Um 90% félaga í Viðskiptaráði vilja nýja stjórn í SÍ 13. febrúar 2009 10:55
Í nýlegri viðhorfskönnun sem gerð var á vegum Viðskiptaráðs kom fram að um 9 af hverjum 10 aðildarfélögum töldu nauðsynlegt að stokka upp í ríkisstjórn og gera mannabreytingar hjá Seðlabanka Íslands (SÍ) og Fjármálaeftirlitinu á þeim tíma sem könnunin var framkvæmd. Fjallað er um málið á vefsíðu ráðsins. Þar segir að traust til stjórnsýslu, stjórnvalda og Alþingis hefur beðið talsverða hnekki í því umróti sem fylgt hefur falli bankanna. Ein birtingarmynd þessarar stöðu voru háværar kröfur um gagngerar breytingar innan ríkisstjórnar og ákveðinna stofnana hins opinbera. Ríkjandi vantraust undanfarinna vikna og mánaða hefur komið í veg fyrir skjóta og skilvirka ákvarðanatöku og hefur staðið nauðsynlegu uppbyggingarstarfi fyrir þrifum. Eins og þekkt er þá hafa talsverðar breytingar þegar orðið í þessum efnum þar sem ný ríkisstjórn hefur tekið við völdum og ýmsir embættismenn horfið frá störfum. Til viðbótar hefur verið boðað til Alþingiskosninga nú í vor. „Með þessu má gera ráð fyrir að öldur vantrausts og tortryggni lægi tímabundið en hér skiptir þó öllu að ekki sé tjaldað til einnar nætur. Nýta þarf tímann fram að kosningum til að leggja grunn að endurreisn hagkerfisins og fylgja þeirri vinnu eftir með markvissum hætti í kjölfar kosninga, hver sem niðurstaða þeirra verður.Sá grunnur verður ekki lagður nema þingheimur sameinist um aðgerðir sem miða að því að um starfsemi hins opinbera ríki víðtækt traust. Þetta traust verður að ríkja jafnt gagnvart sitjandi ríkisstjórn hverju sinni sem og öðrum fulltrúum hins opinbera, s.s. stjórnar Fjármálaeftirlitsins, stjórnar Seðlabankans, stjórnenda ríkisbankanna og annarra embættismanna," segir m.a. um málið.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira