Nýr forstjóri Actavis: Engar stórvægilegar breytingar framundan Steinþór Helgi Arnsteinsson skrifar 6. ágúst 2008 12:38 Sigurður Óli Ólafsson, nýr forstjóri Actavis. MYND/GVA „
Þetta leggst mjög vel í mig. Þetta er mikið verkefnið og frábært fyrirtæki, fimmta stærsta samheitalyfjafyrirtæki í heimi. Markaður fyrir samheitalyf er að vaxa og það er frábært tækifæri að taka fyrirtækið áfram," segir nýráðinn forstjóri Actavis, Sigurður Óli Ólafsson, og bætir við að hann taki við góðu búi. Róbert var ekki rekinn Sigurður þvertekur fyrir að Róbert Wessmann, fráfarandi forstjóri Actavis, hafi verið rekinn, eins og ýmsar sögusagnir hafa verið uppi um, og telur að hann hafi hætt á réttum tíma. „Ég held að þetta hafi verið ákveðinn tímapunktur. Það er ár liðið frá því að fyrirtækið var einkavætt og þá á sér stað ákveðin breyting á „strategíu" þegar fyrirtækið er tekið af markaði. Ég held því að Róbert hafi hætt á hárréttum tíma til að fara að sinna sínum verkefnum." Samheitalyfjamarkaðurinn er sterkur Sigurður Óli er hvergi banginn þrátt fyrir að umræðan á sviði viðskipta hafi verið heldur neikvæð undanfarið. Hann segir að samheitalyfjamarkaðurinn sé sterkur enda hefur efnahagskreppa lítil áhrif á sölu lyfja. Jafnvel sé það svo að á krepputímum taki almenningur oft samheitalyf fram yfir frumlyf. Sóknin beinist að Bandaríkjunum Með nýjum forstjóra fylgja nýjar áherslur þó Sigurður segi að ekki megi vænta neinna stórvægilegra breytinga á rekstri Actavis. „Það verða auðvitað einhverjar áherslubreytingar og smávægilegar breytingar innan húss. Breyttar áherslur verða þá kannski að það verður meiri fókus á okkar innri vöxt á lykilmörkum þar sem við sjáum tækifæri með þeim lyfjum sem við erum að vinna að í dag. Við erum einnig að skoða aukin tækifæri í að vera fyrst með lyf á markað í Bandaríkjunum. Ef þú ert fyrstur á markað með lyf í Bandaríkjunum þá gefur það þér ákveðin markaðstækifæri því þú ert einn á markaðnum í sex mánuði. Við erum að skoða að einblína meira á þann þátt en venjulega. En yfirhöfuð verða engar breytingar á stefnu fyrirtækisins," segir Sigurður að lokum.
Mest lesið „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Viðskipti innlent Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Viðskipti erlent Fleiri fréttir Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Sjá meira