Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Victoria tekur mataræðið föstum tökum Victoria Beckham, 37 ára, sem eignaðist sitt fjórða barn, stúlkuna Harper Seven, 10. júlí síðastliðinn er staðráðin í að komast aftur í stærð núll. Sagan segir að hún ætli sér að vera komin í barnastærð fyrir tískuvikuna í New York sem stendur yfir 8.-15. september. Victoria borðar sex máltíðir á dag sem innihalda reyktan lax, chilli-rækjur, túnfisk, sushi og grænmeti. Þá drekkur hún endalaust af vatni samhliða 10 mínútna pilates æfingum á hverjum degi. Eina 'snakkið' sem Victoria leyfir sér eru ber og möndlur. 17.8.2011 11:15
Vekur athygli vestanhafs „Það er búið að ganga vel og ég er að finna mig í faginu,“ segir Ása Helga Hjörleifsdóttir, meistaranemi í kvikmyndagerð við Columbia-háskólann í New York. Ása Helga er stödd hér á landi til að taka upp útskriftarverkefnið sitt við skólann, en hún hefur vakið eftirtekt fyrir góða handritasmíð. Reyndar svo mikla að Ása Helga er komin með umboðsmann, en það þykir vel af sér vikið og sérstaklega þar sem hún á ennþá eitt ár eftir í skólanum. 17.8.2011 11:00
Frábær lagasmiður sem á nóg inni Á heildina litið er Winter Sun frábær plata. Snorri er ennþá að vaxa sem lagasmiður og útsetningar, söngur og annar flutningur styrkja lögin á plötunni enn frekar. Ein af bestu plötum ársins til þessa. 17.8.2011 10:00
Skrifar handrit að teiknimyndaseríu Sigurjón Kjartansson og Hugleikur Dagsson eru að þróa nýja teiknimyndaseríu fyrir sjónvarp. Þeir unnu síðast saman að gerð gamanþáttaraðarinnar Hlemmavideó en það er framleiðslufyrirtæki Sigurjóns, Ídea Filmcompany, sem hefur þáttaröðina á sinni könnu. 17.8.2011 10:00
Fyrsta sýnishorn úr heimildarmynd um níumenningana Ge9n er kvikmynd um níumenningana svokölluðu, sem voru þátttakendur í pólitískri aðgerð á pöllum Alþingis 8. desember 2008. 17.8.2011 09:45
Þú lítur ekki út fyrir að vera 53 ára Madonna mætti á Heathrow flugvöllinn í Lundúnum á 53 ára afmælisdeginum sínum með nýja elskhuganum, 24 ára franska dansaranum Brahim Zaibat, og fjórum börnum sínum, Lourdes, Rocco, David, og Mercy. Eins og sjá má í myndasafni lítur söngkonan ekki út fyrir að vera rúmlega fimmtug. 17.8.2011 09:04
Semja tónlist við Djúpið eftir Baltasar Tónskáldin Ben Frost og Daníel Bjarnason hafa verið ráðin til að semja tónlistina við kvikmynd Baltasars Kormáks, Djúpið. Myndin er innblásin af einstöku afreki Guðlaugs Friðþórssonar sem synti í land eftir að Hellisey VE sökk sex kílómetra undan Vestmannaeyjum árið 1984. Fjórir vinir Guðlaugs fórust í skipsskaðanum en sagan um manninn sem sigraðist á hafinu hefur fylgt þjóðinni síðan. Ólafur Darri Ólafsson mun leika Guðlaug, en myndin verður frumsýnd síðar á þessu ári. 17.8.2011 09:00
Hilary Duff á von á barni Leikkonan úr sjónvarpsþáttunum Gossip Girl og barnastjarnan Hilary Duff er ólétt af sínu fyrsta barni. Duff, sem er 23 ára gömul, staðfesti fregnirnar á heimasíðu sinni á sama degi og hún átti eins árs brúðkaupsafmæli. Duff er gift hokkíleikmanninum Mike Comrie. 17.8.2011 08:00
Ellý og Q4U rokka á Menningarnótt Menningarnótt verður haldin í Reykjavík næstkomandi laugardag. Fjölmargir eru því að leggja lokahönd á dagskránna þar sem boðið verður upp á alls kyns skemmtun og tónleika. Skemmtistaðurinn Dillon við Laugaveg býður upp á tónleikadagskrá sjöunda árið í röð sem byrjar klukkan 15 og endar rétt fyrir flugeldasýninguna klukkan ellefu. 16.8.2011 22:30
Erpur heldur keppni - Önnur leiðin til Færeyja í vinning Rapparinn Erpur Eyvindarson, BlazRoca, hefur blásið til keppni í samvinnu við Prikið og fleiri aðila þar sem hann hvetur tónlistarmenn til að endurhljóðblanda lög sín á sem flottastan máta. Með honum í dómnefnd eru President Bongo úr Gusgus og Óttarr Proppé borgarfulltrúi. 16.8.2011 22:00
Nilli fær að kenna á sviknum loforðum Þórunn Antonía og Björn Bragi virðast ætla að svíkja öll loforð sem þau gefa og greyið Nilli fær að gjalda fyrir það í Týndu kynslóðinni. Þátturinn verður í opinni dagskrá á Stöð 2 á föstudagskvöldum og hefur göngu sína 19. ágúst næstkomandi. 16.8.2011 21:06
Prýðileg með poppinu Vestrinn Cowboys and Aliens gjörsigrar vísindaskáldsöguna Cowboys and Aliens. Hræran fer þó ágætlega niður með poppinu. 16.8.2011 20:00
Tökulið Game of Thrones væntanlegt hingað í vetur Tökur á einum umtalaðasta þætti Bandaríkjanna um þessar mundir, Game of Thrones, munu fara fram að hluta til hér á Íslandi í lok þessa árs. Þetta kom fram í máli eins aðalleikara þáttanna, Kit Harrington. Harrington sat fyrir svörum á myndasöguhátíðinni ComicCon í lok júlí og upplýsti þar að hann fengi að kynnast alvörukulda á Íslandi. „Það var kalt síðast en nú förum við til Íslands. Og það verður sko kalt,“ hefur vefsíðan Access Hollywood eftir honum. 16.8.2011 17:00
Spurlock sækir Ísland heim Einn vinsælasti heimildarmyndagerðarmaður heims um þessar mundir, Morgan Spurlock, sækir Ísland heim í næstu viku. Hann hyggst sýna nýjustu kvikmynd sína, The Greatest Movie Ever Sold, í Háskólabíói miðvikudaginn 24. ágúst og sitja svo fyrir svörum. Myndin fjallar um svokallaðar vöruinnsetningar í bandarískum afþreyingariðnaði en áhorfendur fá að fylgjast með því hvernig leikstjóranum tekst að fjármagna áðurnefnda heimildarmynd með slíkum innsetningum. 16.8.2011 16:00
Ánægð með brjóstin sín (auðvitað) Leikkonan Salma Hayek, 44 ára, prýðir forsíðu Allure tímaritsins í YSL kjól en hana má skoða í meðfylgjandi myndasafni. Þar svarar Salma spurð út í líkamslögun hennar: Brjóstin á mér, þau eru alls ekki slæm skal ég segja þér. Ég get ekki kvartað yfir þeim. En þegar ég byrjaði í bransanum í Hollywood var mér eingöngu boðið að leika latneskar fáklæddar konur sem sögðu fátt en staðreyndin er sú að ég var aldrei þannig þegar ég bjó í Mexíkó. 16.8.2011 15:00
Svona lítur þú þá út? Meðfylgjandi má sjá myndir af söngkonunni Rihönnu án andlitsfarða og án hárkollu en hún eyðir 1.500.000.- krónum á viku í hárkollur og greiðslur. Eins og sjá má á myndunum er Rihanna gullfalleg með hárið tekið í tagl, án appelsínugula hársins sem hún hefur sést með undanfarið. 16.8.2011 14:00
Læti á lokasprettinum í Reykjavík Runway „Hér er allt á fullu og mikill hamagangur að ganga frá síðustu smáatriðum fyrir úrslitin,“ segir Ingibjörg Gréta Gísladóttir, framkvæmdastjóri keppninnar Reykjavik Runway, en úrslitakvöldið er á fimmtudaginn. 16.8.2011 13:00
Jólin komu snemma í ár með sigri KR „Við vorum að grínast með að salan þetta eina kvöld hefði verið meiri en allan júlímánuð,“ segir Hafsteinn Egilsson, vert á Rauða ljóninu á Eiðistorgi. 16.8.2011 12:00
Klámstjarna komin með hárband Hárbönd eru vinsæl hjá stjörnunum í Hollywood. Ashlee Simpson, Paris Hilton, Olsen tvíburarnir, Nicole Richie og fleiri stjörnur sjást oftar en ekki með hárbönd. Nú síðast í fyrradag sást bandaríska klámstjarnan Jenna Jameson með nokkur mismunandi hárbönd á höfðinu í sundlaug á Miami ásamt unnusta sínum, Tito Ortiz. Skoða má klámstjörnuna og fleiri Hollywoodstjörnur með hárbönd. 16.8.2011 10:30
Madonna kelar við unglambið Madonna, sem er 53 ára í dag, var mynduð í nágrenni við New York kela við 24 ára franska elskhuga sinn, dansarann Brahim Zaibat, á meðan börnin hennar, David og Mercy, léku sér í sandinum. Móðir Zaibat, sem Madonna kynntist í september síðastliðinum þar sem hann var einn af hip-hop dönsurum sem skemmtu þegar fatalína Madonnu var kynnt í Macy´s verslun, er 8 árum yngri en Madonna. 16.8.2011 09:30
Rifja upp 16 ára ástarfund Það var í Þjóðleikhúskjallaranum. Þá sé ég þessa fallegu konu koma inn í salinn..." segir Baldvin Örn Berndsen í meðfylgjandi myndskeiði en hann kynntist elskunni sinni, Berglindi Helgadóttur, fyrir 16 árum. Í dag eru þau hamingjusamlega gift og eiga saman þrjú börn. Sögu þeirra má finna á Ástarkorti TM sem er einstakt kort af Íslandi því þar getur fólk getur séð hvar Facebookvinir þeirra sem og aðrir, sem hafa sett merkt inn skemmtilegar minningar, varð ástfangið. Margar skemmtilegar ástarsögur eru nú þegar komnar inn á ástarkortið. Ef fólk á góða ástarsögu getur það merkt hana inn á kortið nákvæmlega þar sem ástin kviknaði. Sjá nánar astarkort.tm.is. Föstudaginn 19. ágúst verður valin besta sagan og parið sem setti söguna inn fær í verðlaun rómantíska helgarferð innanlands með öllu tilheyrandi. Einnig verða önnur minni verðlaun í boði næstu vikurnar. 16.8.2011 07:58
Christian Dior - haust 2011 Meðfylgjandi má sjá haustlínu fyrir árið 2011 frá Christian Dior. 16.8.2011 07:32
Einstök stund fyrir okkur Ólafur Björn Loftsson tryggði sér keppnisrétt á Wyndham-meistaramótinu í golfi um helgina. Foreldrar hans eru sömuleiðis miklir golfarar og íhuga að fljúga út til að styðja við bakið á stráknum. 16.8.2011 07:00
Yorke veitti innblástur Bassaleikarinn Flea úr Red Hot Chili Peppers fer fögrum orðum um Thom Yorke úr Radiohead. Þeir unnu saman í ofurgrúppunni Atoms For Peace með Patti Smith og Damon Albarn og segir Flea að Yorke hafi kennt honum svo margt. „Hann er ótrúlega góður tónlistarmaður og falleg manneskja. Hann er svo hreinn listamaður. Það hjálpar mikið að vera í kringum manneskju sem sendir frá sér svo jákvæða orku,“ segir Flea. 15.8.2011 16:00
Var einhver að tala um sléttan maga? David Beckham, 36 ára, svamlaði á brimbretti með syni sínum Brooklyn á föstudaginn var í Los Angeles. Daginn eftir voru bræður Brooklyn, Romeo og Cruz, með í för. Eins og sjá má á myndunum er kappinn í hörkuformi. 15.8.2011 14:41
Myndir þú bera þig fyrir góðan málstað? Meðfylgjandi má sjá myndir af þekktum konum, og manni, í Hollywood sem hafa berað sig fyrir góðan málstað. Flest hafa þau pósað léttklædd fyrir dýraverndunarsamtökin Peta sem berjast fyrir réttri meðferð á dýrum. Í myndasafni má sjá Pamelu Anderson, Brook Hogan, Ditu Von Teese, Audrinu Patridge, Holly Madison, Khloe Kardashian, Jennu Jameson, Steve-O og Evu Mendes hátta sig til að vekja athygli á málstaðnum. 15.8.2011 13:17
Fimm dagar í brúðkaupið Fjölmiðlar vestan hafs standa á öndinni yfir væntanlegu brúðkaupi sjónvarpsstjörnunnar Kim Kardashian og Kris Humphries, en nú eru aðeins fimm dagar þar til þau ganga í heilagt hjónaband og það í beinni útsendingu. Kim, sem ætlar að gifta sig í Veru Wang kjól, æfir líkamsrækt oftar en einu sinni á dag á milli þess sem hún pósar á rauða dreglinum eins og sjá má í myndasafni. 15.8.2011 12:48
Smellur Larsens í íslenskri mynd "Lagið smellpassar inn í myndina,“ segir Hafsteinn Gunnar Sigurðsson, leikstjóri kvikmyndarinnar Á annan veg, sem verður frumsýnd 2. september. 15.8.2011 12:30
Eignaðist aðra stúlku Jessica Alba og eiginmaður hennar Cash Warren eignuðust stúlku á laugardaginn. Jessica skrifaði á Facebook síðuna sína eftirfarandi: Stóra systir, Honor, gæti ekki verið spenntari yfir nýja fjölskyldumeðlimnum. Takk fyrir allan stuðninginn á meðgöngunni. Hann er gríðarlega milvægur fyrir mig. Jessica og Cash kynntust við tökur á kvikmyndinni Fantastic Four árið 2004. 15.8.2011 11:32
45 ára með rennisléttan maga Leikkonan Halle Berry, hélt upp á 45 ára afmælið sitt með dóttur sinni, Nöhlu, franska unnustanum Olivier Martinez og vinum á Malibuströnd. Eins og sjá má í myndasafni er Halle í dúndur formi. 15.8.2011 11:07
Leikur Austin Powers á ný Mike Myers hefur gengið frá samningi um að hann leiki í fjórðu myndinni um Austin Powers. Níu ár eru liðin síðan þriðja myndin, Goldmember, var frumsýnd og síðan þá hefur ferill leikarans verið á nokkuð hraðri niðurleið. 15.8.2011 11:00
Skemmtilegur textahöfundur Á heildina litið er þetta skemmtileg plata sem sérstaklega er hægt að mæla með fyrir þá sem hafa gaman af góðum íslenskum textum. 15.8.2011 11:00
Mikil samkeppni hjá sportpöbbunum „Fyrsta helgin gekk bara stórvel. Það var ótrúlega jákvæð stemning yfir öllu,“ segir Davíð Kristinsson, rekstrarstjóri á Glaumbar við Tryggagötu. 15.8.2011 10:00
Jolie hundelt með börnin Leikkonan Angelina Jolie, 36 ára, var svartklædd með sólgleraugu þegar hún yfirgaf leikhús í London í gærdag eftir að hún sá Shrek söngleik ásamt börnum sínum Maddox, 10, Pax, 7, Zahara, 6, og Shiloh, 5. Sama hvar ég er í heiminum á ég það til að óska mér að ég væri stödd einhversstaðar annarsstaðar en ég er, lét leikkonan hafa eftir sér. 15.8.2011 09:40
Sendir frá sér nýtt lag í gamla stílnum „Þetta er svona sveitastuðlag. Það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar maður heyrir það er hlöðuball,“ segir Sólmundur Hólm, grínisti og verðandi poppari. 15.8.2011 09:30
Glaumbar opnaði með stæl Glaumbar í Tryggvagötu var opnaður að nýju á laugardaginn þegar keppni í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu hófst. Gestir virtust kunna vel að meta að staðurinn hefði verið færður aftur í sitt gamla horf. 15.8.2011 09:00
Fey eignaðist aðra dóttur Gamanleikkonan Tina Fey eignaðist dóttur á miðvikudaginn í síðustu viku. Stúlkan hefur fengið nafnið Penelope Athena. Fyrir eiga Fey og eiginmaðurinn hennar, tónskáldið Jeff Richmond, fimm ára dóttur sem heitir Alice. 15.8.2011 06:00
Cheryl Cole fær hlutverk í Glee Simon Cowell var sannfærður um að Cheryl Cole hefði ekki það sem til þarf til að heilla bandaríska sjónvarpsáhorfendur en hún virðist harðákveðin í að sanna að hann hafi rangt fyrir sér. Nú greina breskir fjölmiðlar frá því að Cole hafi landað gestahlutverki í hinum vinsælu sjónvarpsþáttum Glee. Þar með fetar hún í fótspor ekki ómerkari kvenna en Gwyneth Paltrow og Britney Spears. 15.8.2011 01:45
Matt Damon næsti forseti Bandaríkjanna? Hollywoodleikarinn Matt Damon er nefndur til sögunnar sem hugsanlegur forsetaframbjóðandi frjálslyndra vestanhafs, sem mótvægi við Barack Obama. 14.8.2011 10:09
Timberlake leikstýrir Söngvarinn og leikarinn Justin Timberlake er stöðugt að bæta í ferilskrána en nú sest hann í leikstjórastólinn. Timberlake leikstýrði nýju myndbandi hipphoppgrúppunnar Freesol. Ekki bara sat hann fyrir aftan myndavélina heldur stökk hann einnig fram fyrir hana og í myndbandinu má sjá Timberlake dansa og syngja með sveitinni í viðlaginu. 13.8.2011 18:00
Glaumbar opnar aftur Gamli góði Glaumbar í Tryggvagötunni opnaði á hádegi í dag með látum þegar enski boltinn byrjaði að rúlla aftur. Glaumbar var lengi vel einn vinsælasti bar landsins og „nú er her fagmanna í skemmtanahaldi bæjarins mættur til leiks til að tryggja að hann verði það aftur,“ segir í tilkynningu. 13.8.2011 17:26
Stuð hjá Pétri Ben og Eberg Pétur Ben og Eberg sendu frá sér plötuna Numbers Game á dögunum. Þeir fögnuðu útgáfunni með tónleikum á Sódómu á fimmtudagskvöld. 13.8.2011 17:00
Spiluðu á sama sviði og Lady Gaga „Viðbrögðin voru hreint út sagt tryllt og orkan í húsinu var frábær,“ segir Steinunn Camilla, ein af stúlkunum í The Charlies um tónleika þeirra á skemmtistaðnum Avalon í Hollywood á fimmtudagskvöld. 13.8.2011 16:00
Snyrtilegt hjá Svíunum Tískuvikunni í Stokkhólmi var að ljúka og greinilegt að Svíarnir ætla sér stóra hluti næsta sumar. Það er löngu orðin þekkt staðreynd í tískuheiminum að Svíar kunna að klæða sig og er velgengni sænskra fatamerkja á alþjóðavísu staðfesting á því. 13.8.2011 15:00
Nýja platan góð eins og samloka Hljómsveitin Coldplay sendir frá sér plötuna Mylo Xyloto í október. Platan er sú fimmta í röðinni og söngvarinn Chris Martin segir þá félaga hafa byrjað snemma á plötunni eftir hvatningu frá Brian Eno, sem vann með þeim síðustu plötu, Viva La Vida. 13.8.2011 14:00