Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Einhleypir Íslendingar stofna klúbb „Þessi hugmynd kviknaði nú bara þegar ég var eitthvað að ráfa á netinu og komst í raun um að það er enginn félagsskapur fyrir einhleypa,“ segir Anna Magnea Harðardóttir, fertugur grunnskólakennari í Hofsstaðarskóla. Hún kom á fót vefsíðunni soloklubburinn.com fyrr á þessu ári þar sem einhleypum Íslendingum gafst kostur á að kynnast öðrum í svipaðri stöðu. Og vefsíðan hefur blómstrað frá fyrsta degi. 12.7.2007 10:00
Heldur kjólauppboð á Myspace Margrét Erla Maack ver sumrinu við magadans í New York. Samhliða því gleður hún hjörtu þeirra íslensku stúlkna sem kunna að meta second-hand föt. Hún býður afrakstur verslunarferða sinna upp á myspace. 12.7.2007 09:15
Divine Brown þakklát Hugh Grant Fyrir tólf árum síðan gekk hinn 25 ára gamla Divine Brown út á Sunset Boulevard og stundaði iðju sína sem vændiskona. Þegar hvítur BMW renndi upp við hliðina á henni breyttist líf hennar á örskotsstundu. 12.7.2007 08:00
Mega ekki eignast börn Hinni nýgiftu Evu Longoria hefur verið bannað að eignast börn strax af yfirmönnum hennar í Desperate Housewives. Framleiðandi þáttanna, Marc Cherry, minntist á það í ræðu sem hann hélt í brúðkaupinu að brúðhjónin mættu ekki eignast börn í heilt ár samkvæmt samningi þáttanna. Eva segir þetta þó alls ekki angra sig og að hún hlakki til að eyða tíma með eiginmanni sínum. 12.7.2007 05:00
Ekkert gerst við Austurstræti Það hefur ekkert gerst í húsunum sem brunnu við Austurstræti, þótt heilir þrír mánuðir séu liðnir frá brunanum. Enn standa hálffullar áfengisflöskur á barnum á Pravda og ekki hefur enn náðst samkomulag við eigendur húsanna um kaupverð. 11.7.2007 20:10
Sagt upp eftir nótt með 50 Cent Knattspyrnukappinn Marcus Bent, sem leikur með Charlton, hefur sagt kærustunni sinni, Danielle Lloyd, upp. Hún eyddi nótt með rapparanum 50 Cent þar sem mikið gekk á. 11.7.2007 14:28
Tívolíið við Smáralind opið Tívolíð við Smáralind var opnað um helgina. Í ár hafa fjögur ný tæki bæst við flóruna og má því telja næsta öruggt að allir ættu að geta skemmt sér konunglega. Miðaverðið er það sama og hefur verið frá upphafi, miðinn kostar 100 krónur en misjafn er hversu marga miða þarf í hvert tæki. 11.7.2007 11:53
Dita er glamúrgella Háklassa-strippgellan Dita Von Teese segist ekki hafa áhuga á náttúrulegri fegurð. „Ég hef mun meiri áhuga á glamúr,“ segir hún. „Hin unga Marilyn Monroe var einungis falleg stúlka í heilum hafsjó af fallegum stúlkum. 11.7.2007 02:15
Horfir á fótboltaleiki úr húsbílnum „Þetta er einstaklega þægilegt og ég get ekki annað en mælt með þessu. Þetta er klárlega besta sætið á vellinum. Svo þegar lítið er að gerast í leiknum er hægt að kíkja á fréttirnar í sjónvarpinu,“ segir Hafnfirðingurinn Þórður Rúnar Þórmundsson, gallharður stuðningsmaður FH, sem horfir á heimaleiki sinna manna í Kaplakrika úr húsbílnum sínum. 11.7.2007 02:00
Reiknað með metþátttöku í Mýrarboltanum „Í fyrra voru 260 þátttakendur en við teljum okkur vera illa svikna ef sú tala verður ekki slegin í ár,“ segir Hálfdán Bjarki Hálfdánsson, talsmaður Mýrarboltamótsins sem haldið verður á Ísafirði um verslunarmannahelgina. 11.7.2007 01:15
Setur kavíar í hárið Leikkonan Catherine Zeta-Jones hefur gengið ansi langt í fegrunarráðum og þrífur hárið með sérstökum Beluga-kavíar frá Íran. Þetta lætur hún gera á hárgreiðslustofu í Suður-Kensington. 11.7.2007 01:00
Spurningakeppni sveitarfélaga endurvakin í haust „Þetta er rétt, við verðum með þessa keppni og hún hefst 14. september,“ segir Þórhallur Gunnarsson, dagskrárstjóri RÚV ohf., en Sjónvarpið hyggst endurvekja spurningakeppni milli 24 stærstu sveitarfélaga landsins. 11.7.2007 00:45
Tískulína frá Timberlake Justin Timberlake var mættur í Harvey Nichols í New York í fyrradag þar sem ný tískulína frá honum var kynnt. Aðdáendur flykktust að í von um að líta stjörnuna augum en ásamt Justin hannar vinur hans Trace Ayala línuna sem ber heitið William Rast. 11.7.2007 00:30
Austurlensk áhrif hjá Hrefnu Hrefna Rósa Sætran opnar nýjan veitingastað snemma í ágúst og kallar hann Fiskmarkaðinn. Hrefna var í kokkalandsliðinu og eftir skóla fór hún að vinna á Sjávarkjallaranum þar sem hún var orðin yfirkokkur. 11.7.2007 00:30
Björgólfur skildi ekki húmorinn og er hættur að skora Gengi KR-inga í Landsbankadeildinni hefur verið á allra vörum í sumar enda byrjun liðsins í mótinu ein sú slakasta sem um getur. Fyrir nokkrum vikum síðan var leikmönnum liðsins smalað saman í ferð sem ætlað var að efla andann í hópnum. 10.7.2007 06:00
Britney breytir erfðaskrá sinni Britney Spears hefur látið breyta erfðaskrá sinni til að tryggja að móðir hennar, Lynne, fái ekki forræði yfir tveimur sonum Britneyjar og Kevins Federline, Sean Preston og Jayden James. Yngri systir Britneyjar, Jamie Lynne, mun í staðinn erfa eignir söngkonunnar og fá forræði yfir sonum hennar þegar söngkonan fellur frá, að því er National Enquirer greinir frá. 10.7.2007 03:00
Eiður Smári færði frúnni nýjan bíl Eiður Smári Guðjónsson, leikmaður Barcelona og fyrirliði íslenska landsliðsins í fótbolta, kom eiginkonu sinni á óvart í annað sinn á fáum dögum um helgina. Ragnhildur Sveinsdóttir, kona Eiðs, varð þrítug á sunnudaginn og á afmælisdaginn færði Eiður henni glænýjan bíl að gjöf. Bíllinn er af gerðinni Mini Cooper, svartur að lit og kostar að líkindum á bilinu 3-4 milljónir króna. 10.7.2007 02:45
Eva og Tony gift Eva Longoria og körfuboltakærastinn hennar Tony Parker giftu sig um helgina á hinum vinsæla degi 07.07‘07. Eva gat ekki alveg ákveðið hvernig kjól hún ætti að velja sér enda hefur hún sennilega efni á þeim öllum. Að lokum komst hún að þeirri niðurstöðu að vera í Chanel hátískukjól í giftingunni sjálfri en í sjötíuogfimmþúsund dollara Veru Wang kjól í veislunni. 10.7.2007 02:30
Grét úr leiðindum við bókbandið Níu leikarar útskrifuðust frá Listaháskóla Íslands fyrir skemmstu og er ábyggilega ekki langt að bíða þar til andlit þeirra verða Íslendingum að góðu kunn. Á næstu dögum munu þessir nýjustu leikarar landsins sitja fyrir svörum hjá Fréttablaðinu, hver í sínu lagi. Í dag er það Sara Marti Guðmundsdóttir sem situr fyrir svörum. 10.7.2007 02:00
Hartnett og Christensen nýjasta parið Nýjasta parið í stjörnuheiminum eru leikarinn Josh Hartnett og danska ofurfyrirsætan Helena Christensen. Talsmenn þeirra beggja neita að sjálfsögðu orðrómnum. Sagan segir að Helena Christensen hafi ætlað sér að koma Hartnett og vinkonu sinni, Rosario Dawson, saman. 10.7.2007 01:45
Þakklátir staðarhöldurum í Breiðavík „Við erum þeim hjónum alveg ótrúlega þakklátir og móttökurnar hafa verið bæði hlýlegar og yndislegar,“ segir Egill Helgi Kristinsson, sem situr í stjórn Breiðavíkursamtakanna. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær eru Íslendingar tregir við að ferðast til Breiðavíkur eftir að upp komst um illa meðferð á unglingsdrengjum þar á 6., .7. og 8. áratugnum. Framar í blaðinu má síðan sjá umfjöllun um heimasíðu sem samtökin hafa stofnað á vefslóðinni breidavikursamtok.is. 10.7.2007 00:15
Avril Lagvine ósátt við ásakanir Kanadíska söngkonan Avril Lavigne bregst harðlega við ásökunum á hendur sér um að hún skreyti tónsmíðar sínar lagstúfum og textabrotum úr annarra smiðju. Segir söngkonan fullyrðingar þessar alrangar og íhugar að leita réttar síns vegna málsins. 9.7.2007 18:47
Prince rekinn af sviði Tónleikar poppgoðsins Prince í Minneapolice á sunnudaginn urðu heldur endaslepptir því leyfilegum opnunartíma staðarins var lokið. Skipuleggjendur tónleikanna reyndu allt til að fá lagana verði til að gera undantekningu í þetta skipti en allt kom fyrir ekki. 9.7.2007 16:48
Potter aðdáendur skora á Rowling Þúsundir aðdáenda Harry Potter bókanna hafa sett nafn sitt á bænaskrá sem ætlað er að hvetja höfundinn J.K. Rowling til að halda skrifum sínum áfram. Sjöunda bókin um galdrastrákinn sívinsæla er væntanleg. Rowling hefur fullyrt að í þeirri bók taki ævintýrið um Harry skýran endi og að hún verði sú síðasta í flokknum. 9.7.2007 14:10
Paris og Lindsay grafa stríðsöxina Paris Hilton mætti í 21 árs afmæli Lindsay Lohan á Malibu-ströndinni um helgina. Breska blaðið The Sun greindi frá þessu í gær. Þetta þykir tíðindum sæta enda ekki langt síðan glamúrgellurnar voru svarnir óvinir. 9.7.2007 10:15
Fólk feimið við Breiðavík „Stemningin er alltaf góð en það mætti vera meira af Íslendingum,“ segir Keran Stueland Ólason, staðarhaldari í Breiðavík, en hann rekur þar gistiheimili ásamt konu sinni, Birnu Mjöll Atladóttur. Að sögn Kerans finna þau mikinn mun á milli ára hvað heimsóknir Íslendinga varðar og er skýringarnar einna helst að finna í Breiðavíkurmálinu. 9.7.2007 10:00
Treystir ljónum betur en fólki Kevin Richardson er nýjasta stjarnan í dýralífsþáttagerð og hefur verið nefndur næsti Steve Irwin. Hann hefur einstakt lag á ljónum og getur fengið villtustu karldýrin til að leika við sig. 9.7.2007 09:30
Kate hættir hjá undirfatafyrirtæki Kate Moss mun ekki endurnýja samning sinn sem andlit undirfatafyrirtækisins Agent Provocateur en hann rennur út í ágúst. Ofurfyrirsætan hefur setið fyrir á fjölda myndum fyrir fyrirtækið og auk þess myndböndum í anda Lísu í Undralandi. Vefsíða fyrirtækisins hrundi þegar fyrstu myndböndin voru sett á netið vegna fjölda fólks sem reyndi að skoða þau. 9.7.2007 08:00
Þakklát Armani Leikkonan Michelle Pfeiffer segist eiga margt að þakka hönnuðinum Giorgio Armani en hann bauðst til þess að klæða hana upp þegar hún var að leika í myndinni Scarface árið 1983. 9.7.2007 07:45
Fjölskylduerjur fræga fólksins Ástalíf Hollywoodstjarnanna einkennist oftar en ekki af miklum sviptivindum. Það eru þó ekki bara ástarsamböndin sem eru brokkgeng í Hollywood, því oftar en ekki einkennir sama kergja sambönd foreldra og barna. 9.7.2007 06:30
Traveling Wilburys: Collection - fjórar stjörnur Á The Traveling Wilburys Collection eru báðar plötur hljómsveitarinnar, nokkur aukalög og DVD diskur með þeim fimm myndböndum sem hún gerði og heimildarmynd um tilurð og sögu sveitarinnar. Semsagt allt það sem skiptir máli í einum pakka. 9.7.2007 06:15
Birta byggir sumarhús í Hvalfirði Birta Björnsdóttir, fatahönnuður í Júníform og eiginmaður hennar hafa fest kaup á lóð í Hvalfirði og áforma að reisa þar sumarbústað. Birta vakti mikla athygli fyrr á árinu, eftir að Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir klæddist fötum frá henni sem kynnir í Söngvakeppni Sjónvarpsins. Í kjölfarið rauk eftirspurn eftir fötum frá Birtu upp úr öllu valdi og búðin tæmdist á örfáum dögum. 9.7.2007 06:00
Undarleg árátta fólks að þurfa að segja mér hvað hundurinn er ljótur „Mér finnst hún fallega ljót," segir Sigríður Jónsdóttir hundaeigandi um tíkina Foxy sem er tæplega eins árs. „Eiginlega finnst mér hún ótrúlega sæt. Hún er mikill karakter, alltaf glöð og fólk sér mjög fljótlega í gegnum ljótleikann," segir Sigríður og hlær. 8.7.2007 12:30
Logi Ólafs kaupir sér afdrep í sveitinni „Það má segja að það sé gamall draumur minn að verða bóndi. Nú er ég kominn hálfa leið,“ segir Logi Ólafsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari og núverandi íþróttakennari og fótboltaskýrandi. Logi hefur keypt jörðina Arnarhól í Flóahreppi en eftir því sem fram kemur á vef Suðurlands er um að ræða 130 hektara lands auk bæjarstæðis. Uppsett verð voru 90 milljónir króna. 8.7.2007 11:00
Friðurinn úti Friðurinn á griðastað fræga fólksins í bænum St. Michaels í Maryland, virðist vera úti. Þegar varaforsetinn Dick Cheney keypti sér hús bænum fyrir tveimur árum lét hann banna þyrluflug á svæðinu. Þannig ættu papparazzi-ljósmyndarar erfiðar um vik í eltingaleiknum við hann. Húseignir í St. Michaels urðu því afar eftirsóttar hjá stjörnunum í Hollywood. 8.7.2007 10:00
Einfari sem vinnur neðanjarðar Mexíkóski auðkýfingurinn Carlos Slim Helu, sem nýlega skaust fram úr Bill Gates á lista ríkustu manna veraldar, er um margt sérstakur maður. Hann notar ekki tölvu, starfar að mestu í gluggalausu neðanjarðarbyrgi í heimalandi sínu og þykir afar harður í horn að taka. 8.7.2007 09:00
Metfjöldi í Heimaklettsgöngu Um 70 manns eru nú í árlegri göngu á Heimaklett og hafa aldrei verið fleiri í einu. Gangan er hluti af Goslokahátíð sem stendur yfir nú um helgina í Vestmannaeyjum. Þar er þess minnst að 34 ár eru liðin frá eldgosinu í Heimaey. 7.7.2007 15:35
Eva Longoria giftir sig Desperate Housewives stjarnan Eva Longoria giftist Tony Parker, unnusta sínum, í borgaralegri athöfn í París í gær. Parið ætlar svo að gifta sig aftur fljótlega, í það skiptið í kirkju. 7.7.2007 11:37
Landvernd efnir til ljósmyndasamkeppni Landvernd efnir til ljósmyndakeppni undir yfirskriftinni „Augnablik í eldfjallagarði“. Í eldfjallagarðinum, frá Reykjanesi að Þinvallavatni, er að finna fjölbreytilegt myndefni allt frá fjörum, brimi og sjávarklettum upp í hverasvæði, gíga og hrauntraðir í hálendislandslagi. Þemu keppninnar eru hverir, jarðmyndanir og náttúruperlur. Í dómnefnd keppninnar sitja ljósmyndararnir Ellert Grétarsson og Oddgeir Karlsson auk fulltrúa Landverndar sem er Guðrún Tryggvadóttir myndlistakona. Skilafrestur mynda er 10. ágúst. 7.7.2007 11:30
Britney með meðferðarfulltrúanum Sú saga gengur nú fjöllum hærra að Britney Spears sé kominn með nýjann kærasta og sá sé enginn annar en sjálfur meðferðarfulltrúinn hennar, 38 ára gamall fasteignabraskari að nafni John Sundahl. Eins og kunnugt er snéri söngkonan til baka úr áfengismeðferð í mars síðastliðnum og hefur síðan þá unnið markvisst í sínum málum, með aðstoð 12 spora kerfisins og Sundahl. 7.7.2007 11:00
Eiður Smári kom eiginkonunni á óvart Eiður Smári Guðjohnsen gerði sér lítið fyrir og hélt óvænta afmælisveislu fyrir konuna sína, Ragnhildi Sveinsdóttur, síðastliðið fimmtudagskvöld. Ragnhildur verður þrítug á morgun, 8. júlí, en Eiður tók forskot á sæluna og efndi til veislu í garðinum við heimili þeirra í Fossvogi. 7.7.2007 10:30
Johnsen-ættin gerir sér glaðan dag Ættarmót njóta mikilla vinsælda meðal Íslendinga og á hverju sumri flykkjast hundruð landsmanna út á land til að hitta fjarskylda og nærskylda ættingja sína. Í Vestmannaeyjum kemur ein ætt saman um helgina sem er þekkt fyrir mikið stuð. 7.7.2007 10:00
Kate Middleton er framtíðardrottning Bretlands Bretar geta tekið gleði sína á ný því að framtíðarkonungsefni landsins er aftur komið á fast. Ekki er þó ný drottning komin í höllina því Vilhjálmur og Kate Middleton hafa tekið saman á ný. 7.7.2007 09:45
Hermikrákan Victoria Kate Moss er „trendsettari" eins og flestir vita en fæstir vita það þó jafnvel og Victoria Beckham sem er alls ekki þekkt fyrir sjálfstæðar tískuákvarðanir. 7.7.2007 09:00
McCartney og Mills verða nágrannar Sir Paul McCartney og Heather Mills stefna að því að verða nágrannar. Þetta kom fram á erlendum slúðurvefjum í gær. Samkvæmt þeim hyggst Mills kaupa sér hús nærri villu Pauls í East Sussex. 7.7.2007 08:45