Singer og Friedlander selur rekstur á sviði iðgjaldafjármögnunar 5. ágúst 2008 10:57 Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kaupthing Singer & Friedlander.
Kaupthing Singer & Friedlander, dóturfélag Kaupþings, hefur selt rekstur sinn á sviði tryggingaiðgjaldafjármögnunar til Close Brothers á lítils háttar yfirverði miðað við bókfært verð. Þetta kemur fram í tilkynningu Kaupþings til Kauphallar Íslands. Með þessu losar Singer og Friedlander um lausafé sem nemur um hundrað milljónum punda, eða um 16 milljörðum króna. Jafnframt hefur félagið nánast hætt rekstri á sviði hrávöruviðskiptafjármögnunar og hafa 97 prósent af upphaflegu eignasafni, sem nam tæplega 350 milljónum punda, jafnvirði um 55 milljarða króna, verið greidd upp. Kaupþing keypti Singer og Friedlander árið 2005 og hefur síðan unnið að endurskipulagningu á rekstri félagsins. Þessu til viðbótar vinnur Singer og Friedlander að því að hætta starfsemi á sviði eignafjármögnunar og hafa margir hugsanlegir kaupendur lýst áhuga á starfseminni í heild eða að hluta eftir því sem segir í tilkynningunni. Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kaupthing Singer & Friedlander, segir enn fremur í tilkynningunni að lausafjárstaða félagsins styrkist enn frekar í kjölfar þessara ráðstafana „og í ljósi þess að innlánaafurð okkar á netinu, Kaupthing Edge, hefur gengið mjög vel. Við erum því áfram bjartsýn á stöðu rekstrarins í Bretlandi," segir Ármann.
Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Sjá meira