Fleiri fréttir

Ekki benda á mig

Lára Óskardóttir skrifar

Það er þekkt að fólk spyrni við fótum, er breytingar á þeirra eigin starfsumhverfi ber á góma. Fagmaður, sem hefur tileinkað sér ákveðnar leiðir að settu marki, á til að verja “sitt” finni hann að þrýst sé á hann að gera hlutina öðruvísi.

Opið bréf til borgarfulltrúa Reykjavíkur

Andri Valgeirsson skrifar

Ég hef ferðast með ferðaþjónustu fatlaðra í Reykjavík í um 20 ár og hef því töluverða reynslu af að ferðast með þeim. Fyrir örfáum dögum lenti ég í þeirri "skemmtilegu“ reynslu á leið heim úr vinnu að ferðaþjónustubíllinn sem ég var farþegi í bilaði á miðjum fjölförnum gatnamótum.

Hvers vegna má ég ekki ganga í sérskóla?

Ásta Kristrún Ólafsdóttir skrifar

Ég bar upp þessa spurningu í grein fyrir fjórum árum en efnisleg svör hafa enn ekki fengist en þónokkuð af froðusnakki, útúrsnúningum og bulli.

Ómur kalds stríðs

Ólafur Þ. Stephensen skrifar

Fyrir fáeinum vikum eða mánuðum hefðu menn afgreitt það sem hræðsluáróður og kaldastríðstal ef einhver hefði spáð því að á 21. öldinni yrði landamærum Evrópuríkja enn og aftur breytt með hervaldi; að eitt Evrópuríki myndi ráðast inn í annað og taka af því landsvæði. Það er liðin tíð, hefðu margir sagt.

Á Bolungarvík

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar

Í apríl 2009 var ég á svipuðum stað og í dag að einu leyti. Mig langaði að skemmta mér um páskana og var ferð á tónlistarhátíðina Aldrei fór ég suður á Ísafirði efst á lista. Ég var ekki lengi að sannfæra þáverandi kærustu mína um að við skyldum skella okkur og á nokkrum dögum hafði myndast ellefu manna hópur, tvö pör auk sjö einhleypra snillinga.

Hugmyndalisti Orkustofnunar

Sif Konráðsdóttir skrifar

Orkustofnun lagði fram umdeildan lista með 91 virkjanahugmynd fyrir skemmstu, þar af 50 frá eigin brjósti, eins og rætt var um í grein minni 2. apríl. Í ljós hefur komið að af þeirri 41 hugmynd sem frá orkufyrirtækjum komu eru fjórar þegar í verndarflokki.

VG segir NEI við heimilisofbeldi

Eyrún Eyþórsdóttir skrifar

Heimilisofbeldi er ekki aðeins vandamál þeirra sem búa við ofbeldið, heldur er það samfélagslegt vandamál. Það er kúgunarferli sem brýtur niður þá sem fyrir því verða og skapar vítahring sem erfitt er að rjúfa.

Bregðumst við loftslagsvánni

Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar

Vísindanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (IPCC) birtir nú í áföngum fimmtu úttekt sína á loftslagsbreytingum og áhrifum þeirra. Kaflar um líkleg áhrif loftslagsbreytinga hafa vakið mikla athygli að undanförnu

G-orðið

Pawel Bartoszek skrifar

Ímyndum okkur einkenni. Til að gefa því ekki of gildishlaðna merkingu skulum við kalla það "G“. Segjum nú að við höfum umtalsverðar sannanir fyrir því að þeir sem hafi hátt G séu líklegir til að lifa lengur, verða hraustari og hafa meiri tekjur

Er stytting náms til hagsbóta fyrir nemendur?

Yngvi Pétursson skrifar

Á undanförnum vikum hafa ýmsir skipst á skoðunum um styttingu náms til stúdentsprófs. Er þetta aðeins sparnaðarhugmynd eða er raunverulega verið að hugsa um hag nemenda? Þetta hápólitíska mál varðar menntastefnu þjóðarinnar

Frumvarpið sem má ekki gleymast

Einar Hugi Bjarnason skrifar

Alþingis bíða nú ærin verkefni sem leysa þarf á þeim fáu þingfundardögum sem eftir lifa af vorþinginu. Þannig bíða ýmis mikilvæg lagafrumvörp afgreiðslu og ber þar vafalaust hæst frumvörp ríkisstjórnarinnar, um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána og ráðstöfun séreignarsparnaðar til greiðslu húsnæðislána.

Hugmyndir sem ekki standast

Ragnar Árnason skrifar

Formaður Vinstri grænna, Katrín Jakobsdóttir, birti grein undir heitinu „Hugmyndir sem ekki standast“ í Fréttablaðinu þann 19. mars sl. Í fyrri hluti greinarinnar leitast hún við að gagnrýna fræðilega ritgerð eftir mig

Á hvaða plánetu búa ráðherrarnir?

Jórunn Tómasdóttir skrifar

Annað hvort er ríkisstjórninni ekki sjálfrátt eða hún er fullkomlega veruleikafirrt. Nema hvort tveggja sé.

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sett á svið

Berglind Sigmarsdóttir skrifar

Það líður varla sá dagur að við fáum ekki fréttir af stöðu mála í Úkraínu. Helstu þjóðarleiðtogar heims reyna hvað þeir geta að finna lausnir.

Á hliðarlínu heimsins

Ólafur Þ. Stephensen skrifar

Það er áhugavert hvað ummæli Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra um tækifæri Íslendinga sem liggja í hlýnun loftslags á hnettinum hafa vakið hörð viðbrögð.

Er þörf á breytingum á peningastefnunefnd Seðlabankans?

Þorvarður Tjörvi Ólafsson skrifar

Áform virðast uppi um að endurskoða yfirstjórn Seðlabanka Íslands (SÍ) og jafnvel fyrirkomulag ákvörðunartöku um peningastefnuna. Áhyggjur virðast m.a. lúta að því að ólíkar skoðanir eigi ekki nógu mikið brautargengi innan peningastefnunefndarinnar og að seðlabankastjóri hafi of mikið vægi við núverandi skipan.

Raforkukerfi í vanda

Gústaf Adolf Skúlason skrifar

Nú berast fregnir af fjölda áhugasamra fjárfesta sem margir munu þurfa á talsverðri raforku að halda, náist samningar um orkukaup. Ýmsir álitlegir virkjanakostir eru til staðar, þótt margir þeirra hafi ratað niður lista rammaáætlunar

Þeir græða sem brjóta

Stefán Þorvaldur Þórsson skrifar

Þegar ferðamálaráðherra talar um náttúrupassann sinn, þá verður mér alltaf hugsað til förumannsins Sölva Helgasonar og falsaða reisupassans sem hann útbjó á tímum vistarbandsins.

Dyflinnar–réttlætingin

Ragnhildur Helga Hannesdóttir og Toshiki Toma skrifar

Undirrituð eru skipuleggjendur málstofunnar "Hælisleitendur segja frá“ sem haldin var þann 20. mars síðastliðinn í Háskóla Íslands. Málstofan fór vel fram og áheyrendur, sem voru yfir 120 talsins, fylltu fyrirlestrarsalinn.

Mannréttindi utangarðsfólks – Housing First

Guðrún Þorgerður Ágústsdóttir skrifar

Mikil umræða hefur verið um málefni utangarðsfólks á síðustu misserum. Fjölgun hefur verið í hópnum og í hverjum mánuði bætast nýir einstaklingar við.

Styttri framhaldsskóli?

Björn Guðmundsson skrifar

Illugi Gunnarsson vill stytta framhaldsskólann um a.m.k. 1 ár. Hann er kominn í gömlu, slitnu stuttbuxurnar af Ólafi G. Einarssyni, Birni Bjarnasyni og Tómasi I. Olrich. Þorgerður K. Gunnarsdóttir hætti við styttingu.

Tækifærin í mansali

Atli Fannar Bjarkason skrifar

Mikið var rætt um hrægamma í aðdraganda síðustu kosninga. Miklu meira en aðra fugla. Skógarþrestir og hafernir voru til dæmis víðsfjarri og ég man ekki eftir að hafa heyrt minnst á lóuna, þrátt fyrir að ég hafi verið í kjöraðstöðu til að hlusta á tístið í frambjóðendum

Þykir þér vænt um börnin þín?

Úrsúla Jünemann skrifar

Börnin okkar munu erfa landið. Við sem ráðum núna ferðinni að einhverju leyti höfum mikið um það að segja í hvaða ástandi jörðin mun verða þegar börnin og barnabörnin okkar taka við. Munu börnin okkar taka við góðu búi eða

Veistu hvað þú borðar?

Hörður Harðarson skrifar

Þegar við setjumst niður og borðum mat þá skiptir okkur máli hvað er á disknum. Við sjáum hvernig maturinn lítur út, finnum hvernig hann lyktar og bragðast og upplýsingar um næringarinnihald má yfirleitt finna á umbúðunum.

Að ráða eigin lífi, búsetu og búðarferðum

Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) var undirritaður fyrir Íslands hönd í marsmánuði 2007. Markmið hans er að tryggja fötluðu fólki mannréttindi til jafns við ófatlað fólk á öllum sviðum samfélagsins.

Ekkert afturkall

Katrín Jakobsdóttir skrifar

Ný lög um náttúruvernd voru samþykkt vorið 2013 og var ætlað að taka gildi þann 1. apríl 2014. Lögin fela í sér mikla framför í lagaumhverfi náttúruverndar og eru skólabókardæmi um hvernig á að standa að vandaðri lagasetningu.

Viðbótarlífeyrissparnaður eykur enn gildi sitt

Ólafur Páll Gunnarsson skrifar

Stjórnvöld hafa nú kynnt aðgerðir í skuldamálum heimilanna. Þær eru tvíþættar, þ.e. annars vegar er um að ræða niðurfærslu verðtryggðra húsnæðislána og hins vegar skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar til lækkunar höfuðstóls

Dulbúin blessun

Þorbjörn Þórðarson skrifar

Það þjónar langtímahagsmunum Íslands að hafa viðræðurnar við Evrópusambandið á ís í nokkur ár.

Láglaunalandið Ísland

Ása Lind Finnbogadóttir skrifar

Á Íslandi hefur tíðkast láglaunastefna um áratugabil. Flestar vinnandi stéttir og þá ekki síst kennslu- og umönnunarstéttir eru láglaunastéttir.

Afglæpavæðing fjárhættuspila

Jónína Stefánsdóttir skrifar

Stór og breiður hópur fólks sem hefur ánægju af fjárhættuspilum hér á landi. Það eru þó nokkrir ólöglegir spilaklúbbar starfandi á Íslandi og flestir þeirra eru staðsettir á höfuðborgarsvæðinu.

Byggjum brýr

Líf Magneudóttir skrifar

Oft er snúið að koma sér aftur út í atvinnulífið eða í skólann eftir að fæðingarorlofi lýkur. Hingað til hafa einu úrræðin verið að koma börnum að hjá dagforeldrum eða inn á svokallaða ungbarnaleikskóla. Það fá ekki allir foreldrar tækifæri til þess.

Sá yðar sem syndlaus er...

Gunnar Þorsteinsson skrifar

Mér finnst merkilegt hversu aðgengi þeirra sem ata aðra auri er greitt að ríkisfjölmiðlum. Nú nýverið var ég borinn þungum sökum í Kastljósþætti Sjónvarpsins, þar sem fréttamaður fer með getsakir á hendur mér í löngu máli, þar sem hann fjallar um kröfu stjórnar Krossgatna um rannsókn

Af slökum lagaskilningi orkumálastjóra

Sif Konráðsdóttir skrifar

Fyrir skemmstu lagði Orkustofnun fram umdeildan lista með 91 virkjanahugmynd og bað verkefnisstjórn um vernd og nýtingu náttúrusvæða um að meta þær. Forstöðumaður Orkustofnunar kallast orkumálastjóri. Sá sem gegnir þeirri stöðu núna er ekki vel læs á lög

Psssst – ólöglegt samráð?

Jóhannes Ingi Kolbeinsson skrifar

Í rúm ellefu ár hef ég starfað sem framkvæmdastjóri fyrirtækis sem starfar á fjármálamarkaði. Það hefur gengið ágætlega, en ég er alvarlega að velta fyrir mér hvort mér myndi ekki vegna miklu betur ef ég færi að stunda ólöglegt samráð.

Hroki og hleypidómar Gísla

Sigurjón Jónsson skrifar

Gísli Marteinn Baldursson hélt erindi á vegum Landsbankans á dögunum undir yfirskriftinni ,,Er hætta á að Reykjavík verði túristagildra?“ Erindið var að hluta mjög gott að frátöldum ákveðnum hrokafullum ummælum.

Er kominn tími á kerfisbreytingu?

Siggeir F. Ævarsson skrifar

Hæstvirtum menntamálaráðherra er þessa dagana tíðrætt um kerfisbreytingar í íslenskum framhaldsskólum. Telur hann að eina leiðin til þess að leiðrétta laun kennara, sem hafa dregist umtalsvert aftur úr sambærilegum stéttum síðustu ár, sé að gjörbylta kerfinu og um leið að stytta stúdentsprófið um eitt ár.

Fallið Lýðveldi

Ólafur Sigurðsson skrifar

Sitjandi ríkisstjórn var kosin útá loforð, kosningaloforð sem hafa verið svikin, toguð og teygð.

Að banna fólk á reykingastöðum

Jón Örvar G. Jónsson skrifar

Ég met áhyggjur ykkar af starfsemi Waldorfskólanna í Lækjarbotnum; börnum og starfsmönnum skólans og tel eins og þið að þau eigi að njóta vafans þegar kemur að heilsumálum.

Umboðsmaður hvers er landlæknir?

Auðbjörg Reynisdóttir skrifar

Í Fréttablaðinu 17. mars s.l. fullyrti Leifur Bárðarson yfirlæknir hjá Embætti landlæknis (EL) að embættið væri umboðsmaður sjúklinga.

Sjá næstu 50 greinar