Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mikil söluaukning en vonbrigði með hagnað Betsson Mikil söluaukning hefur verið hjá veðmálafyrirtækinu Betsson og mælist hún 121% á milli ára. Aukningin frá þriðja til fjórða fjórðungs er 15%. Hagnaður ársins var um 180 milljónum skr. eða um 1,8 milljarði kr. sem er næstum sex sinnum meiri hagnaður en árið áður. 15.2.2008 13:59
Danski skatturinn finnur tugi milljarða á leynireikningum Dönsk skattayfirvöld hafa fundið 5 milljarða dkr. eða rúmlega 60 milljarða kr. sem liggja á leynireikningum víða um heiminn en þó yfirleitt í svokölluðum skattaparadísum. Í fjölda tilvika geta viðkomandi danskir eigendur þessara reikninga átt yfir höfði sér fangelsisdóma fyrir skattsvik. 15.2.2008 12:44
Erum ekki að fara að selja Sterling Pálmi Haraldsson, stjórnarformaður Northern Travel Holding, sem á meðal annars danska flugfélagið Sterling vísar því algjörlega á bug að stefnt sé á sölu á Sterling á næstunni líkt og kom fram í danska viðskiptablaðinu Börsen í dag. FL Group gerir það sömuleiðis í fréttatilkynningu sem send var Vísi. 15.2.2008 12:09
Litlar breytingar á stjórn Samorku Litlar breytingar urðu á stjórn Samorku, samtaka orkufyrirtækja, á aðalfundi félagsins í morgun. 15.2.2008 11:31
Uppsveifla í kauphöllinni Nokkur uppsveifla varð við opnun markaðarins í kauphöllinni í morgun. Ekkert félag hefur lækkað. Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,61% í fyrstu viðskiptum dagsins og stendur í 5.083 stigum. 15.2.2008 10:40
Hagnaður Milestone nam 21,3 milljörðum kr. Hagnaður Milestone eftir skatta nam 21,3 milljörðum króna árið 2007 en tap á fjórða ársfjórðungi nam 5,8 milljörðum eftir skatta. Heildartekjur félagsins voru 56 milljarðar á árinu. 15.2.2008 10:24
Methagnaður hjá Commerzbank þrátt fyrir afskriftir Commerzbank, næststærsti banki Þýskaland, sem FL Group átti stóran hlut í um tíma, skilaði rúmlega 1,9 milljarða evra hagnaði á síðasta ári. Þetta jafngildir rúmum 188 milljörðum íslenskra króna, sem er mesti hagnaður í sögu bankans. 15.2.2008 09:34
Atlantic Petroleum boðar hlutafjáraukningu Atlantic Petroleum boðar hlutafjáraukningu í ár samhliða því að frekari boranir hefjast á Hook Head svæðinu undan ströndum Írlands. Tilraunarboranir í fyrra sýndu að töluvert magn af olú er á þessu svæði. 15.2.2008 09:29
Dönsk blöð segja FL Group undirbúa sölu á Sterling FL Group undirbýr nú sölu á 34% hlut sínum í Sterling flugfélaginu að sögn viðskiptavefsins börsen.dk. En fyrst ætlar FL Group sér að ná upp hagnaði hjá Sterling en rekstur flugfélagsins hefur gengið brösuglega undanfarin ár. 15.2.2008 09:07
Óbreyttir stýrivextir í Japan Japanski seðlabankinn ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum í 0,5 prósentustigum. Þetta er í takt við væntingar markaðsaðila. 15.2.2008 09:03
Landic Property tekur þátt í byggingu heilsu- og lækningamiðstöðvar Samið hefur verið um að fasteignafélagið Landic Property taki þátt í byggingu heilsu- og lækningamiðstöðvar í Vetrarmýrinni í Garðabæ. Oddur Steinarsson læknir og einn forsvarsmanna verkefnisins og Páll Benediktsson, talsmaður Landic Property, staðfestu þetta við Vísi í dag. 14.2.2008 21:20
Landic kaupir fasteignasjóði FL Group Landic Property hf. hefur fest kaup á hlut FL Group í alþjóðlegum fasteignasjóðum. Sjóðirnir eru Prestbury, Lxb, Catalyst Capital, Terra Firma og WCC Europe. 14.2.2008 17:13
Spá mikilli hækkun á verðbólgu í febrúar Greiningardeild Landsbankans spáir því að vísitala neysluverðs hækki um 1,1% í febrúar. Gangi spáin eftir mun 12 mánaða verðbólga mælast 6,5% í febrúar samanborið við 5,8% í janúar. 14.2.2008 16:43
365 féll um rúm 10% í dag Kauphöllin lokaði eins og hún opnaði í dag það er í mínus. Mest féllu hlutir í 365 eða um 10.30%. Úrvalsvísitalan lækkaði um 1.07% og lauk deginum í 5040 stigum. 14.2.2008 16:26
Slæmar efnahagshorfur í Bandaríkjunum Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, sagði í dag útlit fyrir slæmar efnahagshorfur í Bandaríkjunum og muni seðlabankinn vera reiðubúinn til að lækka stýrivexti frekar til að bregðast við ástandinu til að sporna við því. 14.2.2008 15:27
Minnsta atvinnuleysi í 20 ár Í nýbirtum tölum Vinnumálastofnunar um skráð atvinnuleysi í síðasta mánuði kemur fram að hlutfallslegt atvinnuleysi reiknast 1,1% af vinnuafli. Þetta er minnsta atvinnuleysi í þessum mánuði í 20 ár. 14.2.2008 14:34
Róbert og Jón Diðrik kaupa hlut í Capacent Nýtt fjárfestingarfélag, Capa Invest, hefur keypt 20 prósenta hlut í IMG Holding sem er eignarhaldsfélag Capacent-samstæðunnar 14.2.2008 14:34
Verðbólga í Zimbabve í himinhæðum Verðbólga í Afríkuríkinu Zimbabve er komin langt upp fyrir Himnaríki en hún mældist 66.212,3 prósent í desember í fyrra, samkvæmt upplýsingum hagstofunnar þar í landi. 14.2.2008 13:56
Efnaðar stjörnur finna fyrir fasteignakreppunni Fasteignakreppan í Bandaríkjunum hefur nú náð til efnaðra og þekktra stjarna í Hollywood og nágrenni. Að sögn tímaritsins Forbes tapa stjörnurnar nú háum upphæðum á húseignum sínum, það er ef eignirnar á annað borð seljast. 14.2.2008 13:39
Menn hefðu mátt vanda sig betur „Síðustu vikur hafa vissulega verið erfiðar en við verðum að vinna vel úr okkar spilum og halda áfram,“ sagði Jón Sigurðsson forstjóri FL Group í hádegisviðtalinu á Stöð 2. 14.2.2008 13:18
Danir telja að FL Group selji í Royal Unibrew Danir telja að slappt uppgjör FL Group á síðasta ári auki líkurnar, fremur en hitt, á að FL Group selji rúmlega 25% hlut sinn í bruggverksmiðjunni Royal Unibrew. 14.2.2008 12:57
Phil & Sön rekur Dani og ræður Pólverja í vinnu Verktakafyrirtækið E. Phil & Sön í Danmörku hefur rekið danska verkamenn sín og ráðið pólska í staðinn við vinnu við byggingu Copenhagen Towers í Örestaden. Um er að ræða eitt stærsta byggingarverkefnið í Kaupmannahöfn í ár. 14.2.2008 12:16
Álit Seðlabankans hafði ekki áhrif á ákvörðun Ársreikningaskrár Davíð Oddsson seðlabankastjóri segir að álit Seðlabankans hafi ekki haft nein áhrif á þá ákvörðun Ársreikningaskrár að synja Kaupþingi um leyfi til að gera upp í evrum. 14.2.2008 11:30
Brýnt fyrir heimili og fyrirtæki að hemja verðbólgu Verðbólga hér á landi er enn töluvert meiri en það markmið sem Seðlabankanum er sett og ekki verður að sinni fullyrt að verðbólguhorfur til lengri tíma hafi breyst að marki frá því í nóvember. Brýnt sé fyrir afkomu og efnahag heimila og fyrirtækja að hemja verðbólgu og ná tökum á verðbólguvæntingum. 14.2.2008 11:05
Töluvert dregur úr greiðslukortanotkun Greiðslukortavelta í janúar nam rúmum 60 milljörðum kr. Þar af nam innnlend velta um 56 milljörðum kr. Ársaukning veltunnar nú í upphafi árs töluvert minni samanborið við þróunina á síðari helmingi síðasta árs, en greiðslukortavelta er mikilvæg vísbending um þróun einkaneyslu. 14.2.2008 10:35
Rauður morgun í kauphöllinni Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,63% í fyrstu viðskiptum dagsins í Kauphöllinni. Sem stendur er hún í 5062 stigum. 14.2.2008 10:24
Fyrsta tap í sögu UBS Svissneski risabankinn UBS tapaði 4,4 milljörðum franka, jafnvirði tæpra 300 milljarða íslenskra króna, á síðasta ári samanborið við 12,3 milljarða franka hagnað í hitteðfyrra. Tapið, sem er það fyrsta í sögu bankans, er tilkomið vegna afskrifta á lánavöndlum upp á 26,6 milljarða bandaríkjadala, jafnvirði 1.800 milljarða íslenskra króna. 14.2.2008 09:50
Playboy hrapar á Wall Street Hlutir í Playboy féllu um meir en 10% á Wall Street í gærdag í kjölfar þess að uppgjör félagsins fyrir fjórða ársfjóðung á síðasta ári var birt. 14.2.2008 09:43
Landsbankastjóri lýsir vonbrigðum með vaxtaákvörðun SÍ Sigurjón Þ. Árnason landsbankastjóri segir að sú ákvörðun Seðlabankans að halda stýrivöxtum óbreyttum séu vonbrigði fyrir sig. "Ég ásamt mörgum öðrum átti von á að Seðlabankinn hæfi vaxtalækkunarferli sitt núna," segir Sigurjón. 14.2.2008 09:05
Óbreyttir stýrivextir hjá Seðlabankanum Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að breyta ekki stýrivöxtum bankans nú. Þeir verða áfram 13,75 prósent. Þetta er í samræmi við spár greiningardeilda Glitnis og Landsbankans. Kaupþing hafði hins vegar búist við stýrivaxtalækkun. 14.2.2008 09:00
Bankarnir þurfa aðgang að evru Í pallborði „viðskiptalífsins“ á Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs í gær voru skiptar skoðanir um hvort krónan væri byrði eða blóraböggull, en að því var spurt í yfirskrift þingsins. 14.2.2008 04:00
Fundar með bankastjórum í dag „Ég tel mjög ósennilegt að það sé grundvöllur fyrir slíku og ég tel ekki að það sé raunhæf leið,“ segir Geir H. Haarde, forsætisráðherra, um að stjórnvöld semji við Evrópska seðlabankann um stuðning eða bakland vegna skuldbindinga íslenskra fyrirtækja í evrum. 14.2.2008 04:00
Viðar verður fjármálastjóri FL Group Viðar Þorkelsson, núverandi fjármálastjóri 365, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármálasviðs FL Group í stað Sveinbjörns Indriðasonar sem er hættur eins og Vísir greindi fyrst frá í dag. 13.2.2008 19:35
FL Group seldi öll bréfin í AMR FL Group hefur selt öll hlutabréf sín í bandarísku flugrekstrarsamstæðunni AMR, að sögn Jóns Sigurðssonar, forstjóra FL Group. Félagið flaggaði tæpum sex prósenta hlut í þessu móðurfélagi American Airlines, einu stærsta flugfélagi heims, skömmu fyrir áramótin í hitteðfyrra og átti þegar mest lét rúman níu prósenta hlut. 13.2.2008 18:25
Hagnaður TM sexfaldast á milli ára Tryggingamiðstöðin hagnaðist um rúma 4,3 milljarða króna á síðasta ári samanborið við tæplega 700 milljónir árið 2006. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins til Kauphallar Íslands. 13.2.2008 17:50
Þorsteinn hættir sem stjórnarformaður Glitnis Þorsteinn M. Jónsson mun hætta sem stjórnarformaður Glitnis. Nokkur breyting er á stjórn bankans. 13.2.2008 17:14
Hannes kaupir ekki í Geysi Green Energy FL Group hefur selt 43,1 prósents eignarhlut sinn í Geysir Green Energy til Glitnis, Atorku Group, og fleiri aðila. Þetta kemur fram í tilkynningu vegna uppgjörs síðasta árs. 13.2.2008 17:02
Halldór og Sveinbjörn hætta hjá FL Group Halldór Kristmannsson, forstöðumaður samskiptasviðs FL Group, og Sveinbjörn Indriðason, forstöðumaður fjármálasviðs, munu hætta störfum á næstu dögum. 13.2.2008 16:45
FL Group tapar 67 milljörðum FL Group tapaði 67,3 milljörðum króna á síðasta ári samkvæmt uppgjöri sem birt var í dag. Þar af nam tapið 63,2 milljörðum á fjórða ársfjórðungi síðasta árs. 13.2.2008 16:42
Áhugasamur um mesta tap Íslandssögunnar „Hver er ekki áhugasamur um mesta tap íslandssögunnar,“ sagði Vilhjálmur Bjarnason, aðjúnkt við viðskiptadeild Háskóla Íslands, um kynningarfund á ársreikningum FL Group. 13.2.2008 16:37
Hannes fékk 90 milljóna króna starfslokasamning Hannes Smárason, fyrrverandi forstjóri FL Group, fékk 90 milljónir í starfslokasamning og rétt tæpar 50 milljónir í laun og árangurstengdar greiðslur á síðasta ári. Þetta kemur fram í ársskýrslu félagsins sem birt var í dag. 13.2.2008 16:36
Hækkuðu í Kauphöllinni Spron, FL-Group og Exista hækkuðu öll um rúm 4% í Kauphöllinni í dag. Bakkavör hækkaði einnig um tæp 3% en Century Aluminum Company og 365 hf lækkuðu mest. 13.2.2008 16:35
Ríkisstjórnin leiðréttir rangfærslur um íslenskt efnahagslíf Ríkisstjórn Íslands hyggst funda með aðilum á fjármálamarkaði um aðgerðir gegn hugsanlegir lánsfjárkreppu á hér á landi. Hún er auk þess reiðubúin til að fara erlendis og leiðrétta rangfærslur um íslenskt efnahagslíf, að sögn Geirs H. Haarde, forsætisráðherra á Viðskiptaþingi í dag. 13.2.2008 15:45
Stjórnvöld skortir stefnu í gjaldeyris- og peningamálum Svo virðist sem stefnumótun stjórnvalda í gjaldeyris- og peningamála skorti, eða hún sé ekki í takt við þarfir atvinnulífs og almennings, að sögn Erlendar Hjaltasonar, formanns Viðskiptaráðs og forstjóra Exista. 13.2.2008 15:01
Íbúðalánasjóður er ógn við jafnvægi í hagkerfinu Núverandi rekstrarfyrirkomulag Íbúðalánasjóðs er mein í íslensku hagkerfi og skortir mikið á að almenn umræða um hann sé byggð á traustum grunni. Þetta kom fram í máli Erlendar Hjaltasonar, formanns Viðskiptaráðs, á Viðskiptaþingi í dag. 13.2.2008 14:39