Velta í dagvöruverslun dregst saman um 6,8% 13. febrúar 2009 14:02
Velta í dagvöruverslun dróst saman um 6,8% á föstu verðlagi í janúar miðað við sama mánuð árið áður. Velta í dagvöruverslun hefur ekki verið minni frá því í byrjun árs 2007 að raunvirði þó neytendur verji mun fleiri krónum til innkaupanna en áður. Þetta kemur fram á vefsíðu Rannsóknarseturs verslunarinnar. Þar segir að þannig jókst velta dagvöru á breytilegu verðlagi um 23,1% á einu ári. Í janúar síðastliðnum voru fimm helgar en fjórar í janúar í fyrra sem hefði átt að leiða til aukinnar sölu en raunin varð samdráttur. Verð á dagvöru hækkaði um 32% á einu ári, frá janúar 2008 til janúar 2009. Sala á áfengi jókst hins vegar um 2,2% í janúar miðað við sama mánuð árið áður á föstu verðlagi og um 37,6% á breytilegu verðlagi. Verð á áfengi hækkaði um 34.6% í janúar síðastliðnum miðað við sama mánuð árið áður samkvæmt verðmælingu Hagstofu Íslands. Ástæðu aukinnar áfengissölu má líklega rekja til þess að í ár voru fimm helgar í janúar en í fyrra voru þær fjórar. Velta fataverslunar var 11,3% minni í janúar á föstu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra en jókst um 17,8% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Verð á fötum hækkaði um 32,8% á einu ári. Einnig varð samdráttur í skóverslun. Þannig minnkaði velta skóverslunar um 18,0% í janúar á föstu verðlagi og um 2,2% á breytilegu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra. Það er til marks um samdrátt í skóverslun í janúar síðastliðnum að hún var 8% minni en í janúar 2007, mælt á föstu verðlagi. Verð á skóm hækkaði um 19,2% á síðastliðnum 12 mánuðum. Í janúar minnkaði velta í húsgagnaverslun um 22% á föstu verðlagi miðað við janúar í fyrra og jókst um 2,1% á breytilegu verðlagi. Verð á húsgögnum hefur hækkað um 30,9% á síðastliðnum 12 mánuðum.
Mest lesið Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Fleiri fréttir Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Sjá meira