Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gengisvísitala krónunnar í nýjum hæðum Gengi íslensku krónunnar hefur lækkað um rétt rúmt prósent í dag og stendur gengisvísitalan í 171,1 stigum. Vísitalan hefur aldrei verið hærri. 16.9.2008 09:20
Danske Bank fær skell af Lehman en Nordea sleppur Danske Bank mun tapa milljörðum vegna gjaldþrots Lehman Brothers en Nordea sleppur enda með óveruleg viðskipti við Lehman. 16.9.2008 09:03
Áfram lækkanir í kauphöllum ytra Miklar hlutabréfalækkanir einkenndu asíska fjármálamarkaði í morgun í kjölfar gjaldþrotanna vestanhafs í gær. 16.9.2008 08:24
deCODE féll um 19 prósent Gengi á hlutabréfum í deCode, móðurfélagi Íslenskrar erfðagreiningar, féll um 19 prósent á mörkuðum vestanhafs í gær og endaði í 69 sentum á hlut. Það hefur aldrei verið lægra en núna. 16.9.2008 07:54
Evrufylgi eykst Rösklega 55 prósent segjast vera mjög eða frekar hlynnt upptöku evru í stað krónunnar, samkvæmt könnun sem Gallup gerði fyrir Samtök iðnaðarins í ágúst. Liðlega 30 prósent eru mjög eða frekar andvíg því og rúm 14 prósent eru hvorki hlynnt né andvíg. 16.9.2008 07:51
Flýta viðræðum um samruna bankanna Erfiðleikar í rekstri margra af stærstu fjármálafyrirtækjum heims eru líklegir til að flýta fyrir því sem ýmsir telja nauðsynlegan samruna íslenskra fjármálafyrirtækja. 16.9.2008 04:00
Mesta fall í sjö ár í Bandaríkjunum Skellurinn sem varð á bandarískum hlutabréfamarkaði í dag í kjölfar mikilla sviptinga í þarlendum fjármálageira er sá mesti síðan í hryðjuverkaárásunum 11. september fyrir sjö árum. 15.9.2008 21:02
Líkur á óbreyttum stýrivöxtum vestanhafs Flest bendir til þess að seðlabanki Bandaríkjanna ákveði að halda stýrivöxtum sínum óbreyttum í tveimur prósentum á næsta vaxtaákvörðunarfundi á morgun. 15.9.2008 21:28
Ólíklegt að hluthafar fái skaðabætur vegna meintra bókhaldssvika Ólíklegt er að hluthafar í Eimskipafélaginu geti gert kröfu um skaðabætur vegna meintra bókhaldssvika Excel Airways, sem síðar varð XL Leisure Group. 15.9.2008 18:39
Allt í lagi þrátt fyrir gjaldþrot Lehman „Bandaríkjamenn geta verið rólegir,“ sagði Henry Paulson, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í Washington í Bandaríkjunum í dag. 15.9.2008 17:43
Afskriftir vegna undirmálslána eru orðnar 45.000 milljarðar kr. Afskriftir fjármálastofnanna vegna undirmálslána og tengdum eignum eru orðnar ríflega 500 milljarðar dollara eða sem nemur 45.000 milljarða kr. 15.9.2008 16:42
Eimskipafélagið leiddi lækkun dagsins Gengi hlutabréfa í Eimskipafélaginu hafði fallið um 21 prósent þegar viðskiptadeginum lauk í Kauphöllinni lauk í dag. Þetta er mesta fall dagsins. Þá féll gengi bréfa í færeyska olíuleitarfélaginu 8,44 prósent og í löndum þeirra, Eik banka, um 6,86 prósent. 15.9.2008 15:36
Danska fjármálaeftirlitið gefur Eik Banki áminningu Danska fjármálaeftirlitið hefur gefið Eik Banki í Færeyjum áminningu og krafist breytinga á viðskiptaháttum bankans í fasteignalánum hans. Eik Banki er einnig skráður í kauphöllinni hér á landi. 15.9.2008 15:35
Magnús Stephensen: Ömurleg lífsreynsla að lenda í svona gjaldþroti Magnús Stephensen hluthafi og stjórnarmaður í XL Leisure Group , sem varð gjaldþrota í síðustu viku, segist ekki óska neinum þess að ganga í gegnum gjaldþrot af þessari stærðargráðu því það sé ömurleg lífsreynsla. 15.9.2008 15:30
Gengi DeCode aldrei lægra Gengi hlutabréfa í DeCode, móðurfélagi Íslenskrar erfðagreiningar, hefur fallið um 20 prósent í þeim ólgusjó sem riðið hefur yfir bandaríska hlutabréfamarkaði í dag og situr nú í 68 sentum á hlut. Það hefur aldrei verið lægra. 15.9.2008 14:11
Segir Wall Street á leið niður í ræsið Franz Wenzel aðstoðarforstjóri fjárfestingadeildar Axa Investment segir í samtali við Bloomberg að Wall Street sé í grundvallaratriðum á leið niður í ræsið. 15.9.2008 13:58
Lehman Brothers skellir bandarískum hlutabréfamarkaði Gengi hlutabréfa í bandaríska fjárfestingabankanum Lehman Brothers féll um 93 prósent við upphaf viðskiptadagsins í miklum hremmingum á bandarískum hlutabréfamörkuðum í dag. Bankinn, sem er fjórði umsvifamesti fjárfestingabanki landsins, lýsti sig gjaldþrota í dag. Gjaldþrotið hefur smitað út frá sér um allan heim. 15.9.2008 13:47
Norski olíusjóðurinn fær skell vegna Lehman Brothers Norski olíusjóðurinn mun þurfa að taka á sig umfangsmikinn skell vegna gjaldþrots Lehman Brothers. Á vefsíðunni E24 er greint frá því að sjóðurinn hafi átt um 8 milljarða kr. í hlutabréfum í Lehman og nær 70 milljarða í skuldabréfum sem Lehman er útgefandi að. 15.9.2008 12:42
Úrvalsvísitalan fallin um 39 prósent frá áramótum Úrvalsvísitalan hefur fallið um rúm 39 prósent frá áramótum og hefur ekki verið lægri síðan um miðjan mars 2005. Þetta merkir að tveggja og hálfs árs gengishækkun er horfin úr Kauphöllinni. 15.9.2008 12:14
Ekki útilokað að lánakjör versni vegna nýjustu tíðinda í fjármálaheiminum Ekki er útilokað að lánskjör versni í millibankaviðskiptum og það skili sér í enn erfiðari aðgengi að lánsfjármagni fyrir almenning. 15.9.2008 12:10
Spáir áframhaldandi sviptingum á verðbréfamörkuðum Hlutabréf í Kauphöllinni hafa fallið um 3,5 prósent í dag eftir að tilkynnt var um gjaldþrot bandaríska fjárfestingabankans Lehman Brothers. Viðskiptabankarnir hafa allir fallið í verði og þá lækkuðu hlutabréf í Eimskipafélaginu um 25 prósent við opnun markaðar. Krónan hefur veikst um 2 prósent. Forstjóri Kauphallarinnar spáir áframhaldandi sviptingum á verðbréfamörkuðum. 15.9.2008 12:06
Fallhraðinn jókst í Kauphöllinni Fall hlutabréfa í Kauphöllinni jókst verulega þegar nær dró hádegi í dag. Gengi bréfa í Eimskipafélaginu hefur fallið um 18,75 prósent, Spron um 6,54 prósent, Exista um 5,23 prósent og gengi bréfa í Atlantic Petroleum um 5,2 prósent. 15.9.2008 12:04
Lehman skýrt dæmi um að bönkum verði ekki bjargað Fall Lehman Brothers gefur skýr skilaboð um að bankar geti ekki gengið að því vísu að verða bjargað af yfirvöldum þegar í harðbakkann slær. 15.9.2008 11:16
Skuldatryggingarálag íslensku bankanna hækkar mikið Skuldatryggingarálag íslensku bankanna hækkaði mikið í morgun miðað við stöðuna fyrir helgi. Hlutfallslega hækkar álagið mest hjá Landsbankanum eða um 40%. 15.9.2008 10:59
Fjöldi olíuborpalla ónýtir eftir yfirreið Ike Útlit er fyrir að fellibylurinn Ike hafi eyðilagt að minnsta kosti tíu olíuborpalla og fjölda olíu- og gasleiðslur í Mexíkóflóa. 15.9.2008 10:59
Krónan rýfur 170 stiga múrinn Gengi krónunnar hefur fallið um rétt tæp tvö prósent í dag og stendur gengisvísitalan í 170,9 stigum. Vísitalan náði síðast viðlíka hæðum seint í júní. 15.9.2008 10:54
Evrópski seðlabankinn pumpar 3.900 milljörðum í markaðinn Evrópski seðlabankinn (ECB) mun pumpa 3.900 milljörðum kr. í fjármálamarkaði á evrusvæðinu. Þetta gerir bankinn til að vinna á móti mikilli niðursveiflu á þessum mörkuðum í dag í kjölfar gjaldþrots Lehman Brothers. 15.9.2008 10:32
Goldman og JP Morgan líka búnir að vera? Nouriel Roubini, prófessor við New York háskóla efast um að JP Morgan og Goldman Sachs geti lifað af lánsfjárkreppuna. 15.9.2008 10:28
Norska ríkisstjórnin lætur af andstöðu gegn sölu SAS Líkurnar á að SAS flugfélagið verði selt þýska flugfélaginu Lufthansa hafa aukist að mun eftir að norska ríkisstjórnin virðist hafa látið af andstöðu sinni gegn sölunni. 15.9.2008 10:18
Eimskip fellur um 25 prósent Gengi hlutabréfa í Eimskipafélaginu féll um 25 prósent á fyrstu mínútunum í Kauphöllinni í dag. Hlutabréf í félaginu hefur fallið um rúm 58 prósent frá mánaðamótum. 15.9.2008 10:13
Heimsmarkaðsverð á olíu komið undir 97 dollara Heimsmarkaðsverð á olíu er nú komið undir 97 dollara á tunnuna. Er þetta lægsta verð sem sést hefur undanfarna sjö mánuði. 15.9.2008 10:10
Straumur leiðir lækkanahrinu í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa í Straumi-Burðarási féll um 3,87 prósent í upphafi viðskiptadagsins í Kauphöllinni í dag. Þetta er mesta fall dagsins í þeirri alþjóðlegu niðursveiflu sem hefur einkennt gengi fjármálafyrirtækja á hlutabréfamarkaði í dag. 15.9.2008 10:06
Stjórn Eimskips tjáir sig ekki um málefni félagsins að sinni Stjórn Eimskips mun ekki tjá sig um málefni félagsins að sinni eða þar til innanhúsrannsókn þeirra er lokið. 15.9.2008 09:59
Gengisvísitalan svífur við methæðir Gengi krónunnar hefur lækkað um rétt rúm 1,3 prósent í dag og stendur gengisvísitalan í 169,8 stigum. 15.9.2008 09:44
Greenspan segir fleiri munu verða gjaldþrota Alan Greenspan hefur bæst í hóp þeirra sem spá fleiri stórum bankagjaldþrotum í Bandaríkjunum. Talað er um hrun bandaríska fjármálakerfisins. 15.9.2008 09:42
Íslenskar eignir falla á Norðurlöndunum Verð hlutabréfa í Kaupþingi, sem skráð eru á markað í Nasdaq-OMX kauphöllina í Stokkhólmi í Svíþjóð, hefur fallið um fjögur prósent í dag. Þá hafa stórar eignir Kaupþings og Existu á Norðurlöndunum lækkað nokkuð í verði. 15.9.2008 09:24
Stærstu norrænu bankarnir í niðursveiflu í morgun Stærstu bankar Norðurlandanna hafa fallið um 4% á mörkuðum í morgun og fara þar með ekki varhluta af niðursveiflunni sem fylgt hefur í kjölfar gjaldþrots Lehman Brothers. 15.9.2008 09:10
Niðursveifla á mörkuðum í Asíu og Evrópu vegna Lehman Mikil niðursveifla hefur verið á hlutabréfamörkuðum bæði í Asíu og Evrópu í morgun og er hún rakin beint til gjaldþrots Lehman Brothers. 15.9.2008 09:04
Síminn hækkar verðið í dag Síminn hækkar gjaldskrá sína í dag og hækka nær allir liðir hennar nema svonefndar sparileiðir, sem Síminn hefur kynnt í auglýsingaherferð að undanförnu. 15.9.2008 07:45
Lehman Brothers-bankinn er gjaldþrota Eigendur bandaríska fjárfestingabankans Lehman Brothers lýstu hann gjaldþrota í nótt og tilboð Bank of America um yfirtöku Merrill Lynch-bankans hefur verið samþykkt. Það hljóðaði upp á sem nemur 4.500 milljörðum króna. 15.9.2008 06:14
Barclays kaupir ekki Lehman Breski bankinn Barclays sem þótti líklegur til að taka yfir bandaríska fjárfestingarbankann Lehman Brothers hefur dregið sig út úr viðræðum um kaup á félaginu. Þetta kemur fram á fréttavef BBC. 14.9.2008 17:47
Aðalstyrktaraðili United í vandræðum Bakhjarlar knattspyrnuliðins West Ham eru ekki þeir einu sem eiga í erfiðleikum þessa dagana. Bandaríska trygginga- og fjárfestingafélagið AIG Investments sem er einn helsti styrktaraðili Manchester United á í talsverðum vandræðum. 14.9.2008 10:49
Endurskoðendur hættu í undanfara skráningar Avion Group Endurskoðunarfyrirtækið KPMG sagði upp samningi sínum við breska ferðaheildsalann XL eftir að forráðamenn þess hundsuðu ábendingar þess efnis að verið væri að fegra reikninga þess í undanfara skráningu Avion Group í Kauphöll Íslands síðla árs 2006. 14.9.2008 07:36
Fall XL Leisure vekur athygli á umsvifum Íslendinga Gjaldþrot bresku ferðaskrifstofunnar XL Leisure Group í gærmorgun beinir athygli breskra fjölmiðla að umsvifum íslenskra kaupsýslumanna í landinu en ferðaskrifstofan var að hluta til í eigu Íslendinga. 13.9.2008 15:00
Straumur setti tæpa tvo milljarða inn í XL á síðustu vikum Straumur fjárfestingabanki setti tæpa tvo milljarða íslenskra króna inn í XL Leisure Group á síðustu vikum til þess að reyna að halda félaginu á floti. Þetta kemur fram í breska blaðinu The Guardian í dag. Þar segir að Straumur, sem á kröfu í XL upp á tæpa sex milljarða íslenskra króna, hafi reynt að kaupa fyrirtækinu tíma til þess að endurfjármagna sig en að allt hafi komið fyrir ekki. Fyrirtækið var lýst gjaldþrota í gærmorgun. 13.9.2008 10:54