Lánið frá AGS enn ónýtt 21. desember 2008 17:36 Seðlabanki Íslands.
Seðlabanki Íslands hefur enn ekki þurft að nýta sér lán Alþjóðagjaldeyrissjóðsins til að styrkja gengi krónunnar. Lánsfjárhæðin sem greidd hefur verið út myndar hluta af gjaldeyrisforða Seðlabankans og skilar vaxtatekjum. Þetta kemur fram í svörum Seðlabanka Íslands, en Fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis spurði út í hugsanlegan vaxtakostnað sem hlytist af lántöku til að styrkja gengi krónunnar.Miðað við 4% vexti Samkvæmt upplýsingum úr Seðlabankanum er óljóst hverjir meðalvextir af láninu gætu orðið á lánstímanum. Vextir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eru breytilegir og reiknast vikulega miðað við svokallaða SDR-vexti. Þessir vextir eru samsettir af skammtímavöxtum í Evrópu, Bandaríkjunum, Japan og Bretlandi og eru vaxtagreiðslur mánaðarlega. Meðalvextirnir geta farið eftir vaxtaþróun á skammtímamarkaði í ofangreindum löndum á lánstímanum. Þessir vextir nema nú rúmlega 4% og segir Seðlabankinn að nota megi þá vexti til viðmiðunar. Vaxtagreiðsla næsta árs fer eftir hve mikið verður dregið á lánið og hið sama gildir um vaxtakostnað allt til ársins 2015. Lánsfjárhæðin sem greidd hefur verið út myndar hluta af gjaldeyrisforða Seðlabankans og skilar vaxtatekjum. Seðlabankinn hefur ekki gengið á lánið til þess að styrkja gengið.Enn ekki búið að semja um önnur lán Þá kemur fram í upplýsingum frá Seðlabankanum að enn hafi ekki verið gengið frá gjaldeyrislánum frá öðrum löndum og kjörin því óljós. Ekki muni liggja fyrir mat á hugsanlegum vaxtakostnaði fyrr en gengið hafi verið frá öllum lánssamningum.
Mest lesið Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Atvinnulíf Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Viðskipti innlent Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Viðskipti innlent Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Viðskipti innlent Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Viðskipti innlent Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Neytendur Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Fleiri fréttir Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Sjá meira