Viðskipti innlent

Nýr framkvæmdastjóri hjá SmartLynx

Eugene O´Reilly hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra SmartLynx, dótturfélags Icelandair Group í Lettlandi.

Hann tekur við starfinu af Garðari Forberg, sem fer í leyfi að eigin ósk og mun að því loknu hverfa aftur til starfa fyrir Icelandair Group. SmartLynx er leiguflugfélag með starfsemi víða um heim, en höfuðstöðvar í Riga í Lettlandi.

Í tilkynningu um málið segir að Eugene O´Reilly hafi starfað undanfarin tvö ár sem aðstoðarframkvæmdastjóri Icelease, sem annast alþjóðleg flugvélaviðskipti fyrir samstæðuna. Hann starfaði frá 2001 hjá Sojitz Aircraft Corporation, japönsku flugvélaleigufyrirtæki, og á árinum 1992-2000 sem aðstoðarforstjóri tyrkneska flugfélagsins Pegasus Airlines. Eugene er frá Írlandi, viðskiptafræðingur og löggiltur endurskoðandi að mennt.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×