Ríkisvíxlar runnu út 22. desember 2008 06:00 Útboð ríkisvíxla sem haldið var í Seðlabanka fyrir helgi gekk vel. Víxlar seldust fyrir yfir 70 milljarða, en þeir eru á gjalddaga skömmu eftir áramót. Fréttablaðið/heiða „
Ríkinu hlýtur að vera létt fyrst þetta gekk svona vel," segir Jón Bjarki Bentsson, sérfræðingur í Greiningu Glitnis. Ríkisvíxlar í tveimur flokkum voru seldir á föstudag fyrir yfir 70 milljarða. Annar flokkurinn er með gjalddaga í janúar og þar seldust bréf fyrir 36,5 milljarða króna. Hinn er á gjalddaga í mars og þar seldist fyrir ríflega 37 milljarða króna. „Þetta sýnir að menn vilja vera í stuttum pappírum um þessar mundir," segir Jón Bjarki. Hann hafði áður vakið máls á að dræm þátttaka í skuldabréfaútgáfum ríkisins hlyti að vera því áhyggjuefni. Einnig hafði hann bent á að yfir helmingur fjármagnseigendanna væri erlendur. Skuldabréf fyrir um 100 milljarða króna voru á gjalddaga í mánuðinum. Bréf voru gefin út á móti, en aðeins var tekið tilboðum fyrir um þrjátíu milljarða króna. Við þetta þurfti að greiða út af viðskiptareikningum ríkisins hjá Seðlabankanum og lækkaði staðan þar úr ríflega 163 milljörðum króna í um 100, eftir því sem næst varð komist. Um helmingur skuldabréfaútgáfunnar sem var á gjalddaga um miðjan mánuðinn var fólginn í lánum til svonefndra aðalmiðlara, en bankarnir þrír sem féllu voru í þeim hópi. Björgvin Sighvatsson hjá alþjóða- og markaðssviði Seðlabanka Íslands benti á að á bak við verðbréfalánin væru tryggingar. „Sumar af þessum tryggingum eru öruggar, aðrar ekki. Þar sem gömlu bankarnir þrír gátu ekki skilað til baka bréfum sem þeir fengu lánuð í flokknum getur ríkissjóður gengið að tryggingunum sem bankarnir höfðu lagt fram." Hann sagðist ekki geta sagt hversu langt tryggingarnar næðu upp í flokkinn en hluti þeirra er í formi óvarinna bankabréfa. Óvissa er um verðmæti þeirra. Fjármálaráðuneyti tjáir sig ekki um heimtur. Seðlabanki og fjármálaráðuneyti hafa bent á að ríkissjóður eigi háar fjárhæðir í lausu fé og hafi því burði til að mæta stórum gjalddögum skuldabréfa. Bréf fyrir yfir 130 milljarða falla í gjalddaga á næsta rúma árinu, auk víxlanna í janúar og mars.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira