Góð afkoma hjá Carlsberg en samt hækkar bjórinn 19. febrúar 2008 17:24 Þeir verða eflaust færri Carlsberg-kassarnir sem danskir neytendur taka með sér heim þetta árið. MYND/365
Búast má við að einhverjir Danir reki upp ramakvein því að bjórframleiðandinn Carlsberg tilkynnti í dag að bjórinn myndi hækka á þessu ári. Fram kemur í hálffimmfréttum Kaupþings að hækkandi heimsmarkaðsverð á nauðsynjahrávöru til bjórframleiðslu, aðallega humli og malti, sé meginástæða þess að bjórinn muni hækka. Bent er á að fyrirtækið hafi hækkað verðið nokkrum sinnum á síðasta ári, einnig vegna hækkunar á hrávöru. „Fróðlegt verður að sjá hvort það sama komi til með að gerast hér á landi, en fyrir utan hækkanir á hráefnum hefur krónan veikst um tæp 10% á árinu," segir greiningardeild Kaupþings. Í sömu frétt kemur fram að rekstrarhagnaður Carlsberg fyrir fjármagnsliði hafi verið 928 milljónir danskra króna sem er um fjórðungi betri niðurstaða en meðalspár greinenda gerðu ráð fyrir. Segir Kaupþing að þetta gefi ágæt fyrirheit um framtíðina en sem kunnugt er standa Carlsberg og Heineken að yfirtöku á brugghúsinu Scottish & Newcastle sem er með sterka stöðu á Bretlandseyjum og í Frakklandi.
Mest lesið Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Viðskipti innlent Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Neytendur Síminn orðinn Ásar hf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira