Viðskipti innlent

Landsbankinn lækkar verulega þak á gjaldeyrisviðskipti

Landsbankinn hefur lækkað verulega þak á afleiðuviðskipti með gjaldeyri. Þakið var 300 milljónir kr. en er nú komið niður í 100 milljónir kr. Þetta kann að vera ein af ástæðunum að krónan styrktist óvænt seinnipartinn í gærdag.

Fjallað var um hugsanlegar ástæður þess að krónan styrktist óvænt í gærdag í þættinum Markaðurinn á Stöð 2 í hádeginu. Þar kom fram að gengið hefði sveiflast en verið á niðurleið framan af degi en styrktist svo töluvert rétt fyrir hálffjögur.

Heimildir Markaðarins herma að innlendur fjárfestir hafi fundið á sér að evran næði ekki 140 krónum í bráð og byrjað að selja evrur og bandaríkjadali fyrir krónur í töluverðum mæli. Þá hafi aðrir fjárfestar samstundis hlaupið á eftir.

Síðan segir í Markaðinum: „Þá kann ástæðan fyrir styrkingunni einnig að liggja í því að Landsbankinn hefur lækkað verulega þak á afleiðuviðskipti meið gjaldeyri. Það var þrjú hundruð milljónir króna en er nú 100 milljónir króna. Þetta kemur fram í tölvupósti sem starfsmaður mun hafa sent til viðskiptavina, fyrir mistök. Þetta sé til að verja eiginfjárstöðu bankans.“

Aðrir bankar munu ekki vera með slíkt þak.
















Fleiri fréttir

Sjá meira


×