Fleiri fréttir

Nýr forstjóri Actavis: Engar stórvægilegar breytingar framundan

„Þetta leggst mjög vel í mig. Þetta er mikið verkefnið og frábært fyrirtæki, fimmta stærsta samheitalyfjafyrirtæki í heimi. Markaður fyrir samheitalyf er að vaxa og það er frábært tækifæri að taka fyrirtækið áfram,“ segir nýráðinn forstjóri Actavis, Sigurður Óli Ólafsson, og bætir við að hann taki við góðu búi.

Fá 45 prósentum hærra verð fyrir fiskinn en í fyrra

Verðbólga á Íslandi hefur ekki verið hærri í átján ár. Hún er nú komin í 13,6 prósent. Útflytjendur standa hins vegar mun betur að vígi en í fyrra og fiskútflytjendur fengu í sumar nærri 45 prósenumt hærra verð fyrir fiskinn en á sama tíma á síðasta ári.

Minnkandi álútflutningur kemur á óvart

Greining Glitnis segir það koma á óvart að í bráðabirgðatölum Hagstofunnar yfir vöruskipti við útlönd skuli vera gert ráð fyrir samdrætti í útflutingi á áli og sjávarafurðum. Eins og greint var frá á Vísi fyrr í dag kom fram að verulegur viðsnúningur er á milli júní og júlímánaðar ef tölur Hagstofunnar ganga eftir. Halli á viðskiptunum í júlí nam 18,2 milljörðum króna en í júní var afgangur upp á 2,3 milljarða. „Er þetta mesti halli á vöruskiptum í einum mánuði frá því í desember 2006 og verulegur viðsnúningur frá júní," segir í fréttabréfi Greiningar Glitnis.

Úrvalsvísitalan upp í byrjun dags

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,38 prósent við opnun í Kauphöllinni í morgun. Markaðurinn fór þó heldur rólega af stað, veltan hingað til er 143 milljónir og munar þar mest um viðskipti með bréf í Exista upp á 51 milljón króna.

Úrvalsvísitalan á uppleið

Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,46 prósent við opnun markaða. Hún stendur nú í 4152 stigum. Eik banki hefur hækkað um 1,44 prósent, Landsbankinn um 1,3 prósent og Glitnir um 0,33 prósent.

Hagnaður Føroya Banka 340 milljónir á fyrri hluta árs

Hagnaður Føroya Banka, sem skráður er í Kauphöll Íslands, nam 21 milljón danskra króna, jafnvirði um 340 milljóna króna eftir skatta á fyrri helmingi ársins. Þetta kemur fram í hálfsársuppgjöri sem sent var Kauphöllinni í dag.

Enn styrkist krónan

Krónan hefur styrkst lítillega í mrogunsárið. Gengisvísitalan hefur lækkað um 0,29 prósent og stendur nú í 156,1 stigum. Dollarinn kostar nú 78,4 krónur, evran 121,4 krónur, breska pundið 153,3 krónur og danska krónan 16,3 krónur.

Matsfyrirtækin hrella íslensku bankana

Breska fjármálafyrirtækið Euroweek tekur upp hanskann fyrir íslensku bankana í harðorðri grein sem birtist í blaðinu í gær. Þar eru matsfyrirtæki á borð við Standard & Poors' og Moody's harðlega gagnrýnd fyrir að breyta sífellt viðmiðum sínum þegar tekin er ákvörðun um lánshæfismat fyrir bankana. Þannig skipti engu hvað bankarnir geri til þess að lagfæra lánshæfismatið, matsfyrirtækin finni bara aðrar ástæður til að lækka enn frekar eða halda í horfinu.

Stefnumörkun er forsendan

Trúverðug langtímastefnumörkun er forsenda þess að náð verði tökum á aðsteðjandi vanda í efnahagslífinu, að mati Árna Páls Árnasonar, þingmanns Samfylkingarinnar.

Eldingum skotið í tölvur í prófunum

Tölvuframleiðandinn Lenovo leggur mikla áherslu á gæðaprófanir í framleiðslu á tölvubúnaði sínum. Björn Birgisson, yfirvörustjóri hjá Nýherja, heimsótti höfuðstöðvar Lenovo í Peking og komst að því að þar eru tölvurnar frystar, hristar, hitaðar, fallprófaðar og látnar verða fyrir eldingum í gæðaprófunum.

Árvakur og 365 skoða samstarf

„Það liggur ekkert fyrir um að slíkt takist en það eru það erfiðar aðstæður á prentmarkaðnum að ef það ætti einhvern tímann að ganga þá væri það núna,“ segir Ari Edwald, forstjóri 365. Heimildir Markaðarins herma að samningaviðræður eigi sér stað milli 365 og Árvakurs til að ná fram stærðarhagkvæmni í rekstri. Á það einkum við rekstrarliði sem lúta að framleiðslu og dreifingu á dagblöðum.

Undirmálslánakreppan aðeins toppurinn á ísjakanum

Samkvæmt skýrslu samtakanna Hope Now, sem aðstoða bandaríska húsnæðiseigendur sem eiga í vandræðum með afborganir, lenda Bandaríkjamenn með góð veð og „hefðbundin“ húsnæðislán í vaxandi mæli í vandræðum með afborganir. Á öðrum ársfjórðungi aðstoðuðu samtökin 34.000 fleiri með „hefðbundin“ húsnæðislán en „undirmálslán“, en alls aðstoðuðu samtökin nærri 1.800.000 manns á öðrum ársfjórðungi. Þá sýna tölur samtakanna að skjólstæðingar, sem höfðu hefðbundin húsnæðislán, mistókst hlutfallslega oftar en þeim sem höfðu undirmálslán að ná tökum á afborgunum, þrátt fyrir skuldbreytingu, og misstu þar með heimili sín.

Sparisjóðir í vandræðum vegna gengisfalls Existu

„Miðað við stöðu Sparisjóðs Mýrasýslu um áramót í samanburði við aðra sparisjóði má ætla að fleiri sparisjóðir lendi í vandræðum á næstunni,“ segir Sveinn Þórarinsson, hjá greiningu Glitnis.

Með stefnuleysi er vandanum viðhaldið

Gott er að fá yfir sumartímann ráðrúm til að meta aðstæður og velta fyrir sér hvert stefnir í efnahagsmálum, að mati Árna Páls Árnasonar þingmanns. Hann segir hins vegar ljóst að í haust hljóti að vera tími aðgerða og skýrrar stefnumörkunar á sviði stjórnmálanna.

Urriðavöllur dýrastur

Urriðavöllur er dýrasti golfvöllur landsins árið 2008. Urriðavöllur er rekinn af Golfklúbbnum Oddi. Hringurinn á Urriðavelli kostar 7.400 krónur án afsláttar. Næstur í kjölfarið kemur Vífilsstaðavöllur Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar. Gjaldið þar er 7.000 krónur.

Dögun vetnisaldar – veruleiki eða framtíðarsýn

Jarðeldsneyti er takmarkað og ljóst er að síhækkandi eldsneytisverð er að sliga atvinnuvegi landsins og að hagkvæmara er orðið að leita annarra leiða til að knýja ökutæki í framtíðinni. Í bók sinni, Dögun vetnisaldar – róteindin tamin fjallar Þorsteinn Ingi Sigfússon um vetni sem orkugjafa. Bókin er gefin út samtímis á íslensku og ensku.

Kvótaþak hamlar vexti sjávarútvegs

„Í sjávarútvegi þar sem starfað er við útflutning mæla engin hagfræðileg rök með því að stærð fyrirtækja sé haldið niðri með hömlum á kvótaeign,“ segir Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greiningar Kaupþings.

Netinnlán aukast

Netinnlánareikningar eru farnir að gegna veigamiklu hlutverki í fjármögnun íslensku bankanna. Þrír stærstu bankar landsins hafa opnað slíka reikninga erlendis og fjölgar innlánum og viðskiptavinum hratt. Landsbankinn starfrækir Icesave-netreikningana í Bretlandi og Hollandi. Glitnir starfrækir Save and Save í Noregi og á Íslandi og loks Kaupþing Edge sem er starfrækt í tíu löndum í Evrópu.

Sterling segir upp 135 manns

Danska flugfélagið Sterling, sem er í eigu íslenskra félaga, hefur sagt upp 135 manns eftir því sem Danska ríkisútvarpið greinir frá.

Teymi hækkaði mest í Kauphöllinni

Það var Teymi hf. sem leiddi hækkunina í Kauphöll Íslands í dag en félagið hækkaði um 4,65% og stendur gengi félagsins nú í 1,80. Exista hækkaði einnig um 1,67% en alls hækkuðu sjö félög. Century Aluminum Company lækkaði mest eða um 12,86%.

Krónan styrkist töluvert

Íslenska krónan styrktist töluvert í dag. Lækkaði gengisvísitalan um 1,6 prósent og stendur nú í 156,7 stigum. Dollarinn kostar nú 78,8 krónur, evran 121,9 krónur, breska pundið 153,9 krónur og danska krónan 16,3 krónur.

Úrvalsvísitalan lækkar lítillega

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,13 prósent í dag og stendur nú 4133 stigum. Teymi hækkaði um 4,65 prósent, Exista um 1,67 prósent og Atlantic Airways um 0,39 prósent. Century Aluminium lækkaði um 12,9 prósent, Eik banki um 2,8 prósent og Færeyja banki um 2,13 prósent.

Róbert: Kominn tími til að breyta til eftir tíu ár

Róbert Wessman er hættur sem forstjóri hjá Actavis. Þetta staðfesti hann í samtali við Vísi nú fyrir skömmu. Aðspurður um ástæður þess að hann hættir svarar Róbert að hann sé með mikla hagsmuni í sínu eigin félagi, Salt Investments, og að tími hafi verið kominn á breytingar.

Forstjóri B&L segir fyrirtækið í ágætis málum

Haukur Guðjónsson forstjóri B&L segir fyrirtækið ekki eiga við frekari erfiðleika í rekstri en aðrir á markaðnum. Hann segir sögur þess efnis að rekstri verði hætt úr lausu lofti gripnar. Þvert á móti beri fyrirtækið sig vel og hafi selt ágætlega það sem af er ári.

H.A.G. ehf tekur við Liebherr þjónustu af Mest

H.A.G. ehf hefur tekið við þjónustu á Liebherr vélum og tækjum af Mest ehf. Liebherr var stofnað í Þýskalandi 1949 af Hans Liebherr og framleiddi í upphafi ódýra byggingarkrana.

Krónubréf falla á gjalddaga í vikunni

Krónubréf að nafnvirði 20 milljarðar króna að viðbættum vöxtum falla á gjalddaga í ágústmánuði, þar af 15 milljarðar næsta föstudag.

Enn lækkar olíuverðið

Verðið á olíutunnunni lækkaði enn við opnun markaða í dag og hefur verðið ekki verið lægra í þrjá mánuði. Verðið á tunnu fór niður í 118 dollara en hefur hækkað örlítið það sem af er degi.

Krónan styrkist

Krónan hefur styrkst um 0,66 prósent það sem af er degi en gengisvísitalan hefur lækkað sem því nemur og stendur nú í 158,22. Bandaríkjadalur stendur nú í tæpum áttatíu krónum, Danska krónan er í 16,61 og Evran er í 123,9 krónum. Breska pundið er í 157 krónum og fyrir sænsku krónuna fást 13 krónur íslenskar.

Úrvalsvísitalan upp um 0,25 prósent

Níu félög hafa hækkað í Kauphöllinni það sem af er degi og fimm hafa lækkað. Úrvalsvísitalan hefur hækkað lítillega, um 0,25 prósent. Eik Banki í Færeyjum hefur hækkað mest, um 5,42 prósent en af íslenskum félögum hefur Teymi hækkað mest, um 4,65 prósent. Á bakvið þá hækkun er þó lítil velta, rétt rúmar tuttugu þúsund krónur. Exista og SPRON fylgja í kjölfarið og hafa hvort um sig hækkað um.

Minni ótti við kreppu á Íslandi

Óttinn við fjármálakreppu á Íslandi hefur minnkað eftir að þrír stærstu bankarnir tilkynntu um afkomu sína á öðrum ársfjórðungi. Þetta segir í viðskiptablaðinu Financial Times.

Ikea mun opna símaþjónustu

Sænski húsgagnaframleiðandinn Ikea tekur fyrirtæki eins og Asda og Tesco sér til fyrirmyndar og ætlar að setja á markað símaþjónustu.

Shell í viðræðum við rússneskt olíufélag

Viðræður Shell við rússneska olíufélagið Sibir um hlutafjársamning að verðmæti 1 milljarð breskra punda, eða tæpa 140 milljarða íslenskra króna, eru á byrjunarstigi.

Rekstraraðili Hans Petersen hefur lýst yfir gjaldþroti

HP Farsímalagerinn, sem rekur verslanir Hans Petersen, hefur lýst yfir gjaldþroti. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Verslunum félagsins í Smáralind og Kringlunni hefur verið lokað. Nýtt félag, Verslanir Hans Petersen ehf, tók í gær við rekstri verslana á Laugavegi og Bankastræti og mun það félag geta tryggt hluta starfsmanna framtíðarstörf eins og segir á heimasíðu félagsins.

Ætla að selja hluti í Skiptum

Exista hefur samið við MP Fjárfestingarbanka og Kaupþing um undirbúning á sölu á hlutum í Skiptum, móðurfélagi Símans. Þetta kom fram í máli Erlendar Hjaltasonar, forstjóra Exista á kynningarfundi í gærmorgun vegna árshlutauppgjörs.

Tap Exista 4,2 milljarðar króna

Tap Exista á öðrum fjórðungi ársins nemur 38,4 milljónum evra (4,2 milljörðum króna) samkvæmt uppgjöri sem birt var í gær. Á sama tíma í fyrra hagnaðist félagið um 221,4 milljónir evra.

Storebrand fært í bókum Exista

Eignarhlutur Exista í Storebrand verði framvegis færður með í fjármálaþjónustu í reikningum félagsins í stað fjárfestingar.

Sjá næstu 50 fréttir