Viðskipti innlent

Moody´s lækkar lánshæfi gamla Glitnis í C

Matsfyrirtækið Moody's Investor Services tilkynnti í gær að það hefði lækkað lánshæfiseinkunn sína á langtímaskuldbindingum Glitnis úr Caa1 í C, einkunn fyrir skammtímaskuldbindingar og fjárhaglegan styrkleika staðfestar.

Horfur fyrir á langtíma- og skammtímaskuldbindingum eru stöðugar. Einkunnin C er yfirleitt skilgreind sem „junk" eða rusl á viðskiptamáli erlendis.

Í frétt frá Moody´s um málið segir að ákvörðunin um einkunnina sé tekin með tilliti til þeirra upplýsinga sem fram komu á fundi Glitnis með kröfuhöfum þann 6. febrúar s.l..








Fleiri fréttir

Sjá meira


×