Lykilstjórnendur bera ekki ábyrgð á milljarðalánum 13. febrúar 2009 21:35
Lykilstjórnendur hjá Gamla Kaupþingi eru ekki ábyrgir fyrir háum lánum sem þeir fengu til hlutabréfakaupa í bankanum, samkvæmt ákvörðun stjórnar gamla bankans, sem enn stendur óbreytt þrátt fyrir að hafa verið í skoðun í fjóra mánuði. Starfsmenn Gamla Kaupþings fengu um 50 milljarða króna að láni hjá bankanum til þess að kaupa í honum hlutabréf. Þann 25. september, örfáum dögum fyrir bankahrunið, ákvað stjórn Gamla Kaupþings að fella niður persónulegar ábyrgðir starfsmanna fyrir þessum skuldum. Rök stjórnarinnar fyrir þessari ákvörðun voru að með þessu væri verið að koma í veg fyrir að lykilstarfsmenn seldu hluti sína en það hefði haft slæm áhrif á stöðu bankans. Ákvörðunin vakti hörð viðbrögð og áminnti til að mynda Kauphöllin Gamla Kaupþing opinberlega fyrir að hafa ekki tilkynnt ákvörðunina. Í tilkynningunni frá Kauphöllinni kom einnig fram að ekki yrði séð að þetta teldist til venjulegra viðskiptahátta. Í nóvember á síðasta ári hóf nýja stjórn bankans að skoða hvort lagalegar forsendur væru fyrir því að rifta ákvörðun gömlu stjórnarinnar og var farið yfir málið á fundi með viðskiptanefnd Alþingis. Nú tæpum fjórum mánuðum síðar hefur engin niðurstaða fengist í málið. Í samtali við fréttastofu sagði Helga Jónsdóttir, stjórnarmaður í Nýja Kaupþingi, að málið væri enn í lögfræðilegri vinnslu. Það væri keppikefli allra að ljúka því eins fljótt og auðið er og er vonast til að niðurstaða liggi fyrir fljótlega.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira