Buffet vill alls ekki að Henry Poulson verði einráður 25. september 2008 13:03
Ofurfjárfestirinn Warren Buffet vill alls ekki að Henry Poulson fjármálaráðherra Bandaríkjanna verði einráður og án eftirlits með svokallaðan ruslsjóð upp á 700 milljarða dollara. Sjóðurinn er höfuðatriðið í björgunaraðgerðunum sem rætt hefur verið um og er ætlað að kaupa upp undirmálslán og önnur slæm lán af bankakerfinu í Bandaríkjunum. Er málið til umræðu á bandaríska þinginu þessa stundina og mætir mikilli andstöðu meðal þingmanna úr röðum bæði Demókrata og Repúblikana. Í samtali við Financial Times í dag segir Buffet að hann telji að tillagan um sjóðinn eins og hún er nú gefi Poulsen alltof mikil völd og að Poulsen sé ekki maður til að ráða við slíkt. Buffet segir að ákvarðanir Poulsen í síðustu viku í sambandi við björgun AIG tryggingarfélagsins séu vafasamar. Fyrst hafi hann hafnað því að bjarga AIG en síðan boðið félaginu 85 milljarða dollara ríkislán til að bjarga því eftir að markaðurinn reis upp á afturlappirnar vegna fyrri ákvörðunarinnar. Buffet telur að Poulsen beri beina ábyrgð á því að björgunin var yfirleitt nauðsynleg. Þá vill Buffet meina að þegar Poulsen fékk óútfyllta ávísun frá þinginu til að bjarga Freddy Mac og Fannie May hafi hann leyst málið á þann hátt að ein versta fasteignakreppa í Bandaríkjunum frá upphafi varð niðurstaðan.
Mest lesið Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda Viðskipti innlent Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Samstarf Fleiri fréttir Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira