Viðskipti innlent

Kaupmáttur launa lækkaði um 7,7% í ár

Kaupmáttur launa hefur dregist saman um 7,7% síðustu 12 mánuði að því er kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar.

Launavísitala í nóvember 2008 er 351,3 stig og lækkaði um 0,6% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 7,8%.

Vísitala kaupmáttar launa í nóvember er 109,9 stig og lækkaði um 2,3% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa því lækkað um 7,7%.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×