Fleiri fréttir

Óli er ekki að grínast, segir Sigfús

Vísir hafði samband við Sigfús Sigurðsson leikmann íslenska handboltalandsliðsins og spurði hann um jákvæðan orðaforða fyrirliðans Ólafs Stefánssonar.

Orlando Bloom heillar undirfatamódel

Leikarinn Orlando Bloom, 31 árs, er byrjaður aftur með undirfatafyrirsætu, sem vakti fyrst athygli á heimsvísu þegar hún starfaði fyrir undirfatafyrirtækið Victoria's Secret, Miröndu Kerr.

Aðeins einn Dan Brown

Fimm ár eru síðan hinn geysivinsæli rithöfundur Dan Brown gaf út sína síðustu spennusögu Davinci-lykilinn. Því er lesendum eðlilega farið að lengja eftir hinni nýju sögu, Salómónslyklinum.

Handboltinn á bíóskjá í Álfabakka og á Akureyri

Íslendingar eru handboltaóðir þessa dagana, enda hafa strákarnir, sem nú eru „okkar" staðið sig með prýði í Peking. Gríðarleg eftirvænting er fyrir leik landsliðsins við Spánverja sem fram fer á föstudag. Þar ræðst hvort liðið keppir um úrslit. Sambíóin hafa í ljósi þessa einstaka árangurs ákveðið að sýna leikinn í kvikmyndahúsum sínum við Álfabakka og á Akureyri.

Britney í strangri megrun en saknar barnanna

Britney Spears heldur enn í vonina að fá aftur forræðið yfir sonum sínum tveimur Preston og Jayden. Söngkonan gengur alltaf með hálsmen merkt drengjunum síðan barnsfaðir hennar Kevin Federline fékk forræðið yfir þeim en þannig vill hún sýna að þeir eru ávallt í huga hennar þrátt fyrir fjarveruna. Meðfylgjandi myndir sýna hálsmenið sem er merkt börnunum hennar.

Elskar dauðadrukkinn Rhys sem líkist pabba Rod Stewart

Dóttir Rod Stewart, Kimberly, nýja kærasta leikarans Rhys Ifans, sem virðist vera á góðri leið með að komast yfir erfiðan söknuðinn eftir sambandsslitin við leikkonuna Siennu Miller, er yfir sig ásfangin af leikaranum.

Gary Glitter í limbói

Breskir miðlar segja nú að barnaníðingurinn og rokkststjarnan fyrrverandi sé nú í alþjóðlegu limbói. Honum var sleppt úr haldi í Víetnam á dögunum og flau þaðan til Tælands en fékk ekki að yfirgefa flugvöllinn. Þarlend stjórnvöld vildu koma honum til Englands eins og hann hafði samþykkt í upphafi en þegar til kastana kom,þvertók hann fyrir það og keypti miða til Hong Kong.

Stjörnur syngja gegn krabbameini

Fimmtán heimsþekktar söngkonur munu syngja saman lag í tengslum við fjáröflunarþátt sem sýndur verður í beinni útsendingu á bandarísku sjónvarpsstöðvunum ABC, NBC og CBS 5. september næst komandi. Yfirskrift söfnunarinnar er - Stand Up To Cancer - og verður féð sem tekst að safna notað í baráttunni gegn krabbameini.

Raddir fyrir Tíbet í Salnum

Næst komandi sunnudagskvöld verða haldnir styrktartónleikar í Salnum í Kópavogi undir yfirskriftinni Raddir fyrir Tíbet. KK, Svavar Knútur, Jónas Sigurðsson, Páll Óskar & Monica og Jón Tryggvi koma fram á tónleikunum.

Ingibjörg Sólrún tekur á móti gestum á menningarnótt

Utanríkisráðuneytið hefur ákveðið að taka þátt í Menningarnótt Reykjavíkurborgar til að kynna starf utanríkisþjónustunnar og starfsumhverfi. Verður það með opið hús laugardaginn 23. ágúst, á milli kl.14:00 – 18:00.

Förðunarfræðingur Angelinu Jolie látinn

Förðunarfræðingur Angelinu Jolie, Paul Starr, fannst látinn í íbúð sinni í Los Angeles í gær. Dánarorsök hans er ekki kunn samkvæmt fjölmiðlum vestan hafs.

El Perro Del Mar á Airwaves

Sænska söngkonan El Perro Del Mar hefur staðfest þátttöku sína í Iceland Airwaves í haust. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðstandendum hátíðarinnar. Enn vilja þeir þó ekki staðfesta komu Vampire Weekend sem Vísir sagði frá í síðustu viku að muni spila á hátíðinni samkvæmt MySpace síðu sveitarinnar.

Háværar raddir um óléttu Evu Longoria - myndir

Leikkonan Eva Longoria ein aðalstjarnan úr sjónvarpsþáttunum Aðþrengdum eiginkonum, yfirgaf ásamt eiginmanni sínum, Tony Parker, veitingastaðinn Beso, sem hún opnaði í maí síðiastliðnum í Los Angeles en staðurinn er í eigu hjónanna.

Keira Knightley keðjureykti og fræddist um kynlíf hjá mömmu

Leikkonan Keira Knightley, sem er 23 ára gömul, gerði sér glaðan dag með kærastanum Rupert Friend í Lundúnum eins og sést ámeðfylgjandi myndum. Í nýlegu viðtali við breska tímaritið Glamour segir Keira að hennar besti vinur er móðir hennar.

Meg Ryan misheppnuð í ástarmálum

Leikkonan Meg Ryan, sem þekkt er fyrir að fara með hlutverk í rómantískum gamanmyndum eins og When Harry met Sally og You´ve got Mail, heldur því fram að ekki er mögulegt fyrir konu eins og hana að verða ástfangin samhliða tímafreku leikarastarfinu.

Ofurfyrirsætan Gisele flýr af vettvangi - myndir

27 ára gamla brasilíska ofurfyrirsætan Gisele Bundchen sem átti á sínum tíma í ástarsambandi við leikarann Leonardo DiCaprio og er núna með ruðningskappanum Tom Brady flýði ljósmyndara sem sátu fyrir henni fyrir utan íbúð hennar í New York.

Katherine Heigl fær sínu fram í Grey´s Anatomy

,,Ég er sprelllifandi út alla næstu seríu," sagði leikkonan þegar hún pósaði fyrir ljósmyndarana eins og myndirnar sýna en hún mun hafa verið afar ósátt með handrit seinustu þáttaraðar því hún taldi sig ekki hafa fengið mikið til að moða úr.

Dj Platurn á vefsíðu MTV

Heimildarmynd Ragnhildar Magnúsdóttur, From Oakland To Iceland, hefur verið tekin til sýninga á vefsíðu skandinavísku MTV-stöðvarinnar. Hún fjallar um heimkomu bróður Ragnhildar, DJ Platurn, eða Illuga, til Íslands eftir 25 ára fjarveru.

Christina Applegate lét fjarlægja á sér brjóstin

Bandaríska leikkonan Christina Applegate sagði í viðtali við sjónvarpsþáttinn Good Morning America að hún væri laus við brjóstakrabbamein sem hún greindist með fyrir skömmu síðan. Applegate lét fjarlægja bæði brjóstin sín.

Fengu lánað fyrir lottómiða sem gaf af sér 65 milljónir

Fjölskylda búsett í Efra-Breiðholti datt heldur betur í lukkupottinn um helgina þegar lottómiði sem fjölskyldufaðirinn keypti í Leifasjoppu í Fellahverfi skilaði rúmlega 65 milljónum króna. Vinningurinn er einn hæsti lottóvinningur sem hefur verið greiddur út hér á landi.

Lily Allen ofurölvi í slagsmálum - myndir

Breska söngkonan Lily Allen er ekki fyrr búin að biðja bresku þjóðina innilegrar afsökunar á heimasíðu sinni fyrir að hafa drukkið fullmikið á árlegri hátíð Glamour magazine sem var haldin í tilefni af vali á konu ársins í júní síðastliðnum en hún lendir í slagsmálum haugadrukkin.

Stofnar samtök um bíllausan lífsstíl

Sigrún Helga Lund er stærðfræðingur og tveggja barna móðir í Vesturbæ Reykjavíkur. Annað kvöld stendur hún fyrir stofnun nýrra samtaka um bíllausan lífsstíl. Sigrún stofnaði samfélag tengdu málefninu á Facebook fyrir skömmu og hafa rúmlega þúsund manns nú þegar skráð sig. Hún segir verulega halla á þá sem kjósa sér annan samgöngumáta en bíla.

Jóhanna Vilhjálms veiddi Maríulaxinn kasólétt

„Þetta var bara stórkostleg upplifun en það var einnig mjög góð tilfinning að sleppa honum," svarar Jóhanna Vilhjálmsdóttir fjölmiðlakona þegar Vísir spyr hana út í Maríulaxinn sem hún veiddi í drottningu laxánna, Laxá í Aðaldal, um helgina.

Bloc Party með nýja plötu á fimmtudag

Hljómsveitin Bloc Party hefur loksins gefið það út hvenær næsta breiðskífa hennar kemur út. Fyrirvarinn er ekki mikill því platan kemur út á fimmtudag.

Christina Aguilera laus við glamúr - myndir

Christina Aguilera og eiginmaður hennar Jordan Bratman sem eignuðust sitt fyrsta barn í janúar á þessu ári, drenginn Max, voru afslöppuð og laus við allan glamúr sem einkennir söngkonuna þegar hún fer út fyrir hússins dyr þegar ljósmyndarar þyrptust að þeim yfirgefa veitingastað í Beverly Hills.

Sveitabúðkaup opnar heimasíðu

Kvikmyndin Sveitabrúðkaup eftir Valdísi Óskarsdóttur verður frumsýnd þann 28.08.08 og er beðið með nokkurri eftirvæntingu. Nú hefur kvikmyndin opnað heimasíðu þar sem hægt er að sjá ýmsan fróðleik um myndina.

Jennifer Lopez staðráðin í að komast aftur í gott form

Jennifer Lopez, 38 ára, nýbökuð móðir segir í nýlegu viðtali í sjónvarpsþættinum Good Morning America sem sýndur er á ABC sjónvarpsstöðinni að hún hafi byrjað að stunda líkamsrækt þegar tvíburarnir, Max og Emme, voru aðeins sex mánaða gamlir.

Draumalandið komið út á ensku - Björk skrifar formála

Draumalandið, bók Andra Snæs Magnasonar, hefur verið gefin út á ensku af forlaginu Citizen Press. Nefnist hún"Dreamland - A Self-Help Guide For a Frightened Nation." Björk ritar formála. Enska útgáfan kom út hér á landi sama dag og Náttúru tónleikarnir voru haldnir í Laugardal. Hún er nú til sölu í bókabúðum um land allt.

Sjá næstu 50 fréttir