Fleiri fréttir

Hugsanlega rætist úr málum bílaframleiðenda í dag

Hugsanlegt er að Bandaríkjaþing samþykki í dag björgunaráætlun til handa bílaframleiðendunum General Motors og Chrysler, sem nægi til að halda fyrirtækjunum á floti fram í mars hefur Bloomberg eftir heimildamönnum sem kunnugir eru gangi mála.

Eggert stefnir Björgólfi vegna West Ham

Eggert Magnússon hefur stefnt Björgólfi Guðmundssyni og enska knattspyrnufélaginu West Ham fyrir samningsbrot. Hann krefst ríflega 200 milljóna króna vegna vanefnda á starfslokasamningi. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag, eftir því sem fram kom í kvöldfréttum RÚV.

Icelandair Group hækkaði eitt í Kauphöllinni

Gengi hlutabréfa í Icelandair Group hækkaði um 0,38 prósent í Kauphöllinni í dag. Þar sveif það eitt í hækkun á meðan önnur fyrirtæki voru í lágflugi. Gengi bréfa í Bakkavör féll um rúm fimmtán prósent á sama tíma.

Úttekt á Samvinnutryggingum aftur til ársins 1989

Fulltrúaráðsfundur í Eignarhaldsfélaginu Samvinnutryggingar sem haldinn var í dag ákveðið að framkvæmd verði úttekt á starfsemi félagsins og dótturfélaga undanfarin nítján ár af óháðum og sérfróðum aðila.

Innistæðutryggingar í bönkum hækka meir en tvöfalt

Þing Evrópusambandsins ákvað í dag að innistæðutryggingar í bönkum ESB ættu að hækka í 50.000 evra næsta sumar eða nær 9 milljónir kr.. Tryggingarnar nema nú rúmlega 20.000 evrum. Þessi ákvörðun mun einnig ná yfir EES-samninginn og gildir þá væntanlega hérlendis einnig næsta sumar.

Kaupþing er með hæstu vextina á erlendum lánum

Frétt greiningar Glitnis um þann hag sem heimili og fyrirtæki hafa af lækkandi millibankavöxtum hefur vakið athygli. Fólk sem hefur haft samband við visir.is bendir á að þeir sem séu með myntkörfulán hjá Kaupþingi njóti ekki eins mikillar lækkunnar og hjá öðrum bönkum.

Rio Tinto hættir við álver í Saudi-Arabíu

Rio Tinto hefur ákveðið að hætta sem fjárfestir í nýju álveri í Saudi-Arabíu. Með þessu mun félagið spara nær 5 milljarða dollara eða sem svarar til nær 600 milljörðum kr..

Kreppan kemur við kaunin hjá Magasin du Nord

Fjármálakreppan setur strik í reikningin hvað jólaverslunina í Danmörku varðar og á það einnig við um stórverslunina Magasin du Nord sem er í eigu Íslendinga. Það eru þó ekki Danir sjálfir sem spara við sig jólainnkaupin heldur aðrir Norðurlandabúar sem heimsækja Magasin, einkum Svíar.

Danske Bank telur að 100.000 störf hverfi í Danmörku

Danske Bank telur að 100.000 störf hverfi í Danmörku á næstu tveimur árum. Í nýrri skýrslu bankans um þróun efnahagsmála segir að kreppa verði í landinu næstu tvö árin og að í árslok 2010 muni 115.000 manns verða atvinnulausir í landinu.

Rússar tilbúnir með 60 milljarða kr. lán til Íslands

Dmitry Pankin fjármálaráðherra Rússlands segir að Rússar séu nú tilbúnir til að lána Íslendingum 500 milljónir dollara eða tæplega 60 milljarða kr.. Pankin segir að lánið verði veitt um leið og íslensk stjórnvöld samþykki að taka á móti þessari aðstoð.

Teymi hugar að sölu eigna og endurskipulagningu

Teymi hf. hefur hafið viðræður við kröfuhafa félagsins um fjárhagslega endurskipulagningu í ljósi erfiðra markaðsaðstæðna. Jafnframt hefur stjórn félagsins ákveðið að kanna sölu eigna.

Exista hækkar um 25 prósent

Gengi hlutabréfa í Existu hækkaði um 25 prósent í Kauphöllinni í dag. Ein viðskipti upp á 50 þúsund krónur standa á bak við viðskiptin. Gengi bréfa í félaginu er nú fimm krónur á hlut.

Snjókastið komst á síður Financial Times

Financial Times skrifar í dag um snjókastið sem Jón Ásgeir Jóhannesson forstjóri Baugs og Malcolm Walker forstjóri Iceland verslunarkeðjunnar lentu í fyrir utan 101 hótel í gærdag.

Olíuverð lækkar þrátt fyrir mikinn niðurskurð hjá OPEC

Heimsmarksverð á olíu hefur lækkað eftir að OPEC, samtök olíuframleiðsluríkja, boðuðu mikinn niðurskurð á framleiðslu sinni í gær. Eftir fundinn fór verðið í rétt rúma 40 dollara og hefur ekki verið lægra í tæp fimm ár.

Hlutabréf hækkuðu á Asíumörkuðum í morgun

Hlutabréf hækkuðu í verði á Asíumörkuðum í morgun, einkum bréf fjármálafyrirtækja. Fyrirtæki í orkuiðnaði lækkuðu hins vegar mörg hver í takt við lækkandi olíuverð en nú stefnir heimsmarkaðsverð olíu í það lægsta sem sést hefur í rúm fjögur ár.

Meint veikindi Steve Jobs rýra verð Apple

Hlutabréf í hugbúnaðarfyrirtækinu Apple féllu um tæplega fjögur prósentustig í gær þegar fréttir bárust af því að forstjóri fyrirtækisins, Steve Jobs, ætti við veikindi að stríða og myndi ekki flytja árlegt ávarp sitt á tæknisýningu Apple sem nú nálgast óðum.

Chrysler stöðvar framleiðslu á morgun

Chrysler-verksmiðjurnar hætta allri bílaframleiðslu á morgun og munu ekki framleiða svo mikið sem eitt tannhjól í bíl í að minnsta kosti mánuð. Þetta kemur fram í tilkynningu sem stjórn Chrysler sendi starfsmönnum sínum og birgjum í gær.

Bankatap veldur titringi í Bandaríkjunum

Gengi hlutabréfa lækkaði almennt í Bandaríkjunum í dag. Helstu vísitölur vestanhafs ruku upp í gær eftir stýrivaxtalækkun bandaríska seðlabankans.

Century Aluminum hækkaði um átta prósent

Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, hækkaði um 8,1 prósent í Kauphöllinni í dag. Þetta er mesta hækkun dagsins. Á eftir fylgdi gengi bréfa í Alfesca, sem fór upp um 2,1 prósent. Gengi bréfa í Færeyjabanka, Atlantic Petroleum og Marel Food Systems hækkaði um tæpt prósent.

Öllum búðum Woolworths lokað eftir áramótin

Öllum rúmlega 80ö0 búðum verslunarkeðjunnar Woolworths verður lokað eftir áramótin. Jafnframt verður 27.000 starfsmönnum keðjunnar sagt upp. Baugur á hlut í Woolworths gegnum fjárfestingafélagið Unity.

FIH bankinn snýr upp á hendina á fjárfestingarsjóðum

FIH bankinn í Danmörku, sem nú er í eigu íslenska ríkisins, er meðal þeirra banka í landinu sem nú snúa upp á hendina á fjárfestingarsjóðum til að fá sjóðina til að standa við samninga sína um lán.

Framleiðendum parmesanosta bjargað úr fjármálakreppunni

Það eru fleiri en bílaframleiðendur og bankar sem hafa orðið illa úti í fjármálakreppunni. Hið sama gildi um framleiðendur parmesanosta á Ítalíu. Stjórnvöld hafa gripið inn í málið svo að þessi heilagasta kú ítalsks landbúnaðar lifi af veturinn.

Makaskiptasamningar koma í veg fyrir lækkun íbúðaverðs

Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 0,3% í nóvember frá fyrri mánuði samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins (FMR). Íbúðaverð hefur nú lækkað um 1,2% frá sama tíma fyrir ári síðan en um 2,7% frá upphafi árs. Makaskiptasamningar koma í veg fyrir meiri lækkun á íbúðaverði.

Seðlabankinn lækkar dráttarvexti

Seðlabankinn lækkaði í gær vanefndaálag úr 11% í 7% í samræmi við lög og lækka þar með dráttarvextir um 1,5% og verða 25%. Vaxtaákvörðunin gildir frá 1. janúar 2009 til og með 30. júní 2009.

TM hefur fengið starfsleyfi í Færeyjum

Tryggingamiðstöðinni hf. (TM) hefur, fyrst erlendra tryggingafélaga, verið veitt starfsleyfi í Færeyjum. TM mun fyrst um sinn einbeita sér að sjótryggingum, enda fiskveiðar stór hluti færeysks atvinnulífs og TM afar reynslumikið félag á því sviði.

Atlantic Petroleum lækkar í byrjun dags

Gengi hlutabréfa í færeyska olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum hefur lækkað um 1,61 prósent á rólegum lækkunardegi í Kauphöllinni í dag. Á eftir fylgir lækkun á gengi bréfa í Marel Food Systems upp á 0,93 prósent og Færeyjabanka upp á 0,81 prósent.

Carnegie fær ekki málsókn gegn FME í Svíþjóð

Stjórn móðurfélags Carnegie bankans í Svíþjóð fær ekki að höfða mál gegn fjármálaeftirliti (FME) landsins. Landsréttur Svíþjóðar ákvað í morgun að vísa málinu frá dómi.

Atvinnuleysi í Bretlandi sex prósent

Atvinnuleysi mældist sex prósent í Bretlandi í október, samkvæmt upplýsingum sem breska hagstofan birti í dag. Þetta er 0,2 prósentustiga aukning á milli mánaða.

Sjá næstu 50 fréttir