Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Atlantic Airways á uppleið í Kauphöllinni Færeyingarnir hjá flugfélaginu Atlantic Airways flugu upp um sex prósent prósent við upphaf viðskipta í Kauphöll Íslands í dag en afkomutölur félagsins fyrir síðasta ár voru birtar í gær. Félagið skilaði hagnaði upp á jafnvirði 312 milljóna íslenskra króna í fyrra, sem er besta ár í sögu Atlantic Airways. 21.2.2008 16:46
Umdeildur greinandi óttast ekki um starf sitt David Karsbøl hjá greiningadeild Saxobank í Danmörku segist ekki óttast um starf sitt þrátt fyrir hörð viðbrögð vegna álits sem hann gaf á íslensku bönkunum. Danska blaðið Börsen hafði eftir David að Kaupþing og aðir íslenskir bankar stefndu í gjaldþrot. 21.2.2008 15:51
Kostar 2,50 að slá eina krónu Það kostar 2,50 krónur að slá eina íslenska krónu samkvæmt upplýsingum frá Ingvari Alfreð Sigfússyni, rekstrarstjóra Seðlabankans. Ástæðan fyrir dýrum slætti er mikil hækkun á málmi á undanförnum misserum. 21.2.2008 14:00
Kaupþing einn af helstu fjármögnunaraðilum Saxo „Hann er annaðhvort fáfróður eða heimskur um Kaupþing, greinandi Saxo sem heldur því fram að Kaupþing og hinir íslensku bankarnir séu að verða gjaldþrota," segir Sigurður Einarsson, stjórnarformaður Kaupþings. Samkvæmt heimildum Markaðarins er Kaupþing einn af helstu fjármögnunaraðilum Saxo en Sigurður vildi þó ekki tjá sig eða staðfesta það. 21.2.2008 12:15
Kaupþing á hausinn og Ron Paul í Hvíta húsið Spádómur Davids Karsbol um válegar framtíðarhorfur hjá Kaupþingi hafa vakið hörð viðbrögð Sigurðar Einarssonar forstjóra Kaupþings. Sigurður sagði í viðtali við danska viðskiptablaðið Börsen að mat Karsbol skýrðist annað hvort af heimsku eða algerri fáfræði um íslenskt viðskiptalíf. Hann virðist þó ekki þurfa að hafa áhyggjur ef mið er takið af fyrri spádómum Karsbol. 21.2.2008 12:13
Mjólka kaupir Vogabæ Mjólka hefur fest kaup á matvælafyrirtækinu Vogabæ, sem er einna þekktast fyrir Vogaídýfurnar, og hefur mjólkurstöð Mjólku verið flutt í verksmiðjuhúsnæði Vogabæjar í Hafnarfirði. 21.2.2008 11:27
Róleg byrjun í kauphöllinni Það hefur verið róleg byrjun í kauphöllinni í morgun. Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,22% og stendur nú í 5.071 stigum. 21.2.2008 10:55
Baldur Guðnason hættir hjá Eimskip Baldur Guðnason, forstjóri Hf. Eimskipafélags Íslands hefur ákveðið að láta af störfum hjá félaginu að eigin ósk og hættir störfum hjá félaginu frá og með deginum í dag. Stefán Ágúst Magnússon, sem verið hefur aðstoðarforstjóri félagsins undanfarin ár, mun sinna starfi forstjóra þar til annað verður tilkynnt. 21.2.2008 10:21
Stórfelldur samdráttur hjá Société Generale Franski bankinn Socété Generale hagnaðist um 947 milljónir evra, jafnvirði 94 milljarða íslenskra króna, á síðasta ári þrátt fyrir að 4,9 milljarðar evra hafi verið strikaðar út úr bókum bankans vegna taps verðbréfamiðlarans fyrrverandi, Jeróme Kerviels. Þetta er engu að síður 82 prósenta samdráttur á milli ára. 21.2.2008 08:53
Heimskir eða fáfróðir Sigurður Einarsson, starfandi stjórnarformaður Kaupþings, vandar greiningaraðila hjá Saxo Bank ekki kveðjurnar en sá taldi allt eins líklegt að Kaupþing yrði gjaldþrota fyrir árslok. 20.2.2008 17:41
Sextán félög lækkuðu í dag Sextán félög lækkuðu í Kauphöllinni í dag á meðan fimm hækkuðu. Mest var lækkun á bréfum Exista sem fór niður um 2,09 prósent. Eimskip kom þar á eftir með 1,84 prósent og FL Group lækkaði um 1,57 prósent. 20.2.2008 17:39
Nauðsynlegt að bæta Lárusi skaða af flutningi milli starfa Nauðsynlegt var að bæta Lárusi Welding, forstjóra Glitnis, þann fjárhagslega skaða sem hann hefði ella orðið fyrir við að færa sig til bankans frá Landsbankanum í London. 20.2.2008 16:14
Býst við gjaldþroti íslenskra banka Davis Karsbøl yfirmaður greiningardeildar Saxo bankans segir á fréttavef Børsen að líkur á því að Kaupþing verði gjaldþrota hafi aldrei verið meiri. Hann telur að komandi ár eftir að reynast íslensku bönkunum erfitt og segist ekki verða undrandi ef einn eða tveir stóru íslensku bankanna verði gjaldþrota fyrir árslok. Kaupþing sé þar líklegastur þar sem hann hafi orðið verst úti með tilliti til skuldatryggingarálags bankans sem hafi aldrei verið hærra. 20.2.2008 14:10
Mesti hagnaður í 20 ára sögu Atlantic Airways Hagnaður Atlantic Airways nam um 390 milljónum kr. fyrir skatta á síðasta ári. Í tilkynningu um uppgjörið segir að árið í fyrra hafi verið gott ár hjá flugfélaginu raunar það besta í 20 ára sögu félagsins. 20.2.2008 11:47
Færeyjabanki fellur um fimm prósent Gengi hlutabréfa í Föroya banka féll um rétt rúm fimm prósent í Kauphöllinni í dag. Það stendur nú í 129 dönskum krónum á hlut og hefur aldrei verið lægra. Að öðru leyti hefur verið lækkun í Kauphöllinni líkt og víðar í evrópskum kauphöllum í dag. 20.2.2008 10:27
Lánamarkaðir eru í raun lokaðir fyrir íslensku bankana Oliver Johnson sérfræðingur í lánaráðgjöf hjá Barclay´s Capital í London segir að alþjóðlegir lánamarkaðir séu í raun lokaðir íslenskum bönkum í augnablikinu. Í samtali við Vísir segir Oliver að bæði sé um að ræða að fjárfestar vilji ekki lána íslensku bönkunum vegna áhyggna af íslensku efnahagslífi og hinsvegar vilji bankarnir sjálfir ekki taka lán á þeim kjörum sem þeim bjóðast í dag. 20.2.2008 10:15
Greining Kaupþings spáir 6% verðbólgu Greining Kaupþings spáir 0,6% hækkun á vísitölu neysluverðs í febrúar. Gangi spáin eftir mun tólf mánaða verðbólga mælast 6% samanborið við 5,8% í janúar. 20.2.2008 08:44
Kraftur í handverkinu Í Handverkshúsinu í Hafnarfirði má finna allt sem þarf til handverks; allt frá námskeiðum til verkfæra. Jón Skaftason spjallaði við Þorstein Jónsson eiganda. 20.2.2008 00:01
Fjármálageirinn: Gallarnir sniðnir af frumvarpinu „Varla fæst staðist að svipta menn þessum rétti afturvirkt,“ sagði Sigurjón Högnason, lögfræðingur hjá KPMG, um gildistöku frumvarps um söluhagnað á hlutabréfum, á skattaráðstefnu fyrirtækisins sem haldin var á Grand hóteli á dögunum. 20.2.2008 00:01
Kúabúin á hausinn? „Ekki er fyrirsjáanlegt að mörg kúabú verði rekstrarhæf miðað við núverandi mjólkurverð,“ segir Þórólfur Sveinsson, formaður Landssambands kúabænda. „Þetta er því miður staðreyndin.“ Hann segir bændur uggandi yfir stöðunni og þeir spyrji hvenær þeir fái leiðréttingar á mjólkurverði til sín, vegna hækkana á kostnaði við framleiðsluna. „Þær eiga sér sennilega ekkert fordæmi.“ 20.2.2008 00:01
Vatnið sækir á „Vatnið er komið til að vera. Þetta er ekki lengur spurning um hvort heldur hversu stórt það verður,“ segir Jón Ólafsson, stjórnarformaður Icelandic Water Holdings, sem selur átappað vatn á flöskum undir merkjum Icelandic Glacial úti um allan heim. 20.2.2008 00:01
FL Group hreinsar út fortíðardrauga fyrir framtíðina Fjárfestingarfélagið FL Group skilaði mesta tapi Íslandssögunnar á síðasta ári. Í kjölfar umfangsmikilla sviptinga á stærstu hluthöfum félagsins í ólgusjó á fjármálamörkuðum leitaði félagið í var. 20.2.2008 00:01
Bankahólfið: Allt í salti Talsverðar breytingar hafa orðið í kjölfar vorhreingerninga innandyra hjá FL Group eftir að nýir menn settust við stýrið. Jóni Sigurðssyni, forstjóra félagsins, var á uppgjörsfundi félagsins í síðustu viku tíðrætt um niðursveifluna á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum en dýfan varð meðal annars til þess að hlutafjáraukning á genginu 14,7 krónur á hlut, sem fyrirhuguð var á á fyrri helmingi ársins, var sett í salt. 20.2.2008 00:01
Úttekt á öllu klabbinu Viðskiptaráð hefur lagt til að peningastefnan verði endurskoðuð. Það hafa aðrir gert, til að mynda Friðrik Már Baldursson prófessor. Ingimundur Friðriksson Seðlabankastjóri sagðist í samtali við Markaðinn ekki fráhverfur því. Stjórnmálamenn virðast ekki alveg fráhverfir því heldur. 20.2.2008 00:01
Krónan kallar á reglulega jarðskjálfta Krónan nær aldrei fullkomnum stöðugleika að mati viðmælenda Markaðarins. Það sé í eðli smárrar myntar að sveiflast. Ná megi meira jafnvægi, en bent er á að stöndugri gjaldmiðlar sveiflist einnig. Kallað er eftir endurskoðun á peningastefnu Seðlabankans. Viðhorf stjórnmálamanna til þess eru mismunandi. Lektor við Háskólann í Reykjavík telur að strax eigi að grípa til aðgerða til að auka gjaldeyrisforðann. 20.2.2008 00:01
Hlutabréf niður og olíuverð í methæðir Gengi hlutabréfa lækkaði almennt í Bandaríkjunum í dag eftir að heimsmarkaðsverð á hráolíu fór yfir hundrað dali á tunnu. Verðið hefur aldrei verið hærra í enda dags. 19.2.2008 21:10
Alfesca hagnast um tvo milljarða fyrstu sex mánuðina Hagnaður matvælafyrirtækisins Alfesca fyrstu sex mánuði fjárhagsárs fyrirtækisins nam 23,3 milljónum evra, eða rúmum tveimur millljörðum íslenskra króna. Það er hækkun um 31,9 prósent samkvæmt tilkynnngu frá félaginu. Forstjóri fyrirtækisins, sem er að mestu í eigu Ólafs Ólafssonar sem oftast er kenndur við Samskip, segist ánægður með afkomuna. 19.2.2008 18:00
Góð afkoma hjá Carlsberg en samt hækkar bjórinn Búast má við að einhverjir Danir reki upp ramakvein því að bjórframleiðandinn Carlsberg tilkynnti í dag að bjórinn myndi hækka á þessu ári. 19.2.2008 17:24
Rólegur dagur í Kauphöll en Úrvalsvísitalan lækkaði nokkuð Fremur rólegt var í Kauphöllinni í dag en þar lækkuðu átta félög um leið og fjögur hækkuðu. Þó lækkaði Úrvalsvísitalan, um 1,22 prósent. Mesta lækkun varð á bréfum Exista, um 2,23 prósent og Kaupþings, með 1,85 prósent. Teymi hf. hækkaði um 0,75 prósent og sömu sögu er að segja af Marel. 19.2.2008 17:20
Credit Suisse þarf að afskrifa 190 milljarða kr. Annar stærsti banki Sviss, Credit Suisse, hefur afskrifað eignatryggð skuldabréf fyrir rúmlega 190 milljarða kr. 19.2.2008 11:08
Hagnaður KEA nam 913 milljónum kr. Samkvæmt ársreikningi KEA fyrir árið 2007 nam hagnaður félagsins rúmum 913 milljónum kr. eftir skatta samanborið við 287 milljóna kr. hagnað árið áður. 19.2.2008 10:59
Olíuverðið fór aftur yfir 96 dollara Olíuverðið á markaði í Bandaríkjunum fór aftur yfir 96 dollara á tunnuna í morgun. Ástæðan er útlit fyrir að OPEC ríkin muni draga úr framleiðslu sinni á næstunni. 19.2.2008 10:50
Rauður morgun í kauphöllinni Markaðurinn byrjaði í rauðum tölum í kauphöllinni í morgun. Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,90% í fyrstu viðskiptum dagsins og stendur nú í 5.137 stigum. 19.2.2008 10:20
Ánægja með störf Lárusar Welding Stjórn Glitnis hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar í Markaðnum í gær og í morgun þess efnis að breytingar séu fyrirhugaðar á stjórn bankans og að orðrómur sé um að Lárus Welding, forstjóri, standi upp fyrir nýjum manni. 19.2.2008 09:00
Þorsteinn Már nýr stjórnarformaður Glitnis Ný stjórn Glitnis undir forystu Þorsteins Más Baldvinssonar, verðandi stjórnarformanns, mun samkvæmt heimildum Markaðarins, einbeita sér að því að skera niður rekstrarkostnað. 18.2.2008 18:45
FL og Exista hækkuðu mest, aldrei þessu vant FL Group og Exista leiddu hækkanir í Kauphöllinni í dag, aldrei þessu vant. 16 félög hækkuðu í dag en fjögur lækkuðu. FL Group hækkaði mest, um 3,23 prósent og Exista fór upp um 2,61 prósent. Þar á eftir komu Spron, Glitnir og 365hf. 18.2.2008 17:16
Segir Baug hafa bjargað FL Group Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs Group, segir að góður hagnaður verði hjá félaginu eftir síðasta ár þrátt fyrir erfiðleikana sem verið hafa í fjárhagslífi heimsins. Þetta kom fram í hádegisviðtalinu á Stöð 2 í dag. 18.2.2008 12:49
Glitnir spáir 1% hækkun á vísitölu neysluverðs Greining Glitnis spáir því að vísitala neysluverðs hækki um 1,0% milli janúar og febrúar. Gangi spáin eftir mun ársverðbólga aukast úr 5,8% í 6,4%. 18.2.2008 11:25
Vikan byrjar í plús í kauphöllinni Vikan byrjar í plús í kauphöllinni. Í fyrstu viðskiptum dagsins hefur úrvalsvísitalan hækkað um 1,46% og stendur nú í 5.190 stigum. 18.2.2008 10:46
Foroya banki með 2 milljarða kr. hagnað í fyrra Foroya banki skilaði um 2 milljarða króna hagnaði fyrir skatta í fyrra. Þetta kemur fram í ársreikningi bankans sem birtur var í morgun. 18.2.2008 10:40
Askar tapaði 2,1 milljarði króna á undirmálslánum Tap Askar Capital vegna fjárfestinga tengdum undirmálslánum námu 2,1 milljörðum króna á síðasta ári. Þetta kemur fram í ársreikingi Askar sem birtur var í morgun. 18.2.2008 10:20
Straumur leggur grunn að starfsemi á sviði eignastýringar Straumur hefur lagt grunn að starfsemi á sviði eignastýringar í Danmörku með því að ráða þrjá starfsmenn til bankans, þau Jens Honoré, Klaus Hector Kjær og Lotte Halse. 18.2.2008 09:15
Jón Ásgeir segir skuldaálag of hátt „Miðað við það skuldaálag sem krafist er af íslenskum bönkum virðist endurspeglast sú skoðun erlendra fjármálastofnana að staða þeirra sé slæm. 17.2.2008 17:12
Northern Rock verður þjóðnýttur Alistair Darling, fjármálaráðherra Breta, tilkynnti nú síðdegis að Northern Rock bankinn yrði þjóðnýttur. 17.2.2008 16:46
Toshiba gefst upp á HD DVD Japanska tæknifyrirtækið Toshiba hyggst gefast upp á HD DVD háskerputækninni. Tilkynningar þess efnis er að vænta á næstu dögum, hefur fréttastofa Reuters eftir heimildarmanni innan fyrirtækisins. 17.2.2008 00:01