Verðbólgan mælist nú 18,1% á ársgrundvelli 22. desember 2008 09:03
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 18,1% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 20,7%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,5% sem jafngildir 24,0% verðbólgu á ári.Fjallað er um málið á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í desember hækkaði um 1,52% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 1,71% frá nóvember. Verð á húsgögnum, heimilistækjum, heimilisbúnaði o.fl. hækkaði um 4,4% (vísitöluáhrif 0,31%) og efni til viðhalds húsnæðis hækkaði um 7,2% (0,31%). Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 2,1% (0,27%) og verð á áfengi hækkaði um 9,2% (0,15%), að hluta til vegna hækkunar áfengisgjalds. Verð á tómstundavörum, leikföngum og ritföngum hækkaði um 2,4% (0,28%) og flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 14,6% (0,17%). Verð á bensíni og olíum lækkaði um 8,6% (-0,39%) þrátt fyrir hækkun olíugjalds. Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði lækkaði um 0,5% (-0,07%). Þar af námu áhrif af lækkun markaðsverðs á húsnæði -0,04% og lækkun raunvaxta -0,03%, en vextir hafa ekki haft áhrif til lækkunar vísitölunnar frá nóvember 2005. Fastskattavísitala neysluverðs var ekki uppfærð nú vegna þess að ekki gafst nægur tími til að meta áhrif af breytingum á áfengis-, tóbaks- og olíugjaldi auk vörugjalda sem samþykktar voru með lögum þann 11. desember. Vísitalan verður næst birt um leið og vísitala neysluverðs í janúar.
Mest lesið Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Atvinnulíf Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Viðskipti innlent Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Viðskipti innlent Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Viðskipti innlent Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Viðskipti innlent Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Neytendur Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Fleiri fréttir Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Sjá meira