildarmat á skilvirkni hamlanna á gjaldeyrismarkaði og áform um að aflétta þeim smám saman verður hluti af fyrstu endurskoðun efnahagsáætlunar stjórnvalda sem unnin er í samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (AGS) núna í febrúar.

Um 90% félaga í Viðskiptaráði vilja nýja stjórn í SÍ

Í nýlegri viðhorfskönnun sem gerð var á vegum Viðskiptaráðs kom fram að um 9 af hverjum 10 aðildarfélögum töldu nauðsynlegt að stokka upp í ríkisstjórn og gera mannabreytingar hjá Seðlabanka Íslands (SÍ) og Fjármálaeftirlitinu á þeim tíma sem könnunin var framkvæmd.

Fulltrúi AGS á Íslandi er ríkisborgari í Swazilandi

Franek Rozwadowski sem skipaður hefur verið fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) á Íslandi er með tvöfaldan ríkisborgararétt. Annarsvegar frá heimalandi sínu, Póllandi, og hinsvegar í Swazilandi í Afríku.

NBI stofnar sérstakt félag um hlutabréfaeign sína

NBI hf., áður Landsbankinn, hefur stofnað fjárfestingarfélagið Horn Fjárfestingarfélag ehf. utan um hlutabréfaeign bankans. Framkvæmdarstjóri félagsins hefur verið skipaður Ívar Guðjónsson.

Enn hækkar gengi bréfa í Straumi

Gengi hlutabréfa í Straumi hækkaði um fjögur prósent í Kauphöllinni í dag og bréf Century Aluminum, móðurfélags Norðuráls, um 2,7 prósent. Önnur hreyfing er ekki á íslenskum hlutabréfamarkaði.

Verðmæti sjávarafurða eykst en aflinn minnkar

Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum janúarmánuði, metinn á föstu verði, var 33% meiri en í janúar 2008. Aflinn nam alls 70.852 tonnum í janúar 2009 samanborið við 76.891 tonn í janúar 2008.

Forstjóraskipti í bresku kauphöllinni

Frakkinn Xavier Rolet, fyrrum framkvæmdastjóri bandaríska Lehman Brothers í Frakklandi, mun setjast í forstjórastól bresku kauphallarinnar í Lundúnum (e. London Stock Exchange) um miðjan næsta mánuð.

Kaupþing og bankar framlengja aftur lán til JJB Sports

Kaupþing, HBOS og Barclays hafa ákveðið að framlengja lánum sínum til íþróttavörukeðjunnar JJB Sports. Íslenska ríkið er nú einn stærsti hluthafi JJB Sports eftir að Kaupþing leysti til sín tæplega 30% hlut Exista og Chris Ronnie nýlega með veðkalli.

Toyota í Bandaríkjunum lækkar launin

Lækkuð laun, styttur vinnutími og engin framleiðsla í nokkra daga í apríl er sá veruleiki sem blasir við starfsmönnum Toyota í Bandaríkjunum.

Hækkun á Asíumörkuðum

Hlutabréf á Asíumörkuðum hækkuðu í verði í morgun í fyrsta sinn í fimm daga og hækkuðu bréf banka og raftæknifyrirtækja mest.

Væru í sporum Íslendinga án evru

Írland væri í sporum Íslands ef ekki væri fyrir aðild að evrunni, hefur Irish Times eftir José Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.

Markaðir réttu sig við í Bandaríkjunum

Helstu hlutabréfavísitölur í Bandaríkjunum réttu sig við eftir fall eftir að markaðir opnuðu. Hlutabréfamarkaður tók dýfu eftir að atvinnuleysistölur voru birtar í dag þrátt fyrir almennt ágætar niðurstöður um eins prósents veltuaukningu í smásölugeiranum á milli mánaða í janúar. Atvinnuleysi hefur ekki mælst meira vestanhafs í sextán ár.

Eðlilega staðið að rekstri Tals

Teymi mótmælir harðlega fullyrðingum um að félagið hafi staðið óeðlilega að rekstri Tals. Fullyrðingar um að Teymi hafi hlutast til um verkefni stjórnar eftir að fulltrúar Samkeppniseftirlitsins tóku þar sæti eru stórlega orðum auknar, að fram kemur í tilkynningu frá Teymi sem Þórdís J. Sigurðardóttir og Ólafur Þ. Jóhannesson skrifa undir. Einu afskipti Teymis af stjórnarsetu hinna óháðu stjórnarmanna fólust í áréttingu félagsins um að lögum væri fylgt í hvívetna.

Bakkavör leiddi lækkun í Kauphöllinni

Gengi hlutabréfa í Bakkavör féll um 13,94 prósent í dag og er það mesta fallið. Á eftir fylgdi gengi hlutabréfa í Marel Food Systems, sem féll um 5,37 prósent. Þá lækkaði gengi bréfa stoðtækjafyrirtækisins Össurar um 1,84 prósent.

Greiðslustöðvun Baugs snertir ekki Haga

Greiðslustöðvun Baugs hefur ekki áhrif á rekstur Haga, segir Finnur Árnason, forstjóri fyrirtækisins, í orðsendingu til fjölmiðla. Finnur segir að Hagar séu sjálfstætt félag, með sjálfstæðan rekstur og efnahag.

Íhuga frekari aðgerðir gegn Teymi

Þær ástæður sem stjórnarmenn tilnefndir af Samkeppniseftirlitinu í stjórn IP fjarskipta eða Tals, gáfu fyrir úrsögn sinni í gær gefa tilefni til grunsemda um áframhaldandi brot Teymis gagnvart Tali og samkeppnislegu sjálfstæði þess að sögn Páls Gunnars Pálssonar forstjóra Samkeppniseftirlitsins.

Atvinnuleysi ekki meira vestanhafs í 16 ár

Atvinnuleysi jókst verulega í Bandaríkjunum í janúar og mælist nú 7,6 prósent. Niðurstaðan er talsvert umfram svartsýnustu spár enda hefur atvinnuleysi ekki verið meira vestanhafs í sextán ár.

Írland er ekki Ísland

Írland væri í sporum Íslands ef ekki væri fyrir aðild að evrunni. Þetta segir José Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, í samtali við Irish Times.

Segist ekki halda verslunarkeðjum Baugs til eilífðar

Tony Lomas, stjórnandi hjá PricewaterhouseCoopers (PwC) segir að það sé ekki ætlunin að halda verslunarkeðjum Baugs til eilífðar. Þær verði seldar um leið og markaðsaðstæður batni enda vilji kröfuhafar fá fé í hendur fremur en eignarhluti.

Fulltrúar Samkeppniseftirlitsins hættir í stjórn Tals

Stjórnarmenn sem Samkeppniseftirlitið tilnefndi í stjórn IP fjarskipta, eða Tals, þann 6. febrúar síðastliðinn hafa báðir sagt sig úr stjórninni. Þeir Þórhallur Örn Guðlaugsson og Hilmar Ragnarsson tóku sæti í stjórninni í stað fulltrúa Teymis að kröfu Samkeppniseftirlitsins.

Moody´s lækkar lánshæfi gamla Glitnis í C

Matsfyrirtækið Moody's Investor Services tilkynnti í gær að það hefði lækkað lánshæfiseinkunn sína á langtímaskuldbindingum Glitnis úr Caa1 í C, einkunn fyrir skammtímaskuldbindingar og fjárhaglegan styrkleika staðfestar.

Bréf í Asíu lækka

Hlutabréf á Asíumörkuðum féllu í verði í morgun, fjórða daginn í röð, og stafar lækkunin af efasemdum fjárfesta um að ný björgunaráætlun Bandaríkjastjórnar nægi til að draga þarlent efnahagslíf á flot aftur.

Sjá næstu 50 fréttir