Flügger rannsakað fyrir brot á viðskiptaþvingunum Agnar Már Másson skrifar 26. júní 2025 17:17 Hér má sjá verksmiðju Flüggers í Póllandi en fyrirtækið rekur verslanir víða um Evrópu, meðal annars sex slíkar á Íslandi. Flügger Tveir hafa verið handteknir í Danmörku en látnir lausir eftir skýrslutöku þar sem danski málningarrisinn Flügger er sagður vera undir rannsókn vegna meintra brota á viðskiptaþvingunum gegn Rússlandi. Flügger, sem rekur meðal annars sex verslanir á Íslandi, neitar sök og segist hafa yfirgefið Rússland fyrir löngu, en Rússi sem gefur sig út fyrir að vera talsmaður fyrirtækisins hefur selt málningu þeirra víða um landið síðustu ár.
Danska rannsóknarstofnunin NSK, sem kannar meðal annras fjárglæpi og skipulagða brotastarfsemi - oft köluð danska FBI - staðfestir í skriflegu svari til danska ríkisútvarpsins að hún sé að rannsaka mál um mögulegt brot á viðskiptaþvingunum Evrópusambandsins gegn Rússlandi. „NSK hefur í dag framkvæmt handtöku og húsleitaraðgerð í Kaupmannahöfn og í Vestegn í tengslum við mál sem varðar hugsanlega sniðgöngu dansks fyrirtækis á viðskiptaþvingunum gegn Rússlandi,“ er haft eftir NSK í frétt DR, sem fullyrðir að danska málningarsamsteypan Flügger sé fyrirtækið sem um ræðir. NSK vildi þó ekki tjá sig um það. „Leitað hefur verið á þremur heimilisföngum og tveir hafa verið handteknir, sem báðir hafa verið látnir lausir eftir yfirheyrslur,“ skrifar NSK. Ekki er vitað hverjir hinir handteknu eru eða ekki hvort, og þá fyrir hvað, þeir hafi verið ákærðir, að sögn DR. Staðfesta sjálf að þau séu til rannsóknar Handtökurnar koma í kjölfar umfjöllunar DR frá því fyrr í morgun um að enn sé hægt að kaupa málningu frá Flügger víða í Rússlandi, þrátt fyrir að málningin hafi verið háð viðskiptaþvingunum ESB gegn Rússlandi í næstum þrjú ár. Flügger staðfesti í yfirlýsingu til danska verðbréfamarkaðarins í dag að fyrirtækið og stjórnendur þess væru til rannsóknar hjá dönsku lögreglunni. Jafnframt er sagt að Flügger sé að vinna með yfirvöldum í málinu. „Við höfum yfirgefið Rússland og stefna okkar er mjög skýr að við viljum ekkert hafa með þann markað að gera. Þetta hefur einnig verið skýrt tilkynnt samstarfsaðilum okkar,“ segir í yfirlýsingunni. Flügger segist löngu búinn að slíta sambandi við rússneska kaupmanninn „Samt hefur einhver greinilega ákveðið að fara á bak við okkur og endurselja málningu í andstöðu við reglurnar. Þetta er algjörlega óásættanlegt og við gerum allt sem við getum til að stöðva það, “ er haft eftir Sune Schnack forstjóra Flüggergroup. Vísar hann þar til hins rússneska kaupsýslumannsins Aleksej Popov, sem var hann dreifingaraðili Flügger í Rússlandi í mörg ár. Flügger segir þó að þeim samningi hafi aftur á móti verið rift í apríl 2022. Síðan þá hefur hann þó haldið áfram að kynna sig sem fulltrúi Flüggers í landinu, samkvæmt DR. Flügger segir við danska ríkismiðilinn að Popov hafi starfað alfarið einn og leitt danska samstæðuna „á bak við tjöldin“. „Ég heiti Aleksej Popov og ég er fulltrúi danska Flügger í Rússlandi. Úrval okkar er breitt og inniheldur meira en 60 mismunandi vörunúmer, sem eru send hingað,“ sagði hann í viðtali í maí 2023, rúmu ári eftir að samningnum mun hafa verið rift. Flügger segist gruna sérstaklega að framsala málningarnar til Rússlands hafi farið fram í gegnum einn eða fleiri dreifingaraðila og hafi því hætt samstarfi við dreifingaraðila í Kasakstan, Eistlandi, Aserbaídsjan og Kirgistan, segir í fréttatilkynningunni. Flügger segir við DR að Aleksej Popov hafi veitt sér tengiliði hjá öllum þeim dreifingaraðilaum. Flügger hefur einnig upplýst DR um söluna í Rússlandi þegar fyrirtækið varð fyrst vart við. „Við fengum fyrirspurn frá uppljóstrara í lok árs 2024 og eftir það hófum við strax innri rannsókn í samstarfi við utanaðkomandi sérfræðinga til að komast til botns í málinu,“ sagði Flügger í tölvupósti til DR. DR hefur reynt að fá athugasemd frá Aleksej Popov í nokkra daga. Þeim hefur tekist að ná stuttlega sambandi við rússneska kaupsýslumanninn í síma. Þar neitaði hann að hann væri að vinna með Flügger og sleit síðan fljótt sambandinu. Íslenski armurinn alfarið í eigu Dana Íslendingar þekkja Flügger vel, þá undir nafninu Flügger litir sem reka sex málningarverslanir á Íslandi. Fyrirtækið meðal vinsælustu málningaverslana hér á land og er rekið undir félaginu Flügger Iceland ehf. Flügger á Íslandi er alfarið í eigu Flügger group A/S. Stjórnarformaður Flügger Iceland er Dani að nafni Torben Schwaner Delholm og aðeins einn annar er í stjórninni samkvæmt síðasta opinbera ársreikningi: Poul Erik Stockfleth. Framkvæmdastjóri Flügger er Rolf Gjølberg. Fréttastofa hefur leitað viðbragða frá Flugger Iceland ehf. vegna málsins.
Danmörk Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Evrópusambandið Viðskiptaþvinganir Hús og heimili Mest lesið „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Viðskipti erlent Íslendingur missir leyfið fyrir KFC í Danmörku eftir meiriháttar hneyksli Viðskipti erlent Flügger rannsakað fyrir brot á viðskiptaþvingunum Viðskipti erlent Lánardrottnar slá af milljarð af vöxtum á ári Viðskipti innlent Áætla að húsnæði á Íslandi sé verulega vantryggt fyrir bruna Neytendur Baldvin tekinn við sem forstjóri Samherja Viðskipti innlent Opinn fundur HMS um endurmat brunabótamats Neytendur Birta stendur frammi fyrir 1,5 milljarða tapi á Play Viðskipti innlent Fordómar: „Mætti halda að á Íslandi væri ekkert sölustarf til“ Atvinnulíf BYKO PLÚS er nýr fríðindaklúbbur fyrir einstaklinga Samstarf Fleiri fréttir „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Tvöfaldar tolla á innflutt stál og ál Dómstóll ógilti tollahækkanir Trump Volvo segir upp þrjú þúsund manns Fangelsisdómar yfir stjórnendum Volkswagen vegna útblásturshneykslis X-ið hans Musk virðist liggja niðri Kallar eftir virðingu eftir tollahótanir Trump Hótar Evrópusambandinu og Apple háum tollum Reka forstjóra danska lyfjarisans sem malar gull á Ozempic Gamla nafnið verður nýja nafnið, aftur Íslenskt sund í New York Apple skoðar að stýra snjalltækjum með hugsunum Ofurtollarnir lækkaðir tímabundið Ríkið eignast hlut í Norwegian Hækkanir á Asíumörkuðum Ræða við „hrokafulla“ Kana vegna áhyggja af tollum Trumps Fluttu mun minna til Bandaríkjanna en meira annað Vilja nota geimflaugar til að flytja hergögn hvert sem er Ætlar ekki að deyja í smán og gefur frá sér auðæfin Bretar fyrstir til að semja við Trump Hyggja á opnun nýs Disney-skemmtigarðs í Abú Dabí Hætta við að reka OpenAI í hagnaðarskyni Buffett hættir sem forstjóri við lok árs Minni sala í skugga slæmra efnahagshorfa Sekta TikTok um tæpa áttatíu milljarða Engar viðræður fyrr en Trump fellir niður tolla Sjá meira