Fleiri fréttir

Gefa út frumsamið jólalag

"Tónlistin er ástríða okkar beggja og við höfum sungið saman frá því að við vorum litlar,“ segir Greta Mjöll Samúelsdóttir sem myndar dúettinn SamSam ásamt systur sinni Hólmfríði.

Paris gerist leikkona

Paris, þrettán ára dóttir popparans sáluga Michaels Jackson, hefur fengið hlutverk í sinni fyrstu kvikmynd. Hún heitir Lundon"s Bridge and the Three Keys og er ævintýramynd þar sem bæði raunverulegar og teiknaðar persónur koma við sögu.

Ris og fall Kim Kardashian

Ein af manneskjum ársins í heimi ríka og fræga fólksins er án nokkurs vafa Kim Kardashian. Henni tókst að viðhalda umfjöllun um sjálfa sig með bæði hjónabandi og skilnaði.

Konur í nýsköpun koma saman

Desember hittingur Korku-kvenna fór fram á myndlistarsýningu Muses.is í gömlu Sanitas verksmiðjunni á Köllunarklettsvegi 4. Þar fræddust konurnar um markaðssetningu á netinu hjá Maríönnu Friðjónsdóttur og Stjána Gunnars hjá Kosmos og Kaos...

James Taylor til Íslands

James Taylor, einhver þekktasti söngvari og lagahöfundur tuttugustu aldarinnar, stígur á svið í Hörpunni 18. maí. Taylor er margfaldur Grammy-verðlaunahafi og eitt vinsælasta söngvaskáld sem komið hefur fram. Hann varð frægur á áttunda áratugnum með lögum eins og You"ve Got A Friend og Fire and Rain. Taylor var vígður inn í Frægðarhöll rokksins árið 2000 og hafa plötur hans selst í tugum milljóna eintaka. Miðasala á tónleikana hefst á Harpa.is og í síma 528-5050 mánudaginn 19. desember.

Hef aldrei viljað sigra heiminn

Í hugum margra á Norðurlöndunum eru jólin ekki komin fyrr en Sissel Kyrkjebø er komin á fóninn. Norska söngkonan er komin til landsins, syngur á tónleikum Frostrósa um helgina í Hörpu og segist sjálf vera mikið jólabarn.

Federline í megrun

Fyrrverandi eiginmaður söngkonunnar Britney Spears, Kevin Federline, er þátttakandi í ástralska megrunarþættinum Excess Baggage. Hann féll í yfirlið í beinni útsendingu á dögunum og var fluttur á spítala.

Enn og aftur troðfullt hjá Mið-Íslandi

Jólasýning Mið-Íslands með finnska uppistandaranum André Wickström fór fram á fimmtudagskvöldið. Fjöldi fólks sótti sýninguna og að venju var hlegið dátt að bröndurum piltanna. Wickström fór einnig á kostum með túlkun sinni á skandinavískum "dansböndum“ og gerði jafnframt góðlátlegt grín að frændum okkar Dönum.

Fékk innblástur frá Kurt Cobain

Ein forvitnilegasta nýja stjarna ársins 2011 er bandaríska söngkonan Elizabeth Grant, sem kallar sig Lana Del Rey. Sú sló í gegn með laginu Video Games fyrr á þessu ári, en lagið situr enn á vinsældalista Rásar 2.

Kit Harington djammaði á Hressó

Leikarinn Kit Harington átti frí frá tökum á sjónvarpsþáttunum Game of Thrones síðastliðið fimmtudagskvöld og sótti tónleika með hljómsveitinni Mammút á Hressó. Harington þótti bæði kurteis og geðþekkur og lét lítið fyrir sér fara.

Borga fyrir jarðarförina

Mick Jagger og Keith Richards úr The Rolling Stones ætla að borga allan kostnaðinn vegna jarðarfarar blúsgoðsagnarinnar Hubert Sumlin. Hann lést á dögunum, áttræður að aldri, eftir að hafa fengið hjartaáfall.

American Psycho endurgerð?

Þrátt fyrir að aðeins ellefu ár séu síðan kvikmyndin American Psycho var frumsýnd virðist vera kominn tími á uppfærslu. Allavega samkvæmt kvikmyndatímaritinu Variety, en þar kemur fram að framleiðslufyrirtækið Lionsgate hafi ráðið handritshöfundinn Noble Jones til að skrifa handrit að endurgerð American Psycho. Christian Bale fór með aðalhlutverkið í upprunalegu myndinni og erfitt er að sjá hvaða leikari gæti tekið hlutverkið að sér eftir stórkostlega frammistöðu hans.

Veldu 20 bestu jólalög allra tíma

Hvaða jólalög heldur þú upp á? Veldu 20 bestu lögin á visir.is/jolalistinn og þau verða spiluð í Jólalistanum á Stöð 2 17. desember.

Ragnhildur Steinunn förðuð fyrir jólin

Eins og sjá má á myndunum var góð stemning í Make Up Store þegar nýja Pure litalínan var kynnt. Eigandi Make Up Store, Margrét R. Jónasar, farðaði fjölmiðlakonuna Ragnhildi Steinunni Jónsdóttur með nýju litunum...

Gefið Elite-sigurvegaranum mat

Sænska fyrirsætan Julia Schneider, 15 ára, sigraði eina virtustu fyrirsætukeppni heims, Elite Model Look, sem fram fór í Shanghai 6. desember síðastliðinn...

Andrés Úlfur horfir í vatn

Horft í vatn er ljósmyndasýning sem hefur að geyma 10 vatnamyndir eftir Andrés Úlf, þar sem hver mynd endurspeglar þann lit í því litrófi sem sýningin spannar.

Vinafá Angelina Jolie

Ég á mjög fáar vinkonur og ég er alls ekki félagslynd. Ég geri þess vegna ekki mikið með þeim, segir Angelina Jolie...

Systur láta gott af sér leiða

Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar íslenska fatamerkið Shadow Creatures kynnti nýja fatalínu í Kiosk, Laugavegi 65, síðustu helgi...

Ældi Lisbeth Salander úr líkamanum

Leikkonan Noomi Rapace, 31 árs, sem lék Lisbeth Salander, tölvuhakkarann í þríleik Stiegs Larsson, pósar í tímaritinu Blackbook eins og sjá má í meðfylgjandi myndaalbúmi...

Jón Jónsson siglir fram úr litla bróður í plötusölu

"Það er alltaf samkeppni á milli þeirra. Þeir eru báðir skapmenn og metnaðarfullir strákar. Báðir myndu að sjálfsögðu vilja selja meira en hinn,“ segir Ásthildur Ragnarsdóttir, móðir popparanna Jóns Jónssonar og Friðriks Dórs.

Sex ára höfundur fagnar útgáfu

„Það er mikill spenningur. Þetta verður mjög gaman,“ segir Auðunn Sólberg Valsson, faðir Ólivers Tuma, yngsta rithöfundar Íslandssögunnar eins og hann hefur verið kallaður. Útgáfuhóf verður haldið í Eymundsson í Austurstræti á laugardaginn í tilefni af útkomu bókarinnar Óliver Tumi, segðu mér sögu. Þar segir hinn sex ára höfundur sögur og ævintýri fyrir börn á öllum aldri. Kátt verður á hjalla í hófinu því jólasveinninn kíkir í

Draugagangur í sálinni

Kýr Stalíns er sláandi saga sem hristir upp í lesendum og veitir nýja sýn, en er ofurlítið langdregin á köflum.

Giftist í fjórða sinn

Söngkonan Sinéad O"Connor giftist í gær náunga að nafni Barry Herridge. Þetta er fjórða hjónaband hennar. Hún hefur áður verið gift upptökustjóranum John Reynolds, blaðamanninum Nicholas Sommerlad og Steve Cooney, sem hún skildi við fyrr á þessu ári.

Fyrstu skref Of Monsters and Men í Bandaríkjunum

Of Monsters and Men er ein af hljómsveitum ársins. Á næstunni kemur út stuttskífa með hljómsveitinni á iTunes, en upptökustjóri Arcade Fire tók lögin í gegn fyrir útgáfuna. „Það er allt yndislegt,“ segir Ragnar Þórhallsson, söngvari og gítarleikari Of Monsters and Men. Hljómsveitin var stödd í Fljótshlíð þegar Fréttablaðið náði í Ragnar, en þar hvíla þau sig ásamt því að vinna að nýjum lögum.

Vill leika í Top Gun 2

Tom Cruise vonast til að leika í framhaldi kvikmyndarinnar vinsælu Top Gun frá árinu 1986. Í október var tilkynnt að vinnan við myndina væri hafin og orðrómur var uppi um að Cruise yrði í aukahlutverki. „Vonandi finnum við einhverja leið til að gera myndina. Ef við finnum rétta handritið sem við erum öll sátt við þá erum við öll tilbúin til að gera mynd sem yrði í svipuðum dúr og sú fyrri. Við erum að vinna í þessu,“ sagði Cruise við MTV.com. Cruise sést næst á hvíta tjaldinu í hasarmyndinni Misssion: Impossible – Ghost Protocol.

Íslenski listinn í loftið

„Mér finnst þetta rosalega spennandi,“ segir Brynjar Már Valdimarsson, dagskrárstjóri FM 957. Íslenski listinn, sem hefur lengi verið í loftinu á FM 957 og núna að undanförnu á Nova TV, hefur göngu sína á Stöð 2 á laugardaginn. „Þetta er líka skemmtilegur tími sem hann er á dagskrá, eða um hálfsex. Þetta er víst mjög fínn tími fyrir svona prógramm,“ segir Brynjar Már, sem stjórnar þættinum ásamt Ernu Hrönn Ólafsdóttur.

Setja á markað handgerða fylgihluti með karakter

Mariko Margrét Ragnarsdóttir og Ólöf María Ólafsdóttir, betur þekkt sem Marý, eru hönnuðirnir á bak við merkið MARYMARIKO. Þær hanna fylgihluti úr endurnýttum efniviði. "Við höfum alltaf haft gaman af því að hanna og skapa með höndunum,“ segja Mariko Margrét Ragnarsdóttir sem hefur stofnað merkið MARYMARIKO ásamt vöruhönnuðinum Ólöfu Maríu Ólafsdóttur, betur þekkt sem Marý.

Óhuggulegasta mynd ársins

We Need to Talk About Kevin er óhuggulegasta mynd ársins. Drungalegt drama um viðkvæmt málefni. Hér er vandað til verka og útkoman er frábær.

Fyrirsæta þykir allt of grönn

Myndaþáttur ítalska Vogue með fyrirsætunni Karlie Kloss hefur vakið umtal vegna þess hve grönn fyrirsætan virðist á sumum myndunum. Nú hefur Vogue.it fjarlægt myndina sem fékk hvað mesta gagnrýni af vefsíðu sinni þar sem átröskunarsjúklingar hafa notað hana sem „thinspiration“, eða innblástur til þess að grenna sig enn frekar.

Flytur frumsamið jólalag fyrir nútímafjölskylduna

„Jú, ég verð með í dagskránni,“ segir Halldór Gylfason leikari, sem mun frumflytja glænýtt frumsamið jólalag í kvöld í tilefni Dags rauða nefsins. Margir kannast eflaust við spurninguna sem Halldór veltir upp í laginu, sem er í óhefðbundnari kantinu og ber heitið Nútímafjölskyldujól.

Vilja gera dansinn aðgengilegri fyrir alla

Danshópurinn Area of Stylez samanstendur af strákum frá Taílandi, Nepal, Víetnam, Tíbet og Bandaríkjunum, en þeir vöktu athygli fyrir vasklega framgöngu í sjónvarpsþættinum Dans dans dans. Í yfir eitt ár hafa strákaranir æft saman í litlu æfingahúsnæði í Engihjalla.

Bieber sendir sms í sólbaði

Justin Bieber, 17 ára, sendi sms á milli þess sem hann sleikti sólina í Los Cabos í Mexíkó með kærustunni sinni Selenu Gomez, 19 ára, eins og sjá má á myndunum...

Harold og Kumar skjóta jólasveininn

A Very Harold and Kumar 3D Christmas, teiknimyndin Puss in Boots og The Rum Diary og eru þær kvikmyndir sem verða frumsýndar um helgina í kvikmyndahúsum borgarinnar.

Þreytt á að þykjast um skilnaðinn

Hjónin Will Smith og Jada Pinkett Smith eru þreytt á að þykjast og eru á barmi skilnaðar ef marka má slúðurblaðið Star Magazine. Í haust var fréttaflutningur mikill um framhjáhald leikkonunnar með söngvaranum Marc Anthony en Smith-hjónin voru fljót að blása á sögusagnir um skilnað.

Svalasta rokkdúóið í bransanum

The Black Keys er orðið tíu ára gamalt band og El Camino er sjöunda plata sveitarinnar. Hraðsoðin og melódísk blúsrokkplata sem rúllar örugglega í gegn.

Með minnimáttarkennd vegna Ryan Gosling

Bradley Cooper hefur viðurkennt að fegurð Ryans Gosling hafi fengið hann til að efast um eigið útlit. Leikarinn var nýverið kjörinn kynþokkafyllsti maðurinn 2011 af tímaritinu People, við dræmar undirtektir aðdáenda Goslings.

Undirbúningur fyrir dag rauða nefsins

Allir helstu grínarar landsins taka þátt í degi rauða nefsins sem fram fer á morgun 9. desember en þá verður árlegur skemmti- og söfnunarþáttur sýndur á Stöð 2 fyrir UNICEF...

Sumir framkvæma eins og þessi kona

Ingunn Jónsdóttir hönnuður, sem á og rekur framleiðslufyrirtækið Noonfactory ásamt eiginmanni sínum, sýnir í meðfylgjandi myndskeiði fallega gjöf eftir hana sem hún nefnir kerti&spil...

Góðar vinkonur gera góðverk

Mikill drifkraftur er í hönnuðunum Vilborgu Aldísi Ragnarsdóttur og Hafdísi Heiðarsdóttur sem eiga og reka Arca stúdíó í Grímsbæ...

Sér ekki eftir að hafa gifst Ryan Reynolds

Leikkonan hæfileikaríka Scarlett Johansson segist alls ekki sjá eftir því að hafa gifst Ryan Reynolds, þrátt fyrir að hjónabandið hafi bara enst í tvö ár. Hún segir að ákvörðunin um að giftast Reynolds sé mögulega sú besta sem hún hafi tekið um ævina.

Góðkunningjar Óskars líklegir til afreka á næsta ári

Það styttist í að tilkynnt verði hvaða myndir verða tilnefndar til Óskarsverðlauna. Kvikmyndaspekúlantar eru að sjálfsögðu byrjaðir að velta vöngum yfir því hvaða nöfn verða birt á flatskjánum í Hollywood og flestir eru á sama máli; það verða kunnugleg andlit meðal hinna útvöldu.

Risar á kvikmyndamarkaði slást um bók Steinars Braga

„Ég gæti ekki verið hamingjusamari," segir rithöfundurinn Steinar Bragi. Nýjasta bók hans, Hálendið, hefur fengið afbragðsgóða dóma og prýðilegar viðtökur lesenda. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins hafa sjö aðilar lýst yfir áhuga á að kaupa kvikmyndaréttinn að bókinni. Meðal þeirra eru ZikZak, Pegasus, Sigurjón Kjartansson, Sæmundur Norðfjörð og Sigurjón Sighvatsson. Nafn Davids Lynch hefur einnig verið nefnt á nafn, en Sigurjón og Lynch eru miklir mátar. Hólmfríður Matthíasdóttir hjá

Sjá næstu 50 fréttir