Segir stóra U-beygju tekna gegn atvinnulífinu 13. febrúar 2009 13:25
Stór U-beygja gagnvart atvinnulífinu er tekin í fyrstu skýrslu nefndar um endurreisn fjármálakerfisins sem kynnt var á blaðamannafundi 11. febrúar. Þetta kemur fram í grein sem Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins hefur birt á heimasíðu samtakanna. Þar segir Vilhjálmur að meginatriðin í tillögugerð nefndarinnar ganga í veigamiklum atriðum gegn stefnumörkun þáverandi ríkisstjórnar frá 2. desember 2008 um aðgerðir í þágu fyrirtækja sem unnin var í samráði við Samtök atvinnulífsins, Alþýðusamband Íslands og fleiri hagsmunaaðila. „Meginatriðin í tillögum nefndar ríkisstjórnarinnar undir formennsku Mats Josefssonar eru að koma á fót eignasýslufélagi á vegum ríkisins til þess að endurreisa stærri fyrirtæki. Ríkinu er ætlað að eiga bankana og þau boð látin út ganga að viðskipti eigi ekki að ganga fyrir sig með sama hætti og áður. Stjórnendum bankanna er jafnframt bent á að gera sér grein fyrir hlutverki sínu við að koma stefnumótun ríkisstjórnarinnar í framkvæmd. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu forsætisráðuneytisins. Yfirlýsing þáverandi ríkisstjórnar frá 2. desember sl. var um margt niðurstaða af fjölmörgum fundum sem haldnir voru í október og nóvember í samstarfi Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands. Á þessum fundum var m.a. hvatt til þess að bankarnir settu sér skýrar viðmiðunarreglur um vinnubrögð við uppstokkun fyrirtækja. Haft var náið samráð við Samkeppniseftirlitið um málið og stofnunin gaf út sérstakar leiðbeiningar til bankanna sem byggðu á niðurstöðum úr samvinnu og samráði allra aðila. Eitt lykilatriðið í þeim tillögum sem fram komu á fundunum var að bankarnir skyldu stofna sérstök opin umsýslufélög vegna eignarhalds á fyrirtækjum til að tryggja aðskilnað milli hlutverks banka sem eiganda annars vegar og viðskiptabanka hins vegar. Mikil áhersla var lögð á að tryggja að samkeppni gæti haldist í atvinnulífinu og að eignarhald bankanna skapaði ekki tortryggni um mismunun milli viðskiptavina. Nú er tekin U-beygja. Í stað þess að vinna út frá því að dreifa sem mest eignarhaldi á fyrirtækjum miðað við þá þröngu stöðu sem upp er komin og leggja drög að nýrri uppbyggingu á virkum og trúverðugum hlutabréfamarkaði sem er algjör nauðsyn fyrir öflugt atvinnulíf er tekin þveröfug stefna. Eignasýslufélag á vegum ríkisins á að taka yfir stærstu fyrirtækin og stýra endurskipulagningu þeirra. Burt með öll samkeppnissjónarmið á einu bretti. Burt með uppbyggingu hlutabréfamarkaðsins. Burt með fagmennsku og góða stjórnarhætti. Inn með pólitíkina. Þetta er boðskapurinn."
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira