Fleiri fréttir

Íslenskir bankastjórar enn hafðir að háði og spotti

Financial Times hefur birt niðurstöðu sína um hver telst vera yfirborgaðasti fjármálamaður heimsins. Bankastjórar Íslensku bankanna komu sterklega til greina því þeim tókst ekki aðeins að reka banka sína í þrot heldur tóku heila þjóð með sér í fallinu.

Óljóst eignarhald setur framtíð FIH-bankans í hættu

FIH-bankinn í Danmörku þarf á endurfjármögnun að halda upp á fleiri milljarða danskra kr. á næsta ári. Framtíð bankans er í hættu vegna þess hve óljóst er um eignarhaldið á bankanum segir í frétt á Business.dk.

Bretar fá Icesave greitt út fyrir áramót

Mikill meirihluti þeirra sem áttu innistæður á Icesavereikningum Landsbankans í Bretlandi hafa fengið peningana sína aftur. 630 milljarðar íslenskra króna hafa þegar verið greiddir til innistæðueigenda.

Glitnir setur sér verklagsreglur

Nýi Glitnir birti á föstudag á vefsvæði sínu vinnuramma um úrlausnir fyrir fyrirtæki sem eiga í tímabundnum erfiðleikum. Vinnuramminn er settur fram í framhaldi af yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um aðgerðir til að bæta rekstrarumhverfi fyrirtækja frá 2. desember sl..

Eimskip hækkar um 1,58 prósent

Gengi hlutabréfa í Eimskipafélaginu hækkaði um 1,58 prósent í Kauphöllinni í morgun. Þetta er eina hækkunin á fremur rólegum degi.

Viljayfirlýsing um kaup á Kaupþingi í Svíþjóð

Älandsbanken hefur undirritað viljayfirlýsingu um kaupin á Kaupþingi í Svíþjóð. Viðræður milli bankans og forráðamanna Kaupþings, þar á meðal skilanefndar Kaupþings hér heima hafa staðið um nokkurt skeið.

Vill byggja 50.000 tonna kísilmálmverksmiðju

Erlent fyrirtæki fyrirhugar að framleiða hér á landi 50 þús. tonn árlega af hefðbundnum kísilmálmi . Liggur fyrir álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar frá 2. október 2008.

Verðbólgan mælist nú 18,1% á ársgrundvelli

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 18,1% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 20,7%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,5% sem jafngildir 24,0% verðbólgu á ári.

Asísk bréf hækkuðu ýmist eða lækkuðu

Hlutabréf hækkuðu ýmist eða lækkuðu á Asíumörkuðum í morgun. Þannig hækkaði japanska Nikkei-vísitalan um rúmt prósentustig en aðrar vísitölur lækkuðu margar hverjar. Ekki er búist við líflegum viðskiptum á hlutabréfamörkuðum síðustu tvo dagana fyrir jól en margir fjárfestar eru þegar komnir í jólafríið, bæði austan hafs og vestan.

OPEC-samtökin draga enn úr olíuframboði

Olíuútflutningsríkin í OPEC-samtökunum ætla að draga enn úr framboði á olíu, eftir að hafa ákveðið tveggja milljóna tunna samdrátt á dag, í síðustu viku.

Kreppa vofir yfir japönskum bílaiðnaði

Bílaiðnaðurinn í Japan er að lenda í kreppu vegna síminnkandi bílasölu. Búist er við afkomuviðvörun frá Toyota þar sem fram komi að fyrirtækið sé rekið með tapi og Honda á í miklum erfiðleikum.

Ríkisvíxlar runnu út

„Ríkinu hlýtur að vera létt fyrst þetta gekk svona vel,“ segir Jón Bjarki Bentsson, sérfræðingur í Greiningu Glitnis.

Hagfræðingar í Bandaríkjunum óttast verðhjöðnun

Hagfræðingar í Bandaríkjunum eru farnir að hafa verulegar áhyggjur af verðhjöðnun. Það er andstæðan við verðbólgu og einkennist slíkt ástand af miklum verðlækkunum, en einnig miklum launalækkunum, atvinnuleysi og lömuðu efnahagslífi. Það var ekki síst til að bregðast við þessu ástandi, sem Ben Bernanke, seðlabankastjóri í Bandaríkjunum, lækkaði stýrivexti niður í 0 í síðustu viku.

Lánið frá AGS enn ónýtt

Seðlabanki Íslands hefur enn ekki þurft að nýta sér lán Alþjóðagjaldeyrissjóðsins til að styrkja gengi krónunnar. Lánsfjárhæðin sem greidd hefur verið út myndar hluta af gjaldeyrisforða Seðlabankans og skilar vaxtatekjum.

Breskir sveitastjórnarmenn bjartsýnir á að fá fé úr Heritable

Sveitastjórnarmenn í Winchester eru bjartsýnir að þeir muni fá til baka 1 milljón sterlingspund frá Heritable bankanum sem hrundi í október. Bankinn var í eigu Landsbankans og var settur í skiptameðferð í október. Fulltrúar frá Winchester borg funduðu með skiptastjórum í síðustu viku.

Sölu á Kaupþing Lux að ljúka

Fjármálaráðherrann í Luxemburg hefur skrifað undir viljayfirlýsingu um sölu á Kaupþing í Lúxemburg til hóps fjárfesta frá Arabalöndunum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ríkisstjórninni í Luxemburg sem Reuters fréttastofan vísar til í dag.

Alþingi samþykkir að veita fé til málshöfðunar gegn Bretum

Alþingi samþykkti nú á sjötta tímanum lög um heimild til fjárhagslegrar fyrirgreiðslu úr ríkissjóði í tengslum við málshöfðun fyrir erlendum dómstólum vegna íþyngjandi stjórnvaldsákvarðana erlendra stjórnvalda á tímabilinu 1. október til 1. desember 2008.

Nýsköpun í kreppunni

„Við önnum varla eftirspurn, eins og er,“ segir Valur Þór Gunnarsson, höfundur Kreppuspilsins, en fyrsta upplag kom í verslanir fyrir um viku, eftir að það hafði selst upp í forsölu.

Bílarisum bjargað vestanhafs

George W. Bush, fráfarandi forseti Bandaríkjanna, greindi frá því í gær að stjórnvöld ætli að veita bandarísku bílaframleiðendunum General Motors og Chrysler neyðarlán sem eigi að forða þeim frá gjaldþroti.

Flykkjast til London að kaupa ódýrar jólagjafir

Íbúar á evrusvæðinu flykkjast nú til Bretlands að kaupa ódýrar jólagjafir. Pundið hefur hrunið gagnvart evrunni. Þrátt fyrir þetta er spáð samdrætti í jólaverslun í Bretlandi.

Straumur féll um átta prósent

Gengi hlutabréfa í Straumi féll um 7,93 prósent í Kauphöllinni í dag. Á eftir fylgdi gengi bréfa í Atlantic Petroleum, sem féll um 6,78 prósent, Bakkavör, sem fór niður um 5,05 prósent og Century Aluminum, sem féll um 4,96 prósent.

Skötuveisla Eimskips til styrktar Mæðrastyrksnefnd

Að þessu sinni var skötuveisla Eimskips haldin til styrktar Mæðrastyrksnefnd. Eimskipafélagið gaf eina milljón króna til starfseminar og söfnuðust að auki fimmhudruðþúsund krónur með sölu á happadrættismiðum til veislugesta.

Rio Tinto Alcan styður Gulleggið 2009

Rio Tinto Alcan (Alcan á Íslandi hf.) og Innovit nýsköpunar- og frumkvöðlasetur hafa gert mér sér samning um stuðning við frumkvöðlakeppni Innovit, Gulleggið 2009.

Fréttaskýring: Losa þarf um gjaldeyrishöftin fljótlega

Seðlabanki Íslands vinnur nú að áætlun um hvernig skuli draga úr gjaldeyrishöftum þeim sem gilt hafa frá upphafi mánaðarins. Bankastjórnin hefur sagt að höftin komi til endurskoðunar fyrir 1. mars n.k. með tilliti til að létta þeim að einhverju marki. Lögin um höftin gilda hinsvegar fram til ársins 2010.

Heimsmarkaðsverð á olíu í frjálsu falli

Heimsmarkaðsverð á olíu virðist í frjálsu falli þessa stundina en tunnan er komin niður fyrir 34 dollara á markaðinum í Bandaríkjunum. Er það 2 dollara lækkun frá verðinu í gærdag sem lækkaði einnig töluvert þann daginn.

Þórólfur Árnason nýr formaður SUT

Þórólfur Árnason, forstjóri SKÝRR og fyrrum borgarstjóri, var kjörinn formaður SUT, Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja, á aðalfundi samtakanna í morgun. Þórólfur tekur við af Eggerti Claessen sem gegndi hlutverki formanns síðastliðin tvö ár.

Gengi krónunnar lækkaði um 11% á tíu dögum

Gengi krónu hefur lækkað um ríflega 11% undanfarna tíu daga. Enn er þó krónan u.þ.b. 14% sterkari gagnvart helstu gjaldmiðlum en hún var þegar hin takmarkaða endurfleyting hennar hófst að morgni 4. desember síðastliðins.

Krónan fellur um 4,8 prósent

Gengi krónunnar féll um 4,8 prósent um hádegisbil í dag eftir fremur rólegan morgun. Vísitala krónunnar stendur nú í 2175 stigum en hún var 207,2 stig í gær.

Breskum ferðamönnum til Íslands fækkar um 9.000

Breskum ferðamönnum sem komu til Íslands síðasta sumar fækkaði um 9.000 miðað við árið á undan. Þetta er hluti af almennri þróun í Bretlandi en samkvæmt upplýsingum frá hagstofu landsins ákváðu milljón Bretar að sitja heima síðasta sumar í stað þess að ferðast erlendis í fríum sínum.

Norski olíusjóðurinn sigraði Warren Buffett

Norski olíusjóðurinn hafði sigur í baráttu sinni gegn Warren Buffett ríkasta manni heims um söluna á bandaríska orkufyrirtækinu Constellation Energy. MidAmerican, félag í eigu Buffett, hefur hætt við áform sín um að kaupa Constellation.

„Þetta snýst um jafnræði hluthafa“

Vilhjálmur Bjarnason formaður félags fjárfesta og hluthafi í Straumi-Burðarás fjárfestingarbanka hefur höfðað mál á hendur bankanum ásamt dætrum sínum. Þau eru öll hluthafar í bankanum og telja að jafnræðisreglan hafi verið brotin með sölu stjórnarinnar á 550 milljónum hluta í bankanum á gengi sem var undir markaðsgengi. Vilhjálmur fer fram á 30.000 krónur skaðabætur.

Ísland er enn dýrasta land í Evrópu

Þrátt fyrir kreppuna og bankahrunið heldur Ísland titli sínum sem dýrasta land Evrópu hvað daglegar neysluvörur varðar. Verð á þessum vörum er 58% hærra á Íslandi en nemur meðaltali landanna innan Evrópusambandsins.

Ålandsbanken vill kaupa Kaupþing í Svíþjóð

Ålandsbanken á Álandseyjum hefur staðfest að hann hafi áhuga á því að kaupa Kaupþing í Svíþjóð. Samningaviðræður um kaupin eru nú í gangi milli bankans og sænskra stjórnvalda en bankinn var yfitekinn af sænska ríkinu í kjölfar bankahrunsins á Íslandi.

Sjá næstu 50 fréttir