Fleiri fréttir

Atvinnuleysi í janúar það mesta frá árinu1995

Skráð atvinnuleysi í janúar 2009 var 6,6% eða að meðaltali 10.456 manns og eykst atvinnuleysi um 32% að meðaltali frá desember eða um 2.554 manns. Atvinnuleysi hefur ekki verið jafn mikið frá því í janúar árið 1995 en þá var atvinnuleysi 6,8%. Á sama tíma á árinu 2008 var atvinnuleysi 1%, eða 1.545 manns.

Forsvarsmenn Baugs ánægðir með greiðslustöðvun

Baugur Group hf. fékk greiðslustöðvun í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Greiðslustöðvunin er veitt til fjórða mars næstkomandi. Stefán H. Hilmarsson, fjármálastjóri Baugs segist mjög ánægður með niðurstöðuna og segir að nú verði farið í að ná fram lausn með kröfuhöfum félagsins.

Seðlabankinn hleypir nýju vefriti af stokkunum

Ásgeir Daníelsson hagfræðingur ríður á vaðið í nýju vefriti Seðlabanka Íslands Efnahagsmálum. Birtingu höfundamerktra greina í Peningamálum hefur verið hætt en þær verða þess í stað birtar í vefritinu Efnahagsmálum jafnóðum og þær eru tilbúnar.

Innlend hlutabréfaeign lífeyrissjóðanna rýrnaði um 88%

Greining Glitnis segir að það veki litla undrun að af einstökum eignum lífeyrissjóðanna er það eign þeirra í innlendum hlutabréfum sem hefur tekið hvað mestum breytingum frá hruni bankanna. Eign þessi stóð í 239 milljörðum kr. í upphafi síðastliðins árs en var komin niður í tæplega 30 milljarða í lok árs. Lækkunin er 209 milljarða kr. eða 88%.

Skuldabréf Atorku færð á Athugunarlista í kauphöllinni

Skuldabréf útgefin af Atorku hafa verið færð á Athugunarlista í kauphöllinni vegna óvissu um fjárhagslega stöðu útgefanda með vísan til tilkynningar frá félaginu, dags. 11. febrúar 2009, um greiðsluerfiðleika félagsins.

Straumur fellur um tæp átta prósent

Gengi hlutabréfa í Straumi féll um 7,89 prósent við upphaf viðskiptadagsins á hlutabréfamarkaði í Kauphöllinni í dag. Þetta er mesta fall dagsins á annars rólegum degi.Gengi hlutabréfa í félaginu hafði hækkað um 45 prósent síðastliðna viku en um rúm hundrað prósent undangenginn mánuð.

Hagnaður Alfesca drógst saman um tæp 20%

Nettóhagnaður Alfesca á fjórða ársfjórðung síðasta árs nam 17,8 milljónum evra eða rúmlega 2,6 milljörðum kr. sem er 19,8% samdráttur m.v. sama ársfjórðung 2007.

Ríkið ber ábyrgð á lágmarksvernd innstæðna

Evrópuþjóðir munu seint taka undir að vafi kunni að leika á gildi tilskipunar Evrópusambandsins (ESB) um innstæðutryggingar. Yfirlýst meginmarkmið hennar er að allar innstæður einstaklinga í viðskiptabönkum á evrópska efnahagssvæðinu öllu skuli tryggðar upp að skilgreindu lágmarki, 20.887 evrum, eða sem svarar um þremur milljónum króna.

Gera hlutina sjálf

„Við ákváðum að taka uppgjör og greiðslumiðlun inn til okkar sjálf. Það er hagkvæmara og því réðum við til okkar fleira starfsfólk,“ segir Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Capital. Fyrirtækið hefur ráðið til sín sex nýja starfsmenn á sama tíma og vinnumarkaðurinn er svo til botnfrosinn.

Aukin hætta á greiðslufalli

Greiðslufallsáhætta Moody's á heimsvísu var 4,8 prósent í janúar, en var 1,1 prósent fyrir ári. Spá Moody's gerir ráð fyrir að greiðslufallsáhættan hækki hratt og verði 16,4 prósent í nóvember en lækki svo aftur aðeins í desember.

Landsbankinn varð af 48 milljörðum

Bankakreppur hægðu í tvígang á samþættingu fjármálafyrirtækja Landsbankans í Evrópu. Bankinn greip of seint til varúðarráðstafana áður en skellurinn dundi yfir.

Magnús krafinn um milljarð fyrir ógreiddan skatt

Skattayfirvöld krefja Magnúsi Þorsteinssyon um tæpan milljarð fyrir ógreiddan skatt af hagnaði við sölu á hlut hans í Samson eignarhaldsfélagi árið 2005. Félag á bresku Jómfrúareyjunum í eigu Magnúsar var skráð fyrir hlutnum. Magnús hyggst kæra málið til yfirskattanefndar.

Langtímahorfur Marels góðar

„Próforma rekstrarhagnaður (EBIT) af kjarnastarfsemi félagsins var 8,5% af veltu á árinu 2008 en áætlanir höfðu gert ráð fyrir að hann yrði 9%. Frávikið myndaðist allt á fjórða ársfjórðungi og má rekja til áhrifa alþjóðlegu fjármálakreppunnar á sölustarfsemi félagsins. Til að bregðast við breyttum aðstæðum á mörkuðum hefur þegar verið gripið til umfangsmikilla aðgerða til að lækka rekstrarkostnað félagsins. Starfsfólki hjá fyrirtækjum okkar erlendis var m.a. fækkað um 300 í lok árs og er kostnaður vegna þess gjaldfærður á fjórða ársfjórðungi,“ segir Hörður Arnarsson, forstjóri Marel Food Systems hf, í tilkynningu. Langtímahorfur fyrirtækisins eru góðar.

Baugur í greiðslustöðvun: Úrskurðar vænst á morgun

Dómari hefur ekki tekið afstöðu til óska Baugs Group Hf. um að félaginu verði veitt greiðslustöðvun. Dómþingi lauk í morgun og er beðið eftir úrskurði dómarans. Heimildir fréttastofu herma að von sé á úrskurði dómarans á morgun.

Skólabróðir Geirs Haarde verður fulltrúi AGS á Íslandi

Fréttastofa hefur fengið það staðfest að fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins(AGS) á Íslandi verður Franek Rozwadowski. Hann mun vera skólabróðir Geirs Haarde fyrrum forsætisráðherra frá því er báðir stunduðu nám við Brandeis háskólann.

Athugun FME á eigin viðskiptum Straums 2007 er lokið

Fjármálaeftirlitið (FME) hefur lokið athugun sinni á eigin viðskiptum með rúmlega 5% hlut í Straumi‐ Burðarás Fjárfestingarbanka hf., sem átti sér stað 17. ágúst 2007. Fyrirliggjandi upplýsingar gefi ekki tilefni til frekari afskipta af hálfu eftirlitsins sem lítur svo á að málinu sé lokið.

Franska forsetafrúin selur höll sína á Ítalíu

Arrivederci Ítalía og bonjour Frakkland. Franska forsetafrúin Carla Bruni hefur selt höll sína á Ítalíu til arabísk sheiks fyrir tæpa 1,4 milljarða kr.. Þar með hefur Bruni ákveðið að kveðja heimaland sitt en hún ólst upp í þessari höll.

Tvö af dótturfélögum JJB Sports komin í greiðslustöðvun

Tvö af dótturfélögum íþróttavöruverslunarkeðjunnar JJB Sports í Bretlandi eru komin í greiðslustöðvun. Gamla Kaupþing er nú stærsti hluthafinn í JJB Sports eftir að hafa gert veðkall í sameiginlegum hlut Exista og Chris Ronnie fyrrum forstjóra félagsins.

Áréttar að Þjóðverjar sem áttu inni í Kaupþingi fái greitt

Vegna ummæla Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands í þýsku útgáfunni af Financial Times hefur skilanefnd Kaupþings sent frá sér tilkynningu þar sem það er áréttað að þeir Þjóðverjar sem áttu fé inni á Edge-reikningum Kaupþings muni fá fé sitt endurgreitt.

Nær öllum sagt upp á skrifstofu Baugs í London

Nær öllum starfsmönnum á skrifstofu Baugs í London verður sagt upp í dag. Aðeins Jón Ásgeir Jóhannesson stjórnarformaður, Gunnar Sigurðsson forstjóri og Andrew Lobb forstöðumaður lagadeildar félagsins munu starfa þar áfram.

Kaupþing tekur yfir Heklu

Kaupþing hefur tekið yfir bílaumboðið Heklu með nauðasamningum við fyrrverandi eigendur, sem fá að halda eftir hluta af fyrirtækjasamsteypunni.

Lækka þarf stýrivexti hratt og fljótt

Það þarf að lækka stýrivexti hratt og fljótt, segja hagfræðingarnir Jón Daníelsson og Gylfi Zoega í ritgerð um hrun íslenska hagkerfisins. Þeir segja ástæður þess að fjármálakerfið hrundi vera afnám hafta, einkavæðingu bankanna og slakt fjármálaeftirlit.

Segir birgðastöðu HB Granda að ná eðlilegu jafnvægi

Eggert B. Guðmundsson forstjóri HB Granda hefur sent starfsfólki fyrirtækisins bréf þar sem hann fer yfir stöðu fyrirtækisins. Þar kemur m.a. fram að birgðastaðan fari batnandi og sé að færast nær eðlilegu jafnvægi.

Einar verður forstjóri Mjólkursamsölunnar

Einar Sigurðsson forstjóri Árvakurs mun láta af því starfi og taka við sem forstjóri Mjólkursamsölunnar. Þetta staðfesti Egill Sigurðsson stjórnarformaður MS í samtali við Vísi. Einar tekur við starfi forstjóra þann 1.apríl og mun starfa við hlið núverandi forstjóra til 1.maí og tekur þá alfarið við.

Misskilningur hjá forseta

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands komst í fréttirnar í Þýskalandi í morgun þegar hann sagði að Ísland ætti ekki greiða þeim sem töpuðu á innlánum Kaupþings í Þýskalandi. Þetta sagði hann við þýsku útgáfuna af Financial Times. Steinar Þór Guðgeirsson formaður skilanefndar Kaupþings segir þýska fréttamenn hafa sýnt málinu mikinn áhuga í morgun en einhver misskilningur sé í þessum orðum forsetans. Það hafi alltaf staðið til að greiða þessum innlánseigendum.

Fjárfestapar gerir tilboð í Carnegie bankann í Svíþjóð

Meðal áhugasamra kaupenda Carnegie bankans í Svíþjóð eru fjárfestaparið Patrik Enblad og Anders Böös að því er heimildir Dagens Industri herma. Þeir hafa áður sýnt Carnegie áhuga en eru nú með stuðning þriðja stærsta banka Sviss á bakvið sig.

Straumur hækkar mest í Kauphöllinni

Gengi hlutabréfa í Straumi hefur hækkað um 3,15 prósent í Kauphöllinni í dag en félagið er þar eitt á uppleið. Á sama tíma hefur gengi bréfa í Marel Food Systems lækkað um 1,14 prósent og í Össuri um 1,36 prósent.

Greiðslustöðvun Baugs: Ákvörðun dómara kynnt síðar í dag

Arngrímur Ísberg héraðsdómari mun tilkynna síðar í dag hvort hann fallist á beiðni Baugs Group hf. um greiðslustöðvun. Málinu var frestað í síðustu viku en tekið fyrir að nýju í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Upphaflega var farið fram á greiðslustöðvun í Baugi Group og nokkrum tengdum félögum en í morgun féllu Baugsmenn frá beiðni um greiðslustöðvun tengdra félaga þannig að beiðnin um greiðslustöðvun hjá Baugi Group stóð ein eftir.

SI veitir umtalsverðu fé til mennta- og nýsköpunar

Á morgun 11. febrúar á Menntadegi iðnaðarins 2009 verður kynnt ákvörðun stjórnar Samtaka iðnaðarins (SI) um að verja umtalsverðum fjármunum til ákveðinna verkefna á sviði menntamála og nýsköpunar á næstu þremur árum. Veittir verða nokkrir styrkir til stofnana og verkefna.

Sjá næstu 50 fréttir