Sjávarútvegsráðherra hefur áhyggjur af veiku gengi krónunnar 26. september 2008 15:00
Einar Kr. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra segir að sú mikla veiking íslensku krónunnar sem orðið hefur upp á síðkastið sé auðvitað alvarlegt mál. Þetta kom fram í máli ráðherrans á aðalfundi Samtaka fiskvinnslustöðva sem haldinn var á Grand Hóteli í dag. „Og þótt oft hafi verið kallað eftir veikingu krónunnar úr sölum sjávarútvegsins, þá er það ekki svo nú. Þessi staða krónunnar er of veik og er ekki að mati nokkurs þeirra sem um fjallar jafnvægisgengi," segir Einar Kr. Guðfinnsson. „Hagsmunir íslensks sjávarútvegs liggja þess vegna í því að gengi krónunnar verði sterkara en nú og ró skapist í fjármálaumhverfinu sem hefur svo mikil áhrif á stöðu mála í efnahagslífinu hér á landi. Svona veikt gengi er því fremur ógn en tækifæri."Fram kom í máli Einars að ofursterka krónan hefði verið sjávarútveginum hið versta fótakefli í fyrra. Núna kalli sjávarútvegurinn eins og annað atvinnulíf eftir stöðugleika og sterkara gengi.„Auknar skuldir greinarinnar sem fylgja lækkun gengisins eru sömuleiðis alvarlegar og bíta sársaukafullt í efnahagsreikningi fyrirtækjanna," segir Einar. „Þegar við bætast síðan svimandi háir vextir, er ástæða til að hafa áhyggjur. Okkur er öllum ljóst að þetta háa vaxtastig getur einfaldlega ekki gengið til nokkurrar lengdar."
Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Atvinnulíf Fleiri fréttir „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Sjá meira