Viðskipti innlent

Skýrslu SÍ um áhrif kreppunnar á efnahag heimila og fyrirtækja beðið

Fyrstu niðurstöður úr umfangsmikilli upplýsingaöflun Seðlabankans um áhrif kreppunnar á efnahag heimila og fyrirtækja ættu að koma í ljós innan fárra vikna. Þetta segir Arnór Sighvatsson, aðalhagfræðingur bankans í Fréttablaðinu í dag.

Starfshópur bankans hefur hingað til unnið að gagnaöflun en nú er byrjað að skila gögnum inn. Upplýsingarnar eiga að varpa betra ljósi á stöðu lánþega og er starfshópnum ætlað að meta getu heimila og fyrirtækja til að standa undir stóraukinni greiðslubyrði. Leyfa hefur aflað hjá persónuvernd og hefur ítarlegum skilgreiningum hennar á verkferlum verið fylgt eftir. Þetta hefur tafið gerð greiningarinnar.  

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir að beðið sé eftir þessum upplýsingum með óþreyju en greining Seðlabankans mun mynda grunn undir ýmsar aðgerðir stjórnvalda sem eru í undirbúningi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×