Fleiri fréttir

Báðar sjúkar í leðrið

Leikkonan Elizabeth Olsen og athafnakonan Ashlee Simpson eru báðar mjög hrifnar af leðri eins og sést.

Fjallað um Lífstöltið í Íslandi í dag

Lífstöltið er haldið í þriðja sinn í reiðhöll Harðar í Mosfellsbæ á morgun laugardag og er ætlunin að styrkja kvennadeild Landspítalans. Í fyrra söfnuðust 1300 þúsund krónur og er markmiðið í ár að gera ennþá betur. Dorrit Moussaieff forsetafrú mun setja Lífstöltið á morgun klukkan 14:00 og Vilborg Arna Gissurardóttir pólfari mun einnig mæta og spreyta sig í fyrsta sinn á hestbaki.

Vínið seldist upp á fimm klukkutímum

Það dugar ekki Angelinu Jolie og Brad Pitt að ganga vel í kvikmyndabransanum. Þau ákváðu að hella sér út í vínbransann líka sem hefur aldeilis reynst þeim vel.

Laddi mjög persónulegur

Meðfylgjandi myndir voru teknar á æfingu fyrir einleikinn Laddi lengir lífið. Um er að ræða frumsamið efni sem er enn í mótun þannig að enn er verkið að smella saman og verða til.

Arna skemmti sér í Playboy-höllinni

"Ég fór út til Los Angeles í janúar í myndatöku hjá Playboy vegna þess að ég vann nóvemberkeppnina. Svo er ég búin að fá boð um að vinna úti í Cancun í Mexíkó sem Playboy kanína í sumar ef ég vil."

Eva Sólan eignaðist tvær stelpur

Eva Sólan héraðsdómslögmaður sem starfaði lengi vel sem sjónvarpsþula hjá RÚV deildi miklum gleðifréttum með vinum og vandamönnum á Facebooksíðunni sinni í gær.

Hitti Tom Cruise

"Það fyrsta sem ég tók eftir er að hann er miklu myndarlegri í raunveruleikanum en í kvikmyndum. Tom kom okkur skemmtilega á óvart að því leiti að það vottaði ekki fyrir því sem fólk kallar stjörnustæla Hann virkaði meira á mig eins og pabbi sem var að eiga góðan dag með syni sínum, Connor. Nokkrum dögum seinna hittum við líka Isabellu dóttir hans," segir Sólveig.

Meistarakokkurinn stígur sín fyrstu skref

Gunnar Helgi Guðjónsson bar sigur úr býtum í þáttunum MasterChef Ísland sem sýndir voru á Stöð 2 og fékk nafnbótina Meistarakokkur Íslands. Í gær var sérstakur MasterChef-matseðill sem Gunnar Helgi hannaði afhjúpaður á veitingastaðnum Nauthóli.

Hvetur fólk til að mæta í HR

Þórhildur Ólafsdóttir, íþróttafræðinemi á öðru ári gaf sér tíma til að segja okkur frá Háskóladeginum í HR á morgun, laugardag.

Myndskeið af örmagna Justin Bieber

Hin spræki söngvari Justin Bieber var ekki með sjálfum sér þegar hann hélt tónleika í 02 tónleikahöllinni í London í gær. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi og greint hefur verið frá hér á Lífinu örmagnaðist Bieber og fékk svo aðsvif á tónleikunum. Bieber tókst þó að klára tónleikana en var síðan fluttur á sjúkrahús þar sem læknar skoðuðu hann.

Mávurinn skilinn eftir heima

„Ég hugsa nú að mávurinn góði verði bara eftir heima. Ég býst við svo miklu stuði þarna og hann er með svo beitta vængi að það gæti endað illa,“ segir söngkonan Hera Björk Þórhallsdóttir.

Draugar og djöflar draga til sín bíógesti

Yfirnáttúrulegar hrollvekjur þar sem andsetið fólk, draugar og djöflar hræða líftóruna úr bíógestum njóta síaukinna vinsælda í Hollywood. Margar slíkar myndir eru væntanlegar í bíó vestanhafs á næstu mánuðum og má þar nefna The Last Exorcism Part II, The Conjuring og endurgerðin Evil Dead.

Brúðkaup Le-Bron ákveðið

Körfuboltastjarnan LeBron James, leikmaður Miami Heat í NBA-deildinni, og unnusta hans, Savannah Brinson, hafa ákveðið stað og stund fyrir brúðkaupið sitt og sent út boðskort þar að lútandi.

Vill ekki heimsókn frá Kristen

Breski leikarinn Robert Pattinson vill ekki að unnustan og fyrrverandi meðleikkona í Twilight-myndunum, Kristen Stewart, heimsæki hann til Ástralíu þar sem Pattinson dvelur nú við tökur á kvikmyndinni The Rover.

Verður ekkert brúðkaup?

Söng- og leikkonan Miley Cyrus úr Hannah Montana-þáttunum bar á dögunum til baka þann orðróm að hún og unnusti hennar, leikarinn Liam Hemsworth úr Hungurleikunum, hefðu skilið að skiptum.

Á Kate von á stúlkubarni?

Ummæli Kate Middleton, hertogaynju af Cambridge, sem hún viðhafði á samkomu í Fiskisögusafni Grimsby hafa vakið upp gríðarlegar vangaveltur um kyn væntanlegs afkomanda hennar og Williams Bretaprins.

Bowie neitar Morrissey

David Bowie hefur bannað Morrissey að nota gamla ljósmynd af tónlistarmönnunum tveimur saman framan á nýja smáskífu hins síðarnefnda.

RFF haldið með öðru sniði í ár

„Við vildum breyta til og leggja meiri áherslu á viðskiptahliðina, þess vegna kusum við að hafa sýningarnar fyrr um daginn,“ segir Þórey Eva Einarsdóttir, framkvæmdastjóri RFF. Hátíðin fer fram með öðru sniði í ár en fyrri ár og fara allar tískusýningarnar fram á laugardeginum.

Stórleikari áður en hann varð frægur

Leikarinn Eddie Redmayne hefur heillað marga upp úr skónum með frammistöðu sinni í Les Miserables og telja margir hann einn efnilegasta leikara í Hollywood í dag.

Ég trúi á ástina

Hin tvítuga Selena Gomez hefur verið mikið í sviðsljósinu undanfarin ár en stutt er síðan hún hætti með einum heitasta tónlistarmanni samtímans, Justin Bieber. Hún talar um lífið, ástina og ferilinn í nýjasta hefti Harper's Bazaar.

Missti 100 kg

Guðmundur Fannar Sigurbjörnsson, 30 ára, sjómaður hefur lést um 100 kg. Lífið fékk að heyra sögu Fannars sem er mögnuð vægast sagt.

Þvengmjó módel vart komin af barnsaldri - hvað er það?

"En nánast undartekningarlaust eru módelin vart komin af barnsaldri, með fullkomna húð og ótrúlega fallegar það er að segja áður en farðinn er settur á. Og það eru sett hin og þessi törfameðul sem eiga að gera hitt og þetta en maður sér engan mun."

Rihanna sýnir bossann

Aðdáendur Rihönnu vita að hún er ekki hrædd við að taka myndir af sér í alls kyns aðstæðum og birta þær á netinu. Hún gerði einmitt það í vikunni en myndin var aðeins djarfari en vanalega.

Svona var aðkoman - sjáðu myndirnar

Svona leit bílskúrinn út hjá ónefndri konu í Grafarholti í gærdag þegar hún fékk símtal frá nágrannanum. Sjón er sögu ríkari ef myndirnar eru skoðaðar. Bílskúrshurðin virðist hafa opnast í rokinu.

Nítján kílóum léttari

Raunveruleikastjarnan Nicole Polizzi, sem í daglegu tali er kölluð Snooki, prýðir forsíðu tímaritsins Us Weekly sem kemur út á föstudaginn. Hún deilir megrunarleyndarmálum sínum með tímaritinu.

Kate Moss gekk fyrir Louis Vuitton

Ofurfyrirsætan Kate Moss snéri aftur á sýningarpallana á sýningu Louis Vuitton í gær, en hún hefur ekki tekið þátt í tískuvikunni síðan hún lokaði sýningu sama hönnuðar árið 2011.

Tískuelítan í útgáfupartýi

Tískudívan og fyrrverandi Vogue-ritstýran Carine Roitfeld leggur það í vana sinn að halda stórglæsileg partý á meðan tískuvikan í París stendur yfir. Í þetta sinn fagnaði hún...

Jessica Alba flott í tauinu

Leikkonan og tískuunnandinn Jessica Alba hefur verið tíður gestur á tískuvikunum síðustu ár. Í þetta sinn var hún þó áberandi fallega klædd og vakti athygli hvar sem hún fór.

Ógeðsskot Lindu Pé

"Já ekkert mál. Það gefur mér orku og gleði," segir Linda Pétursdóttir eigandi Baðhússins sem er stödd á Ítalíu þegar við spurðum hana hvort hún væri til í að segja okkur frá morgunmatnum sem hún myndaði og setti á Facebooksíðuna sína í morgun með skilaboðunum: "Ást og orka fyrir kroppinn! Raw morgunmatur: "Ógeðsskot A La Solla", Chiagrautur og grænt te. Og þá er ég tilbúin í annasaman dag."

Heldur húðinni mattri og fallegri

"Við getum talað um hvað gott er að taka inn en mig langar að nefna hvað ég tek ekki inn - því að ég að ég borða ekki sælgæti. Það fer illa í meltingarfærin og tel ég það vera ein leið meðal annarra til að halda líkamanum hreinum. Ef sykurþörfin kallar er alveg eins gott að grípa í ávöxt, þú ert að fá nátturulegan sykur, trefjar og svengdar- og þorstaþörfin minnkar. Ég sker oft niður nokkrar gerðir af ferskum ávextum í skál og borða í staðin fyrir snakk," segir Auðbjörg.

Rómantískt og ævintýralegt yfirbragð

Lína Valentino sem sýnd var á tískuvikunni í París á dögunum var hreint út sagt dásamleg. Rómantíkin sveif yfir vötnunum, en innblásturinn var sóttur í ævintýri og málverk.

Opnar sölusíðu fyrir íslenskt handverk

Dögg Hugosdóttir – Callahan opnaði vefinn ljonshjarta.com fyrir skömmu. Vefurinn er í anda Etsy.com og er ætlaður sem vettvangur þar sem fólk getur komið íslensku handverki og listum á framfæri á einfaldan hátt.

Lagið fjallar ekki um lýsi

María Ólafsdóttir syngur lagið Lýsi í myrkri ásamt Kristmundi Axel, en myndband við lagið hefur fengið yfir tólfþúsund áhorf á Youtube á aðeins þremur dögum. Lagið er úr smiðju upptökuteymisins Stop Wait Go sem er skipað Sæþóri Kristjánssyni og bræðrunum Pálma Ragnari og Ásgeiri Orra Ásgeirssonum.

Sjáðu framlag Bonnie Tyler í Eurovision

Bonnie Tyler hefur verið valin til þess að flytja framlag Breta í Eurovision í vor. Söngkonan hefur verið ein sú vinsælasta í heimi allt frá áttunda áratug síðustu aldar. Vonir standa til að henni muni ganga betur en Engelbert Humperdinck í fyrra, en hann var í næstsíðasta sæti. Eitt þekktasta lag Bonnie Tyler er líklegast Total Eclipse of a Heart

Lögsóttur vegna Beyoncé-leka

Útgáfurisinn Somy hefur lögsótt sænskan mann fyrir að dreifa plötu söngkonunnar Beyoncé á netinu áður en hún var gefin út opinberlega. Sony fer fram á rúmar 29 milljónir króna í skaðabætur. Frá þessu er greint á vefsíðu tónlistartímaritsins NME.

Timberlake mættur aftur eftir sjö ára hlé

Þriðja sólóplata popparans Justins Timberlake, The 20/20 Experience, kemur út síðar í mánuðinum, heilum sjö árum eftir að FutureSex/LoveSounds leit dagsins ljós.

Sjá næstu 50 fréttir