Jón Jónsson siglir fram úr litla bróður í plötusölu 9. desember 2011 11:00 Bræðurnir Jón Jónsson og Friðrik Dór hafa selt plötur sínar í rúmlega sex þúsund eintökum. fréttablaðið/vilhelm „
Það er alltaf samkeppni á milli þeirra. Þeir eru báðir skapmenn og metnaðarfullir strákar. Báðir myndu að sjálfsögðu vilja selja meira en hinn," segir Ásthildur Ragnarsdóttir, móðir popparanna Jóns Jónssonar og Friðriks Dórs. Jón Jónsson hefur selt fyrstu plötu sína, Wait for Fate sem kom út í sumar, í um 3.500 eintökum. Þar með hefur hann tekið fram úr litla bróður sínum Friðriki Dór í sölu. Sá síðarnefndi gaf seint á síðasta ári út sína fyrstu plötu, Allt sem þú átt. Hún seldist í um 2.000 eintökum í fyrra en er núna komin samanlagt í um 2.600 eintök, að sögn útgefandans Senu. Friðrik Dór hefur þó verið duglegri en bróðir hans við að selja hringitóna og lög á netinu og fá áhorf á Youtube, enda tveir ólíkir markhópar sem hlusta á tónlistina þeirra. Jón Jónsson syngur popplög sem ná til yngri jafnt sem eldri aldurshópa á meðan Friðrik Dór blandar saman poppi og R&B-tónlist, sem yngri hlustendur hrífast meira af. Ásthildur móðir þeirra segir það hafa komið sér og föður þeirra mest á óvart hve Friðrik Dór hefur náð langt. „Jón var búinn að vera að troða upp og syngja í langan tíma. Hann var tólf ára þegar hann kom fyrst fram á Stöð 2 í Íslandi í dag og var oft að syngja á jólaskemmtunum fyrir Hafnarfjarðarbæ. En þetta kom okkur verulega á óvart með Friðrik." Bræðurnir halda sína fyrstu „alvöru" tónleika saman í Bæjarbíói í Hafnarfirði 16. desember og að sjálfsögðu verður Ásthildur á staðnum. „Jú, jú, ég er áhangandi númer eitt." Jón og Friðrik Dór eru báðir á mála hjá Senu. Aðspurður segir útgáfustjórinn Eiður Arnarsson þá hafa staðið vel undir væntingum. „Í sjálfu sér vorum við nokkuð sáttir við sölu Friðriks í fyrra. Um er að ræða plötu fyrir kaupendahóp sem hefur ekki verið mjög duglegur við að kaupa geisladiska," segir hann. „Með Jón voru efri mörk væntinganna um þrjú þúsund. Hann er að gera enn betur en við áttum von á." Eiður segir Jón sjarmerandi náunga sem hafi tekist að hrífa fólk með sér. „Honum hefur tekist það sem er stundum erfitt fyrir listamenn sem syngja á ensku og hljóma svolítið útlenskir. Honum hefur tekist að búa til tengingu á milli þeirra laga sem þú heyrir í útvarpinu og íslenska listamannsins. Hann týnist ekki eins og sumir hafa gert með svona efni." freyr@frettabladid.is
Mest lesið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Mikil gleði á glæsilegri frumsýningu Disney Vaiana í Sambíóunum Egilshöll Lífið samstarf Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Sjá meira