Viðskipti innlent

Úrvalsvísitalan upp í byrjun dags

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,38 prósent við opnun í Kauphöllinni í morgun. Markaðurinn fór þó heldur rólega af stað, veltan hingað til er 143 milljónir og munar þar mest um viðskipti með bréf í Exista upp á 51 milljón.

Kaupthing hækkaði um 0,71 prósent. Glitnir hækkaði einnig, um 0,66 prósent en Century Aluminum lækkaði um 2,48 prósent.

Krónan styrkist enn og lækkaði gengisvísitalan um 0,42 prósent í morgun. Vísitalan stendur nú í 155,97 stigum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×