Viðskipti innlent

Krónan tók óvæntan sprett

Óli Kristján Ármannsson og Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skrifar
Innlendir fjárfestar seldu erlendan gjaldeyri rétt fyrir lokun viðskiptadagsins í gær. Það skilaði sér í snarpri styrkingu krónunnar.
Innlendir fjárfestar seldu erlendan gjaldeyri rétt fyrir lokun viðskiptadagsins í gær. Það skilaði sér í snarpri styrkingu krónunnar. Fréttablaðið/GVA
Gengi krónunnar tók sprett um stundarfjórðungi fyrir lokun gjaldeyrismarkaða í gær eftir nokkra veikingu framan af degi og styrktist gengi krónunnar um 1,87 prósent þegar yfir lauk.

Gengisvísitalan, sem hafði snert tæp 183 stig um þrjúleytið, endaði í 178,8 stigum.

Þetta er fimmti dagurinn í mánuðinum sem krónan styrkist en annað skiptið sem hækkunin er meiri en eitt prósent.

Vísitalan hefur legið í hæstu hæðum upp á síðkastið og endaði í hæsta gildi, 181,4 stigum, í fyrradag.

Veltan nam samtals 25,8 milljörðum króna á gjaldeyrismarkaði í gær.

Eftir því sem Markaðurinn kemst næst skýrist styrkingin í lok dags af því að innlendir fjárfestar hafi ekki talið líkur á að evran muni rjúfa 140 krónur í bráð og því selt evrur og bandaríkjadali í skiptum fyrir krónur í töluverðu magni.

Þá megi einnig vera að einhver hluti styrkingarinnar liggi í því að Landsbankinn hefur sett þak á samningsupphæðir í afleiðusamningum með gjaldeyri en það hefur verið lækkað úr 300 milljónum króna í 100 milljónir.

Samkvæmt heimildum Markaðarins kemur þetta fram í tölvupósti sem starfsmaður bankans sendi fyrir mistök á hóp viðskiptavina.

Í bréfinu kom fram að ástæða lækkunar þaksins væri sú að verið væri að verja eiginfjárstöðu bankans. Slíkt þak er ekki hjá hinum stóru viðskiptabönkunum, eftir því sem Markaðurinn kemst næst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×