Lífið

Vínið seldist upp á fimm klukkutímum

Það dugar ekki Angelinu Jolie og Brad Pitt að ganga vel í kvikmyndabransanum. Þau ákváðu að hella sér út í vínbransann líka sem hefur aldeilis reynst þeim vel.

Miraval Rose-vínið þeirra er framleitt í Chateau Miraval í Suður-Frakklandi á eign sem tilheyrir parinu. Vínið framleiða þau í samstarfi við hinn virta Marc Perrin.

Angelina og Brad með barnaskarann.
Fyrstu sex þúsund flöskurnar voru settar á markaðinn á netinu á fimmtudaginn síðasta og seldust upp á fimm klukkutímum. Ágætis árangur það!

Chateau Miraval.
Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×