Fleiri fréttir

Sjávarútvegsráðherra hefur áhyggjur af veiku gengi krónunnar

Einar Kr. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra segir að sú mikla veiking íslensku krónunnar sem orðið hefur upp á síðkastið sé auðvitað alvarlegt mál. Þetta kom fram í máli ráðherrans á aðalfundi Samtaka fiskvinnslustöðva sem haldinn var á Grand Hóteli í dag.

Vodafone segir upp 20 manns

Fjarskiptafyrirtækið Vodafone sagði í dag upp 20 starfsmönnum og hafa þeir þegar látið af störfum en fá greidd laun sinn uppsagnarfrest.

Íslenskur fjárfestir setur klæðskera Bretadrottningar í vanda

Fyrirtækið Hardy Amies, sem er fyrrum opinber klæðskeri Elísabetar Bretadrottningar, er í miklum vanda eftir að fjárfestingarfélagið Arev neitaði Hardy um frekari lánafyrirgreiðslu. Arev er í eigu Jóns Scheving Thorsteinssonar fyrrum forstjóra Baugs í Bretlandi.

Blóðrauð opnun á Wall Street

Kauphallir á Wall Street opnuðu í töluverðum mínus eins og búist var við eftir að 700 milljarða dollara björgunaraðgerð bandarísku stjórnarinnar komast í uppnám í gærkvöldi.

Þrýstingur eykst á að stjórn Seðlabankans verði sett af

Guðmundur Ólafsson, hagfræðingur við Háskóla Íslands, segir að hann sé algerlega sammála Ólafi Ísleifssyni, lektor í hagfræði við Háskólann í Reykjavík, að sé það stefna Seðlabanka Íslands að sækjast ekki eftir lánalínu frá Seðlabanka Bandaríkjanna eigi umsvifalaust að setja stjórn bankans af.

Samdráttur á Nýja-Sjálandi

Hagvöxtur jókst um 2,6 prósent á fyrri hluta árs á Nýja-Sjálandi, samkvæmt nýjustu gögnum hagstofu landsins.Samkvæmt þeim dróst hagvöxtur saman um 0,3 prósent á fyrsta ársfjórðungi og um 0,2 prósent á öðrum fjórðungi.

Evran yfir 140 krónur í fyrsta sinn

Krónan hefur fallið um þrjú prósent í morgun og hefur gengi hennar aldrei fyrr verið jafnt lágt og nú. Evran er komin yfir 140 krónur og bandaríkjadollar í 97 krónur.

Almenningur væntir 12% verðbólgu næsta árið

Væntingar almennings eru á þann veg að verðbólga næstu tólf mánaða verði 12% samkvæmt könnun Capacent Gallup en niðurstöður hennar voru birtar í Hagvísum Seðlabankans fyrir septembermánuð. Könnunin var framkvæmd í ágúst.

Írland fyrsta evrulandið sem verður kreppunni að bráð

Írland er fyrsta evrulandið sem verður kreppunni að bráð en landsframleiðsla þess dróst saman tvo ársfjórðunga í röð. Talið er að fleiri Evrópulönd muni fylgja í kjölfarið þegar tölur birtast um landsframleiðslu þeirra á þriðja ársfjórðungi.

Enn einn stór skellur fyrir norska olíusjóðinn

Gjaldþrot bandaríska bankans Washington Mutual (WaMU) þýðir enn einn stóran skell fyrir norska olíusjóðinn. Samkvæmt frétt á vefnum E24.no átti olíusjóðurinn um 8 milljarða nkr. bundna í WaMu eða sem svarar til 136 milljarða kr.

Ísland opnar í mínus

Gengi hlutabréfa í íslenskum fjármálafyrirtækjum lækkaði almennt við upphaf viðskiptadagsins í Kauphöllinni. Þetta er í samræmi við þróunina á evrópskum hlutabréfamörkuðum í dag.

Evrópskir markaðir opna í mínus

Fréttir af tilraun íhaldssamra repúblíkana til að sökkva björgunaraðgerð Henry Paulson veldur hlutabréfalækkun í Evrópu

Krónan fellur um rúm tvö prósent

Gengi krónunnar féll um rúm tvö prósent í morgun og stendur gengisvísitalan í 182 stigum. Þegar verst lét eftir opnun gjaldeyrismarkaða fór hún niður um 2,5 prósent.

Seðlabankar útvíkka björgunaraðgerðir sínar

Stærstu seðlabankar heimsins útvíkkuðu björgunaraðgerðir sínar fyrir fjármálamarkaði heimsins í dag með því að dæla milljörðum dollara í markaðina. Er þetta í þriðja sinn á einni viku sem slíkt gerist.

Forysta SA heimsækir ESB í Brussel

Forysta Samtaka atvinnulífsins heimsækir Evrópusambandið í Brussel í byrjun næstu viku. Samtökin munu hitta og ræða við valda aðila innan og utan ESB.

Tap á rekstri JJB Sports og enginn arður greiddur

Tap varð á rekstri JJB Sports í Bretlandi á fyrri helmingi uppgjörsársins. Nam tapið um 45 milljónum kr. og verður enginn arður greiddur til hluthafa af þeim sökum. Exista á um 14% í félaginu.

Washington-Mutual-bankinn er gjaldþrota

Washington-Mutual-bankinn er gjaldþrota og hafa bandarísk stjórnvöld yfirtekið bankann og selt stærstan hluta hans JP Morgan Chase-bankanum.

Samkomulag um björgunarhringinn í burðarliðnum

Demókratar og repúblíkanar á Bandaríkjaþingi hafa náð samkomulagi um milljarða frumvarp til að bjarga bágstöddum fjármálafyrirtækjum í efnahagskreppunni í Bandaríkjunum. Talið er að það fari í gegnum þingið á næstu dögum.

Krónan tók óvæntan sprett

Gengi krónunnar tók sprett um stundarfjórðungi fyrir lokun gjaldeyrismarkaða í gær eftir nokkra veikingu framan af degi og styrktist gengi krónunnar um 1,87 prósent þegar yfir lauk.

Verðbólga í 14 prósent

Verðbólga jókst lítið eitt minna en greiningardeildir banka höfðu spáð milli mánaða í september, eða um 0,86 prósent. Tólf mánaða verðbólga fór þar með í 14,0 prósent, samvæmt Hagstofu Íslands, úr 14,5 prósentum í ágúst.

Enn fást engin svör frá Seðlabanka Íslands

,,Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur sem stendur engu við það að bæta sem hún lét frá sér fara í gær," er svarið við fyrirspurn frá Vísi í dag um annars vegar skammtímaskiptasamninga í evrum gegn íslenskum veðum og hins vegar hvort óskað hafi verið eftir aðstoð frá bandaríska seðlabankanum.

Seðlabankinn hafnar tilboðum í rúmlega helming ríkisbréfa

Seðlabanki Íslands hélt í dag útboð í tvo flokka ríkisbréfa. Eftirspurn virðist hafa verið sæmileg í útboðinu því alls bárust tilboð fyrir 20,1 milljarð kr. Það vekur hins vegar athygli að Seðlabankinn skuli einungis taka tilboðum fyrir níu milljarða kr..

Krónan óbreytt í dagslok

Gengi krónunnar breyttist ekkert eftir sveiflur innan dags og endaði í 178,4 stigum. Það styrktist um tæp tvö prósent í gær. Í gær endaði krónan í 178,30 stigum.

Eyrir Invest kaupir eigin skuldabréf

Eyrir Invest, sem er kjölfestufjárfestir í Marel og stoðtækjafyrirtækinu Össuri, hefur keypt til baka öll útgefin skuldabréf félagsins í flokki EYRI0109 fyrir tvo milljarða króna.

Úrvalsvísitalan rýfur 4.300 stiga múrinn

Gengi hlutabréfa í hinum færeyska Eik banka hækkaði um 9,38 prósent í dag og er það mesta hækkun dagsins. Spron fylgdi á eftir með hækkun upp á 6,06 prósent. Þá hækkaði gengi Existu um 4,98 prósent og Atorku um 3,27 prósent.

Wall Street opnar í plús

Kauphallir á Wall Street opnuðu í plús í dag og er ástæðan sú að bjartsýni hefur aukist meðal fjárfesta á að björgunaraðgerðir Bandaríkjastjórnar verði samþykktar fyrr en síðar.

Landsbankinn lækkar verulega þak á gjaldeyrisviðskipti

Landsbankinn hefur lækkað verulega þak á afleiðuviðskipti með gjaldeyri. Þakið var 300 milljónir kr. en er nú komið niður í 100 milljónir kr. Þetta kann að vera ein af ástæðunum að krónan styrktist óvænt seinnipartinn í gærdag.

Eftirlit með skuldatryggingum í athugun vestanhafs

Fjármálaeftirlit Bandaríkjanna hefur nú í hyggju að setja reglur yfir markað með skuldatryggingar. Eftirlitsaðilar að skuldatryggingar séu jafnvel viðkvæmari fyrir því að vera nýttar í vafasömum tilgangi en skortsala.

Óvæntur halli á japönskum vöruskiptum

Halli var á vöruskiptum upp á 324 milljarða jena í Japan í síðasta mánuði, samkvæmt útreikningum hagstofu landsins. Niðurstöðurnar komu mjög á óvart en þykja vísbendingar um að harðna muni í ári í landi hinnar rísandi sólar á næstu misserum.

Flugrekstrarleyfi Alitalia í hættu

Svo getur farið að punkturinn verði settur aftan við sögu ítalska flugfélagsins Alitalia í dag en ítölsk flugmálayfirvöld hótuðu í dag að fella flugrekstrarleyfi félagsins niður skili stjórnendur þess ekki nýrri rekstraráætlun í lok dags.

Taprekstur Moss Bros eykst og forstjórinn hættir strax

Taprekstur fatakeðjunnar Moss Bros hefur færst í aukana á seinni helming ársins og veldúr það því að forstjórinn Rowland Gee mun láta strax af störfum. Áður hafði komið fram að Gee myndi starfa sem forstjóri fram í febrúar á næsta ári.

Nýskráningum bíla fækkar um 28%

Nýskráningar ökutækja á tímabilinu 1. Janúar 2008 – 19. september 2008 er samtals 16.525 Á sama tímabili í fyrra voru 22.878 ökutæki nýskráð hér á landi. Þetta er 27,8% fækkun nýskráninga milli ára.

Exista hækkar mest í byrjun dags

Gengi hlutabréfa í Existu hækkaði um 1,38 prósent í Kauphöllinni í byrjun dags. Á eftir fylgir gengi hlutabréf bankanna.

Sjá næstu 50 fréttir