Róbert: Kominn tími til að breyta til eftir tíu ár 5. ágúst 2008 14:45 Róbert Wessman, fráfarandi forstjóri Actavis.
Róbert Wessman er hættur sem forstjóri hjá Actavis. Þetta staðfesti hann í samtali við Vísi nú fyrir skömmu. Aðspurður um ástæður þess að hann hættir svarar Róbert að hann sé með mikla hagsmuni í sínu eigin félagi, Salt Investments, og að tími hafi verið kominn á breytingar. „Þessi ákvörðun mín kemur kannski eins og köld vatnsgusa framan í starfsfólkið en þetta er ekki ákvörðun sem var tekin í flýti. Ég lofaði sjálfum mér því fyrir tveimur til þremur árum að hætta eftir þann tíma og nú er ég hættur. Ég er búinn að vera hjá Actavis í tíu ár og það er einfaldlega kominn tími til að breyta," segir Róbert. Róbert mun einbeita sér að fjárfestingafélagi sínu, Salt Investments, en hann hyggst ekki setjast í forstjórastólinn þar. „Ég er með toppmann, Árna Harðarson, sem stýrir þessu og verð meira á kantinum að sinna þeim verkefnum sem þarf. Eftir tíu ár í djúpu lauginni verður fínt að vera með einn kaldan á laugarbakkanum og fylgjast með hinum," segir Róbert og hlær. Hann segir stöðu Salt Investsments trausta. „Félagið hefur lokið við fjármögnun og eiginfjárstaða þess er mjög góð. Við horfum björtum augum fram á veginn," segir Róbert. Aðstoðarforstjóri Actavis, Sigurður Óli Ólason, mun setjast í forstjórastólinn hjá Actavis.
Mest lesið „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Viðskipti erlent Fleiri fréttir Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Sjá meira