Alfesca hagnast um tvo milljarða fyrstu sex mánuðina 19. febrúar 2008 18:00 Xavier Govare forstjóri Alfesca.
Hagnaður matvælafyrirtækisins Alfesca fyrstu sex mánuði fjárhagsárs fyrirtækisins nam 23,3 milljónum evra, eða rúmum tveimur millljörðum íslenskra króna. Það er hækkun um 31,9 prósent samkvæmt tilkynnngu frá félaginu. Forstjóri fyrirtækisins, sem er að mestu í eigu Ólafs Ólafssonar sem oftast er kenndur við Samskip, segist ánægður með afkomuna. Velta á 2. ársfjórðungi nam 262,1 milljón evra sem er 11,5 prósenta hækkun og velta fyrstu sex mánuði ársins var 396,1 milljón evra sem nemur 14,2 prósenta hækkun. Þá nam söluvöxtur á samanburðargrundvelli 5,2 prósentum á 2. ársfjórðungi og 4,9 prósentum á fyrstu sex mánuðum ársins. EBIDTA félagsins var rúmar 38 milljónir evra á tímabilinu og rúmar 45 milljónir evra fyrstu sex mánuði ársins. Þá var vöxtur EBIDTA fimm prósent á 2. fjórðungi og tíu prósent fyrsta hálfa árið. Nettóhagnaður var 22,5 milljónir evra á 2. ársfjórðungi og jókst um 15,7 prósent og var 23,3 milljónir evra fyrstu sex mánuði ársins og hækkaði um 31,9 prósent. „Afkoman í rekstri félagsins á hinum mikilvæga 2. ársfjórðungi og á fyrstu sex mánuðum ársins var ánægjuefni og sérstaklega uppörvandi af þremur ástæðum," segir Xavier Govare, forstjóri Alfesca. „Í fyrsta lagi verður þessi góða afkoma á mikilvægasta ársfjórðungnum í rekstri Alfesca en sala á reyktum laxi og andalifur (foie gras) er árstíðabundin og nær hámarki á 2. ársfjórðungi. Í öðru lagi endurspeglar góð afkoma mikilvægi stefnumörkunar okkar þar sem áherslan er á fjórar meginstoðir rekstrarins sem hver einkennist af ákveðnum sveiflum og sértækum áhættuþáttum. Þetta skipulag skapar stöðugleika í rekstri samstæðunnar þar sem meginstoðir rekstrarins styðja hver við aðra og stuðla að snurðulausri samþættingu nýrra fyrirtækja félagsins. Í þriðja lagi hefur aukin sala og góð afkoma náðst við erfiðari markaðsaðstæður en ríkt hafa um nokkurt skeið sem aftur má rekja til mikilla hækkana á hrávöruverði og samdrætti í neyslu í vætutíð sumarsins og yfir hátíðarnar." Govare segir einnig að grundvöllur góðrar afkomu allra stoða rekstrarins megi rekja til stöðugrar áherslu á vöruþróun og aukna samkeppnishæfni. „Búist er við að sala og markaðsaðstæður verði áfram erfiðar út almanaksárið 2008. Á sama tíma og við höldum til streitu áætlunum okkar um að efla félagið enn frekar og auka virði hluthafa þess sýnir afkoma félagsins að það er vel í stakk búið til að takast á við erfiðar ytri aðstæður. Við erum þess fullviss að afkoma Alfesca verði áfram góð á seinni hluta fjárhagsársins," segir forstjórinn í fréttatilkynningu frá Alfesca.
Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira