Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hársveiflan virkar pottþétt Aniston Leikkonan Jennifer Aniston, 42 ára, auglýsir í meðfylgjandi myndskeiði drykkjarvatn sem ber heitið Smartwater. Í auglýsingunni má sjá Youtube stjörnuna Keenan Cahill og svokallaða internetsérfræðinga sem leggja sig fram við að útfæra spennandi auglýsingu, sérhannaða fyrir internetið, í samvinnu við leikkonuna með það að markmiði að 100 þúsund manns horfi á myndskeiðið. Jennifer sveiflar meðal annars hárinu áður en hún fær sér sopa af umræddu vatni. 7.3.2011 18:05
Bilað fjör á Bloodgroup Meðfylgjandi myndir tók Sveinbi ljósmyndari Superman.is á veitingahúsinu Hressó síðasta fimmtudag þegar hljómsveitin Bloodgroup sá til þess að allir skemmtu sér. Eins og meðfylgjandi myndir sýna leiddist engum. 7.3.2011 12:45
Brotnaði niður þegar hún rifjaði upp baráttuna Ástralska söngkonan Kylie Minogue, 42 ára, brotnaði niður í sjónvarpsviðtali í gærkvöldi þegar hún ræddi um baráttu sína við brjóstakrabbamein. Hún þurfti að yfirgefa herbergið þar sem viðtalið fór fram því tilfinningarnar báru hana ofurliði eins og sjá má í myndskeiðinu. 7.3.2011 11:17
Nýbökuð mamma í dúndurformi Brasilíska ofurfyrirsætan Gisele Bundchen, 30 ára, sleikti sólina í gær, í Rio de Janeiro í Brasilíu. Hún er stödd þar í borg ásamt fjölskyldu sinni, eiginmanni Tom Brady og syni sínum Benjamín, sem hún eignaðist fyrir 14 mánuðum. Eins og myndirnar sýna er nýbökuð móðirin í dúndurformi. 7.3.2011 09:53
Sjö manneskjur í fagráði Airwaves „Ég er mjög ánægður með þetta. Hugmyndin er að reyna að bæta festivalið og gera það skemmtilegra,“ segir Grímur Atlason, framkvæmdastjóri tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves. 7.3.2011 15:00
Eurovision-stjörnur með stórtónleika í Stokkhólmi Tónlistarmaðurinn Friðrik Ómar Hjörleifsson heldur tónleika ásamt Jóhönnu Guðrúnu Jónsdóttur hinn 30. mars í Göta Lejon leikhúsinu í Stokkhólmi. Tónleikarnir eru haldnir í samvinnu við sendiráð Íslands og ýmsa ferðaaðila í borginni. 7.3.2011 13:00
Yfirburðasigur Atrum Dauðarokkshljómsveitin Atrum stóð uppi sem sigurvegari í hljómsveitakeppninni Wacken Metal Battle, sem fór fram á Sódómu á laugardagskvöld. Sigur Atrum var nokkuð öruggur og dómnefnd var sammála um að hljómsveitin hefði skarað fram úr. Atrum keppir því fyrir Íslands hönd á lokakeppninni sem fer fram á Wacken-þungarokkshátíðinni í Þýskalandi í sumar, sem er sú stærsta sinnar tegundar í heiminum. 7.3.2011 12:00
Blúshátíð í áttunda sinn Blúshátíð í Reykjavík verður haldin í áttunda sinn dagana 16. til 21. apríl. Þrennir stórir tónleikar verða haldnir á Hilton-hótelinu. Áttunda Blúshátíðin í Reykjavík verður haldin 16. til 21. apríl. Setningarhátíðin verður í miðborginni laugardaginn 16. apríl þar sem blúsinn verður í fyrirrúmi. Blúslistamaður ársins verður heiðraður, blúsvagnar Krúserklúbbsins keyra um bæinn, framinn verður blúsgjörningur og um kvöldið verða tónleikar. 7.3.2011 11:00
Ásgeir Kolbeins og Arnar Gauti á fremsta bekk Ásgeir Kolbeins og Arnar Gauti sátu á fremsta bekk á tískusýningu sem fram fór í Fjölbrautaskólanum við Ármúla á fimmtudaginn var. Haffi haff sló í gegn sem kynnir á meðan nemendur fjölbrautaskólans sýndu fatnað frá Volcano, Nikita, Sautján, Kiss, Brim, Naked ape, Gestný Design, Nostalgía, Spútnik og E-label. 6.3.2011 10:40
Georg Michael segist eiga fangelsisvist skilið Dægurlagasöngvarinn George Michael sagði í viðtali við breska ríkisútvarpið í morgun að hann ætti fangelsisvist skilið eftir að hafa ekið undir áhrifum kannabisefna. 6.3.2011 10:02
Konan á bak við hlébarðagallann Í meðfylgjandi myndskeiði kynnumst við innanhússhönnuðinum og fasteignasalanum Bjarnheiði Hannesdóttur, sem er kölluð Heiða, en hún á og rekur fyrirtækið Deco.is þar sem hún sér um að aðstoða fólk við að endurhanna húsnæði sín. Þá sýnir Heiða þrönga gráa hlébarðagallann sem stal senunni á Eddunni svo vægt sé til orða tekið. 6.3.2011 08:15
Matt Damon sem Assange Breski veðbankinn William Hill telur að Matt Damon sé líklegastur til að hreppa hlutverk Ástralans Julians Assange, stofnanda Wikileaks, í nýrri mynd um síðuna sem er í bígerð. Russell Crowe, sem ólst upp í Ástralíu, er einnig talinn líklegur til að fá hlutverkið. Aðrir sem eru nefndir til sögunnar eru Leonardo DiCaprio, Jude Law, Michael Sheen og Chris Cooper. 6.3.2011 14:00
Lifir í gömlum glæðum Leikararnir Sandra Bullock og Ryan Gosling áttu í eldheitu ástarsambandi þegar þau unnu saman við tökur á kvikmyndinni Murder by Numbers árið 2001. Sambandið entist þó ekki lengi og parið hætti saman stuttu eftir að tökum á myndinni lauk. Tímaritið In Touch vill meina að nú þegar bæði Bullock og Gosling eru aftur á lausu hafi þau tekið aftur upp þráðinn. 6.3.2011 12:00
Lavigne trúlofuð aftur Söngkonan Avril Lavigne hefur trúlofast kærasta sínum, raunveruleikastjörnunni og fyrrverandi kærasta Nicole Richie, Brody Jenner. Þess má geta að Jenner er sonur Bruce Jenner og því stjúpbróðir Kardashian-systranna. 6.3.2011 10:00
Lady Gaga óheppin í ástum Vinir söngkonunnar Lady Gaga eru ósáttir við kærasta hennar og halda því fram að hann sé að nota hana. 6.3.2011 08:00
Steindi Jr spariklæddur Meðfylgjandi myndir voru teknar á Íslensku auglýsingaverðlaunahátíðinni sem fram fór á Hilton Reykjavík Nordica í gærkvöldi. ÍMARK, félag íslensk markaðsfólks, í samráði við Samband íslenskra auglýsingastofa, verðlaunar árlega auglýsingar, sem sendar eru inn í keppnina sem ber heitið Lúðurinn. Íslenska auglýsingastofan, Fíton og Hvíta húsið hlutu flesta lúðra. Athygli vakti að Steindi Jr var áberandi smart klæddur en hann var í jakkafötum, skyrtu og með bindi eins og sjá má á myndunum. 5.3.2011 17:21
Íd frumsýnir dansveislu Meðfylgjandi myndir voru teknar á frumsýningu Íslenska dansflokksins í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi. Um var að ræða dansveislu sem ber heitið Sinnum þrír þar sem áhorfendur upplifa kraftmikinn dans, ærslafullan kabarett og sirkuslistir. Eins og sjá má ríkti gleði á meðal frumsýningargesta. 5.3.2011 16:41
Vel heppnuð LÍF-söfnun Meðfylgjandi myndir voru teknar í húsakynnum Saga film í Reykjavík í kvöld, þar sem LÍF söfnunin, Gefðu líf, sem fram fór um allt land fyrir Kvennadeild Landspítala háskólasjúkrahúss, var sýnd á Stöð 2 í beinni útsendingu. 5.3.2011 00:03
Kvæntur maður Gamanleikarinn Mike Myers kvæntist í laumi kærustu sinni, Kelly Tisdale, í lok síðasta árs. Parið kynntist árið 2006 en hefur reynt að halda sambandi sínu út af fyrir sig. Kelly Tisdale er fyrrverandi kærasta tónlistarmannsins Moby og saman reka þau testofu í New York þar sem hún og Myers kynntust. Þegar NationalEnquirer hafði samband við Myers sagði hann aðeins: „Ég er hissa að þið höfðuð ekki frétt af þessu fyrr.“ 5.3.2011 15:00
Fjögur hundruð vilja vera fréttamenn á RÚV „Það er ánægjulegt að sjá þennan áhuga á bæði RÚV og fréttastofunni. En þetta lýsir jafnframt atvinnuástandinu,“ segir Óðinn Jónsson, fréttastjóri RÚV. 5.3.2011 14:00
Fékk lopapeysu upp á svið frá aldraðri grúppíu „Viðtökurnar hafa verið yndislegar. Það er rosalega gaman að syngja fyrir eldra fólk,“ segir tónlistarmaðurinn Svavar Knútur. Svavar Knútur gaf út plötuna Amma í fyrra. Á henni flytur hann gamlar perlur sem hann hefur tekið ástfóstri við, en platan er tileinkuð ömmum hans. Svavar hefur fylgt plötunni eftir í félagsmiðstöðvum eldri borgara víða um land og verið vel tekið. „Það er svo mikil æskudýrkun í samfélaginu,“ segir Svavar 5.3.2011 12:00
Þolir ekki Longoria Stuttu eftir skilnað sinn við körfuknattleiksmanninn Tony Parker hóf leikkonan Eva Longoria samband með Eduardo Cruz, litla bróður leikkonunnar Penelope Cruz. Samkvæmt heimildum The National Enquirer er Penelope lítið hrifin af þessu sambandi og óttast að Longoria muni skilja bróður sinn eftir í sárum. 5.3.2011 11:00
Lygilegt langlífi Spaugstofunnar „Þetta er auðvitað lygilegt,“ segir leikarinn Karl Ágúst Úlfsson. Fjögur hundraðasti þáttur Spaugstofunnar verður sýndur á Stöð 2 í kvöld. Þættirnir hófust í Ríkissjónvarpinu árið 1985 og hafa verið sýndir við miklar vinsældir allar götur síðan, eða í 26 ár. 5.3.2011 11:00
Efron daðraði við annan karlmann Leikarinn Zac Efron á að hafa komið öllum á óvart þegar hann sást leiða karlmann í veislu einni í Hollywood fyrir stuttu. Tímaritið The National Enquirer heldur því jafnframt fram að Efron hafi einnig daðrað duglega við manninn og það í augnsýn fyrrverandi kærustunnar, leikkonunnar Vanessu Hudgens. 5.3.2011 10:00
Charlie yngri Leikaranum Shia LaBeouf hefur verið líkt við vandræðapésann Charlie Sheen og samkvæmt tímaritinu The Enquirer kann LaBeouf ágætlega við samlíkinguna. „Líf Shia er í mikilli óreglu. Hann vill vera þekktur sem drykkfelldur kvennabósi, ekki ólíkt Sheen, og eftir að hann tók að sér hlutverk í kvikmyndinni Wall Street 2: Money Never Sleeps hefur fólk tekið upp á því að kalla hann Charlie yngri,“ hefur tímaritið eftir heimildarmanni sem vill meina að LaBeouf sé hreykinn af samlíkingunni enda líti hann upp til Sheen. 5.3.2011 08:00
Smeykur við Lady Gaga Rapparinn Snoop Dogg er hrifinn af tónlist söngkonunnar Lady Gaga en segir að hann yrði of smeykur til að geta farið í rúmið með henni. Snoop segist telja að ástaratlotin yrðu undarleg, enda sé söngkonan ekki alveg eins og fólk er flest. 4.3.2011 22:00
Kann betur við mig í uppvaskinu Þúsundþjalasmiðurinn Friðrik Weisshappel víkkar út veldi sitt á morgun með opnun nýs Laundromat Café í Austurstræti. Fyrir rekur Friðrik tvö samnefnd kaffihús í Kaupmannahöfn við góðar undirtektir og segir nýjustu viðbótina fylgja sömu stefnu. 4.3.2011 16:00
Tobba Marínós fagnar Makalaus Ný þáttasería, Makalaus, sem er byggð á samnefndri metsölubók Tobbu Marinós hóf göngu sína á Skjá einum í gærkvöldi. Af því tilefni hélt Tobba heljarinnar partý á veitingahúsinu Austur þar sem fjöldi fólks mætti til að horfa á fyrsta þáttinn með henni og þeim sem komu að gerð seríunnar. Þakið ætlaði að rifna af veitingahúsinu þegar þátturinn tók enda og faganaðarlætin brutust út en allir voru sammála um að vel hafi tekist til. Þá voru gestir leystir út með gjöfum eins og sleipiefni og smokkum á milli þess sem þeir sötruðu kokteila. 4.3.2011 08:16
Alex Metric þeytir skífum Breski plötusnúðurinn Alex Metric spilar á Nasa í kvöld. Hljómsveitin Bloodgroup sér um upphitun. Metric kom sá og sigraði á síðustu Iceland Airwaves-hátíð. Undanfarið hefur hann hitt í mark víða um Evrópu með laginu Open Your Eyes sem hann gerði í samvinnu við Steve Angello, einum af meðlimum hópsins Swedish House Mafia. Metric er þessa dagana að vinna að sinni fyrstu plötu sem kemur út í sumar og verður gefin út hjá EMI. Hún inniheldur nýtt efni ásamt endurhljóðblandaðri útgáfu af laginu Sabotage með Beastie Boys sem hefur verið vinsælt að undanförnu. 4.3.2011 08:00
Vel heppnuð frumsýning Gamanmyndin Okkar eigin Osló var frumsýnd í Smárabíói í fyrrakvöld. Þangað mættu leikarar og aðrir starfsmenn myndarinnar ásamt fleiri góðum gestum og var mikil ánægja með útkomuna. Okkar eigin Osló er fyrsta mynd Reynis Lyngdal. 4.3.2011 00:01
Bieber-æði á Íslandi: Koma grátandi út úr bíó "Fólk er að missa sig, það er bara þannig," segir Sigurður Victor Chelbat hjá Sambíóunum. Heimildarmyndin Never Say Never, sem fjallar um ævi, uppvöxt og nýtilkomnar vinsældir söngvarans Justins Bieber, hefur slegið í gegn á Íslandi. 4.3.2011 00:01
Bubbi: Ég er eins og ungbarn sem skoppast í kringum hana "Ég er eins og ungbarn sem skoppast í kringum hana," segir Bubbi Morthens sem á von á öðru barni með eiginkonu sinni Hrafnhildir Hafsteinsdóttur. "Börnin eru auðvitað það sem skiptir máli finnst mér. Fyrir utan það þá halda þau mér ungum og að ekki sé talað um þegar maður er með svona stórkostlegri gyðju eins og Hrafnhildi. Ég er eins og ungbarn sem skoppast í kringum hana," segir Bubbi. 3.3.2011 14:00
Stolt af appelsínuhúðinni "Já ég er með appelsínuhúð. Meira að segja þegar ég var sem grennst þá var ég með appelsínúð líka. Eftir að ég flutti til Las Vegas bjó ég á hótelsvítu þar sem ég pantaði alltaf mat upp á herbergi. Ég elska mat allt of mikið til að vera stöðugt í megrun. Franskar kartöflur eru uppáhaldið mitt." 3.3.2011 10:45
Fegurðardís vinsæl á Facebook "Það vilja allir vera vinir manns,“ segir Sigríður Dagbjört Ásgeirsdóttir, Ungfrú Reykjavík, sem hefur ekki undan að samþykkja vinabeiðnir á Facebook. "Maður samþykkir flesta en ég skoða samt vel og vandlega hverjum ég er að hleypa inn á Facebook.“ Hún er á lausu og viðurkennir að einhverjir hafi reynt við sig eftir að titillinn var í höfn. "Það hefur verið eitthvað um það en ekkert rosalega mikið.“ 3.3.2011 10:00
Sú besta í tuttugu ár Hljómsveitin R.E.M. gefur út sína fimmtándu hljóðversplötu. Sú besta síðan Out of Time, segir bassaleikarinn Mike Mills. Fimmtánda hljóðversplata bandaríska tríósins R.E.M., Collapse Into Now, kemur út í næstu viku. Þrjú ár eru liðin frá útgáfu hinnar prýðilegu Accelerate sem kom hljómsveitinni aftur á kortið eftir hina misheppnuðu Around the Sun. Upptökustjóri 3.3.2011 16:00
Komin heim frá Kína Íslenski dúettinn Heima sem hefur verið búsettur í Kína síðustu sex ár er snúinn heim til Íslands með ótal sögur og lög í farteskinu. Dúettinn samanstendur af þeim Rúnari Sigurbjörnssyni og Elínu Jónínu Ólafsdóttur og flytur frumsamda tónlist í þjóðlagastíl. Þau gáfu út plötuna The Long Road Home í Xiamen í Kína árið 2009 og héldu marga tónlistartengda listviðburði árum saman um gjörvallt landið. Tónleikar Heima verða haldnir á Rosenberg í kvöld og hefjast þeir klukkan 21.30. Aðgangseyrir er 1.000 krónur. 3.3.2011 14:00
Jonze og Kaufman starfa saman Mennirnir á bak við hinar Óskarstilnefndu Being John Malkovich og Adaptation, leikstjórinn Spike Jonze og handritshöfundurinn Charlie Kaufman, eru sagðir vera með nýja mynd á teikniborðinu, níu árum eftir að Adaptation kom út. Hún verður háðsádeila sem fjallar um þjóðarleiðtoga sem hittast reglulega til að ákveða hvað gerist í heiminum, meðal annars hvert olíuverðið verður og hvenær þeir vilja að stríðum ljúki. 3.3.2011 14:00
Spænsk stuðsveit á Listahátíð Ein vinsælasta popphljómsveit Spánar hefur boðað komu sína á Listahátíð í Reykjavík í vor. Um er að ræða stuðbandið Ojos de brujo en tónlist sveitarinnar hefur verið lýst sem blöndu af hiphoppi, reggíi, flamenco og danstónlist. 3.3.2011 13:00
Vill í alla hommaklúbba Bandaríkjanna Söngkonan Hera Björk Þórhallsdóttir er í forsíðuviðtali nýjasta tölublaðs tímaritsins Out on the Town. Tímaritið stærir sig að því að vera það heitasta í Suðurríkjum Bandaríkjanna sem er sérstaklega ætlað hommum og lesbíum. 3.3.2011 12:30
Keypti upptökugræjur og gítar fyrir sjúkrapeninginn Önnur sólóplata Sindra Más Sigfússonar, eða Sin Fang, kemur út á föstudag. Sindri hóf tónlistarferilinn um tvítugt eftir að hann var lagður inn á sjúkrahús í London. Rúmum tveimur árum eftir að Clangour kom út sendir Sindri Már Sigfússon, eða Sin Fang, frá sér sína aðra sólóplötu, Summer Echoes. Hún hefur að geyma tólf litrík popplög og kemur út á vegum Kimi Records á Íslandi og þýsku útgáfunnar Morr Music erlendis. 3.3.2011 12:00
Furtado skilar Gaddafí-peningum Nelly Furtado ætlar að gefa milljónirnar sem hún fékk fyrir að syngja fyrir fjölskyldu Líbíuleiðtogans Muammars Gaddafí. Söngkonan Nelly Furtado hefur ákveðið að gefa peningana sem hún fékk fyrir að syngja fyrir fjölskyldu Líbíuleiðtogans Muammars Gaddafí. Furtado sagðist á Twitter-síðu sinni hafa sungið fyrir fjölskylduna á 45 mínútna einkatónleikum á ítölsku hóteli árið 2007. Hún fékk eina milljón dala fyrir sönginn, eða um 115 milljónir króna, og ætlar að gefa summuna til góðgerðarmála. 3.3.2011 12:00
Fá leyfi til að leika sér Hall Pass heitir nýjasta mynd Farrelly-bræðra. Hún fjallar um vini sem fá leyfi frá eiginkonum sínum til að gera hvað sem þeir vilja í eina viku. 3.3.2011 12:00
Vill leika í grínmynd Bretinn Colin Firth, sem vann Óskarsverðlaunin fyrir hlutverk sitt í The King"s Speech, hefur mikinn áhuga á að leika í gamanmynd á næstunni. "Mig langar að leika í einhverri mynd sem fær mig til að hlæja og er í öðrum dúr en það sem ég hef gert að undanförnu. Þannig get ég haldið áfram að gera mig að fífli,“ sagði Firth, sem hefur getið sér gott orð fyrir gamanleik í Bridget Jones myndunum. 3.3.2011 12:00
Mamma ræður öllu Justin Bieber er nýorðinn 17 ára en hann sýnir enga tilburði í þá átt að vilja losna undan valdi móður sinnar. Eins og kom fram í Fréttablaðinu á dögunum skammtar mamma hans honum vasapeninga og kveðst hann hæstánægður með þann ráðahag. Auk þess þarf mamma gamla að samþykkja allar kærustur söngvarans vinsæla. Sú var raunin með núverandi kærustu hans, Selenu Gomez. 3.3.2011 12:00
Liam ræðst á Radiohead Skiptar skoðanir eru um nýjustu plötu hljómsveitarinnar Radiohead, The King of Limbs, sem kom út á dögunum. Platan hefur þó fengið fína dóma gagnrýnenda og er með 81 af 100 mögulegum í meðaleinkunn á vefsíðunni Metacritic.com. 3.3.2011 12:00