Fyrstu skref Of Monsters and Men í Bandaríkjunum 9. desember 2011 10:00 Of Monsters and Men kom fram í Kanada á dögunum við frábærar viðtökur.
Of Monsters and Men er ein af hljómsveitum ársins. Á næstunni kemur út stuttskífa með hljómsveitinni á iTunes, en upptökustjóri Arcade Fire tók lögin í gegn fyrir útgáfuna. „Það er allt yndislegt,“ segir Ragnar Þórhallsson, söngvari og gítarleikari Of Monsters and Men. Hljómsveitin var stödd í Fljótshlíð þegar Fréttablaðið náði í Ragnar, en þar hvíla þau sig ásamt því að vinna að nýjum lögum. Árið 2011 hefur verið gott fyrir Of Monsters and Men. Hljómsveitin sendi frá sér fyrstu plötuna sína, My Head Is an Animal, og sló í gegn með laginu Little Talks. Þá gerði hljómsveitin samning við Universal-útgáfurisann, en fyrirhugað er að gefa út My Head Is an Animal í Bandaríkjunum í apríl á næsta ári, skömmu eftir að hljómsveitin kemur fram á South by Southwest-hátíðinni í Texas. Loks er Of Monsters and Men í 12. sæti sæti á lista bandaríska tónlistartímaritsins Paste yfir bestu nýju hljómsveitir ársins. Stuttskífa með lögunum Little Talks, Six Weeks, Love Love Love og From Finner kemur út á iTunes í desember. Upptökustjórinn Craig Silvey endurhljóðblandaði lögin, en hann hljóðblandaði meðal annars plöturnar The Suburbs með Arcade Fire, Suck It and See með Arctic Monkeys og Third með Portishead. Hljómsveitin vinnur nú einnig að því að slípa breiðskífuna sína fyrir útgáfu á næsta ári. „Platan verður eitthvað aðeins breytt,“ segir Ragnar. „Þetta er gott tækifæri fyrir okkur að gera hana betri. Slípa til og breyta því sem við vildum gera öðruvísi en gerðum ekki. Við erum mestmegnis að gera þetta sjálf, en við fáum einhverja þarna úti til að hjálpa okkur.“ Of Monsters and Men spilaði á þrennum tónleikum í Kanada á dögunum, tvennum í Toronto og einum í Montréal. Viðtökurnar voru góðar – raunar svo góðar að fólk söng með þekktari lögum hljómsveitarinnar. „Það var allavega mikið tekið undir í Little Talks og fleiri lögum, það voru nokkrir sem sungu mikið með. Það var mjög sérstakt,“ segir Ragnar. „Það var mjög súrrealísk upplifun. Það var fólk fremst sem var búið að hlusta á okkur áður. Það var algjör snilld.“ atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Mikil gleði á glæsilegri frumsýningu Disney Vaiana í Sambíóunum Egilshöll Lífið samstarf Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Sjá meira