Fleiri fréttir

Miðarnir á Mið-Ísland rjúka út

Vinsældir grínhópsins Mið-Ísland aukast mikið þessa dagana. Hópurinn stendur fyrir uppistandskvöldi í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld og ruku miðarnir bókstaflega út. Annarri skemmtun hefur því verið bætt við á morgun.

Hitar upp fyrir Hjaltalín

Tónlistarmaðurinn Snorri Helgason, sem sló í gegn í Sprengjuhöllinni, hitar upp fyrir Hjaltalín á tónleikaferð sveitarinnar um Evrópu sem hefst á föstudag. "Ég hlakka mikið til. Ég fer á staði sem ég hef aldrei heimsótt áður og ég get ekki beðið eftir að spila nýju lögin mín og fá viðbrögð frá áhorfendum,“ segir Snorri. Hann hefur lokið upptökum á sinni annarri sólóplötu og kemur hún líklega út í sumar. Honum til aðstoðar við upptökurnar var Sindri Már Sigfússon úr hljómsveitunum Seabear og Sin Fang.

Peaches byrjuð að búa

Vandræðagemsinn Peaches Geldof er flutt inn með nýja kærastanum sínum. Aðeins eru þrír mánuðir síðan hún losaði sig við Íslandsvininn Eli Roth. Peaches, sem er dóttir tónlistarmannsins Bobs Geldof, hætti með leikstjóranum Eli Roth í nóvember eftir átta mánaða samband. Skömmu síðar byrjaði hún að hitta söngvarann Thomas Cohen, úr hljómsveitinni Scum. Turtildúfurnar opinberuðu samband sitt í síðasta mánuði og nú er alvara komin í málið því þau eru byrjuð að búa.

Heiðra Lebowski í fimmta sinn

Fimmta árlega Big Lebowski hátíðin verður haldin 12. mars í Keiluhöllinni. Þar verður samnefndri kvikmynd Coen-bræðra frá árinu 1998 gert hátt undir höfði en myndast hefur í kringum hana dyggur aðdáendahópur víða um heim, þar á meðal hér á landi.

Grínistinn Jon Lajoie til landsins

"Hann er rosalegur snillingur. Eitt af myndböndunum hans á Youtube er með 46 milljónir áhorfa. Þannig að það eru fleiri sammála mér,“ segir Ragnar Hlöðversson hjá Icegigg Entertainment.

Rocky Horror slær aðsóknarmet

Leikfélagið setur nýtt met á föstudaginn þegar áhorfendafjöldinn fer í fyrsta skipti yfir fimmtán þúsund manns. Þá verður haldin lokasýning söngleiksins Rocky Horror sem hefur verið sýndur í menningarhúsinu Hofi frá því í fyrra við góðar undirtektir. Hingað til hefur Fló á skinni frá leikárinu 2007 til 2008 verið vinsælasta sýning leikfélagsins til þessa en það breytist á föstudaginn.

Þessar kunna sko að skemmta sér

"Góugleðin er árlegt Fylkisball," útskýrði Margrét Kristjánsdóttir Fylkiskona með meiru spurð út í gleðskapinn þar sem 300 konur klæddar í appelsínugulan fatnað skemmtu sér saman í Fylkishöllinni eins og myndirnar sýna greinilega. "Þetta kvöld var Páll Óskar er engum líkur! Það trylltist allt þegar hann kom upp á svið og Hera Björk, hún var æðisleg. Konurnar sem mæta á Góugleði Fylkis eru allt gamlir Árbæingar," sagði Margrét.

Rafmagnslaus tónleikaröð

Tónleikaröðin Rafmagnslaust á Norðurpólnum hefur göngu sína á fimmtudagskvöld í hinu nýlega leikhúsi á Seltjarnarnesi. Þar koma fram Agent Fresco og Orphic Oxtra og spila eigið efni órafmagnað og flytja einnig sameiginlegt verk.

Allt annað að sjá þig núna Erpur

Um helgina snyrti Nonni Quest mottuna á vel á þriðja tug karla, en afraksturinn má líta augum í portrettmyndasyrpu eftir Einar Smárason ljósmyndara sem sýnd verður á göngum Kringlunnar í mars. Hægt verður að kaupa myndirnar til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands, bæði sýningarmyndirnar sjálfar og minni útgáfur. Í meðfylgjandi myndasyrpu má sjá myndir frá skeggstemmingunni þar sem Erpur Eyvindarson er meðal annars snyrtur.

Christina Aguilera handtekin

Burlesque leik- og söngkonan Christina Aguilera, 30 ára, og unnusti hennar, Matt Rutler, 25 ára, voru handtekin klukkan 2:45 í nótt í Hollywood. Christina var undir áhrifum og Matt, sem var einnig undir áhrifum, keyrði bílinn.

Hrukkubani sem svínvirkar

Halldóra Guðbjörg Jónsdóttir snyrtifræðingur á snyrtistofunni Systraselið á Háaleitisbraut sýnir í meðfylgjandi myndskeiði hvernig andlit fyrirsætunnar Ósk Norðfjörð er nánast orðið rennislétt. Um er að ræða súrefnismeðferð sem sléttir húðina og þéttir en Halldóra notar sérstaka airbrush-bursta-byssu sem þrýstir sérvöldum vítamínum inn í húðina.

Endurútgefa tvær plötur

Í tilefni af tuttugu ár afmæli sínu ætla rokkararnir í Pearl Jam að endurútgefa plöturnar Vs. og Vitalogy hinn 29. mars. Plöturnar koma út í sitt hvoru lagi og verða þrjú áður óútgefin aukalög á hvorri þeirra. Á Vs. verður órafmögnuð útgáfa af laginu Hold On, lagið Cready Stomp sem ekki komst á plötuna á sínum tíma, og þeirra útgáfa af lagi Victoriu Williams, Crazy Mary, þar sem Williams sjálf syngur og spilar á kassagítar. Á Vitalogy verður ný útgáfa af laginu Betterman þar sem aðeins gítar og orgel koma við sögu, ný útgáfa af Corduory og prufuútgáfa af Nothingman.

Ari Eldjárn stekkur á milli sýninga

"Við ákváðum að halda skemmtunina í Þjóðleikhúsinu fyrir löngu. Það sökk í mér hjartað þegar ég fékk boðsmiðann á frumsýningu Okkar eigin Osló,“ segir grínistinn Ari Eldjárn.

Hughreystingin í harminum

Katla Margrét Þorgeirsdóttir fer með aðalhlutverkið í leikgerð byggðri á Ótuktinni eftir Önnu Pálínu Árnadóttur, sem verður frumsýnd í Iðnó í apríl. Valgeir Skagfjörð semur leikgerðina en inn í hana fléttast tónlist og textar eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson.

Unnu við verstu mynd ársins

"Ég get ekki annað sagt en að hún sé vel að þessu komin,“ segir brellumeistarinn Haukur Karlsson. Ævintýramyndin The Last Airbender sem hann starfaði við ásamt Jóhannesi Sverrissyni hlaut Razzie-skammarverðlaunin í Hollywood sem versta mynd síðasta árs.

Umhverfis jörðina á 80 dögum á Vísi

Vísir frumsýnir í dag fyrsta myndbandið frá ferðalagi Sighvats Bjarnasonar, sem ætlar umhverfis jörðina á 80 dögum. Hann lagði af stað í gær frá Keflavík og sendi myndbandið frá Höfðaborg í dag.

Ástarátthyrningur í Búðardal

Kvikmyndin Kurteist fólk verður frumsýnd í lok marsmánuðar og eru Ólafur Jóhannesson leikstjóri og hans fólk í Poppoli Pictures nú í óðaönn að leggja lokahönd á verkið.

Mikið rétt það voru fleiri partý í gangi

Fleiri en Hildur Líf og Linda Ýr héldu partý um helgina. Á laugardaginn var bærinn stútfullur af fólki að skemmta sér. Meðfylgjandi myndir tók Sveinbi ljósmyndari Superman.is á skemmtistöðunum Hvíta Perlan, Risið og Hressó á laugardagskvöldið.

Tilnefndur til Emmy-verðlauna

Hermann Hermannsson klippari hefur verið tilnefndur til fernra New York Emmy-verðlauna fyrir vinnu sína við sjónvarpsþættina Knicks Poetry Slam. Verðlaunin eru systurverðlaun hinna þekktu Emmy-verðlauna og hafa verið veitt árlega frá árinu 1955.

Stafræn tónleikaferð

Hljómsveitin Stafrænn Hákon er á leiðinni í tónleikaferð um Evrópu sem hefst í Þýskalandi 22. apríl. Um kynningarferð er að ræða vegna sjöttu plötu hennar, Sanitas, sem kom út síðasta vor.

Hannar hreyfingar George Clooney og Söndru Bullock

"Ég var að vinna í þessu síðasta sumar, var hálft ár í London og þurfti því að kúpla mig út úr vinnunni hér heima," segir Daði Einarsson hjá tæknibrellufyrirtækinu Framestore Reykjavík. Hann vann náið með mexíkóska verðlaunaleikstjóranum Alfonso Cuarón við nýjustu kvikmynd hans, Gravity, sem skartar meðal annars stórleikurunum George Clooney og Söndru Bullock í aðalhlutverkum.

Beastie Boys snýr aftur

Rappsveitin Beastie Boys hefur loksins ákveðið útgáfudag á nýjustu plötu sinni, Hot Sauce Comittee Pt 2. Hún kemur út 19. apríl og bíða hennar margir með mikilli eftirvæntingu. Gripurinn átti upphaflega að heita Hot Sauce Commiettee Pt 1 og útgáfudagur átti að vera í september 2009.

Glæný tónlistarhátíð

Tónlistarhátíðin Bergen-Reykjavík-Nuuk fór fram í leikhúsinu Norðurpólnum á fimmtudag og föstudagskvöld. Fjöldi tónlistarmanna steig þar á svið og lét ljós sitt skína.

Óvissa um Eagles-ferð til Hamborgar

Á sama tíma og Sena auglýsir tónleika með hljómsveitinni Eagles í Nýju Laugardalshöllinni 9. júní auglýsir Icelandair pakkaferð á Eagles-tónleika í Hamborg tæpum þremur vikum síðar, eða 28. júní, sem kostar á annað hundrað þúsund krónur.

Það leiddist engum á Replay

Meðfylgjandi myndir voru teknar á skemmtistaðnum Replay í gærkvöldi þar sem gleðskapur á vegum Hildar Líf og Lindu Ýr fór fram með látum. Stúlkurnar mættu í hvítri limmósínu og gáfu sér tíma til að pósa fyrir utan staðinn þrátt fyrir kuldann. Sigríður Klingenberg stjórnaði veislunni en hún fékk gesti meðal annars til að dilla sér saman í takt við lagið Sex bomb í flutningi Tom Jones og það vakti mikla lukku. Eins og myndirnar sýna leiddist engum þetta kvöld.

Þetta lið bókstaflega veinaði

Frumsýningargestir, sem skoða má á meðfylgjandi myndum, veinuðu af hlátri á frumsýningu gamanleiksins Nei, ráðherra í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi. Verkið hefur slegið í gegn víða um heim en fer nú í fyrsta skipti á íslenskar leik- húsfjalir þar sem það er flutt í íslenskri heimfærslu Gísla Rúnars Jónssonar. Eins og sjá má voru leikhúsgestir í hátíðarskapi.

Verzlunarskóladama valin ungfrú Reykjavík

Verzlunarskóladaman Sigríður Dagbjört Ásgeirsdóttir var valin ungfrú Reykjavík á veitingahúsinu Broadway í gærkvöldi. Eyrún Anna Tryggvadóttir landaði öðru sæti og Hjördís Hjörleifsdóttir því þriðja. Meðfylgjandi má sjá myndir frá keppninni en gríðarlega góð stemning var á þéttsetnu veitingahúsinu eins og myndirnar sýna greinilega. Halldóra Arnardóttir var kosin vinsælasta stúlkan í hópnum og Lilja Ragna Róbertsdóttir sigraði símakosninguna.

Skálmöld í Tjarnarbíói

Hljómsveitin Skálmöld hélt útgáfutónleika í Tjarnarbíói á fimmtudagskvöld. Margt var um manninn á tónleikunum sem mæltust einstaklega vel fyrir.

Ný tónlistarhátíð haldin í vor

„Það vantar bara partí,“ segir Kristján Freyr Halldórsson hjá Kimi Records. Útgáfufyrirtækið skipuleggur í fyrsta sinn tónlistarhátíðina Reykjavík Music Mess sem verður haldin dagana 16. og 17. apríl.

Lifa bóhemlífi í München

„Ég seldi fyrirtækið áður en kreppan skall á en var samt enn fullur af fjöri. Ég rak auðvitað gallerí í tuttugu ár og núna fæ ég útrás fyrir sköpunargleðina fyrir framan strigann,“ segir Sævar Karl Ólason, fyrrum kaupmaður.

Hundrað vilja í Stundina okkar

„Við fengum fullt af spennandi umsóknum frá spennandi fólki,“ segir Sigrún Stefánsdóttir, dagskrárstjóri RÚV.

Almúgapartý á Gullöldinni í kvöld

„Þetta partý verður hreint út sagt frábært og verða heimatilbúin skemmtiatriði eins og við gerum best hérna á Gullöldinni," segir Davíð Þór Rúnarsson hjá Gullöldinni í Grafarvogi. Í kvöld verður „Almúgapartý" á Gullöldinni en hugmyndin kom eftir að grein birtist á vefnum bleikt.is um VIP-partý á Replay.

Hræðileg æskuár

Spjallþáttadrottningin Oprah birti nýverið langt og ítarlegt sjónvarpsviðtal við leikarann David Arquette þar sem hann ræðir meðal annars um erfiða æsku sína. Systur hans tvær, leikkonurnar Rosanna og Patricia Arquette, komu einnig fram í viðtalinu og lýstu erfiðri æsku sinni.

Eltihrellir handtekinn

Nálgunarbann hefur verið sett á brjálaðan aðdáanda leikkonunnar Sharon Stone. Maðurinn má ekki koma nær húsi leikkonunnar og þriggja barna hennar en eitt hundrað metra. Hann sást á lóð hennar fyrr í mánuðinum og í framhaldinu var hann handtekinn af lögreglu og fluttur á geðdeild.

Björk og Emilíana í stelpumynd

Íslensku söngkonurnar Björk Guðmundsdóttir og Emilíana Torrini eiga báðar lag í bandarísku stelpuhasarmyndinni Sucker Punch.

Dusta rykið af týndu plötunni með Fídel

Hljómsveitin Fídel þótti gríðarlega efnileg á sínum tíma og sendi frá sér magnaða plötu, áður en hún hætti skyndilega. Nú hafa meðlimir hljómsveitarinnar dustað rykið af týndum upptökum.

Hermir eftir strákunum og rakar á sig hanakamb

Gunnar Helgason leikstjóri leikstýrir Herranótt Menntaskólans í Reykjavík þetta árið. Eins og komið hefur fram er það Draumur á Jónsmessunótt sem varð fyrir valinu og er frumsýning í kvöld.

Götutískan í Kaupmannahöfn

Kaupmannahafnarbúar hafa ávallt þótt vera með puttann á tískupúlsinum. Föstudagur Fréttablaðsins ákvað að nýta tækifærið og fara á stúfana með ljósmyndaranum Hildi Maríu Valgarðsdóttur og mynda smekklega borgarbúa meðan á tískuvikunni í Kaupmannahöfn stóð. Hér má sjá afraksturinn af því.

Strákarnir látnir strippa

Lilja Katrín Gunnarsdóttir leikkona viðurkennir meðal annars í myndskeiðinu að karlleikarar þáttanna sýndu hold en ekki kvenkynsleikararnir en þar verða áhorfendur að láta ímyndunaraflið ráða ferðinni.

Oprah með íslenska hönnun um sig miðja

Unnur Friðriksdóttir hönnuður gerir það gott í Los Angeles þar sem hún rekur fyrirtækið UNNURWEAR. Ýmsar stjórstjörnur eru í hópi viðskiptavina Unnar og nýverið bættist sjálf spjallþáttadrottningin Oprah Winfrey við.

Kvöddu látinn félaga

Meðfylgjandi myndir voru teknar á miðvikudaginn á tónleikum sem haldnir voru á vegum Extreme Chill og Weirdcore á veitingahúsinu Kaffibarnum fyrir tónlistarmanninn Bjössa Biogen, eða Sigurbjörn Þorgrímsson, en hann féll frá 8. febrúar síðastliðinn. Bjössi var vel þekktur hér á landi sem einn af frumkvöðlum í íslensku dans og raftónlistar senunni og naut mikillar virðingar sem tónlistarmaður bæði hérlendis og erlendis. Listamenn á borð við Ruxpin, Yagya, Futurergrapher, Beatmakin Troopa , AnDre, Skurken, Tanya Pollock, Frank Murder, Krummi Björgvinsson, Steve Sampling og fleiri spiluðu tónlist þetta kvöld til heiðurs Bjössa.

Hannaði hlébarðasamfestinginn sjálf

"Ég vissi á fimmtudeginum fyrir Edduverðlaunahátíðina að ég myndi mæta og hugsaði að þyrfti ég að fara upp á svið yrði ég hvort sem er allt öðruvísi en aðrir í salnum, svo ég ákvað að gera þetta bara á minn hátt," segir Bjarnheiður Hannesdóttir, sem vakið hefur athygli fyrir þröngan samfesting með hlébarðamynstri sem hún klæddist á hátíðinni.

Gert að laga hreiminn

Breska söngkonan Cheryl Cole hyggst hasla sér völl í bandarísku sjónvarpi sem dómari í raunveruleikaþáttaröðinni X-Factor. Hún á þó erfitt verkefni fyrir höndum.

Sjá næstu 50 fréttir